Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Alcan til Þorlálshafnar og atvinna úr Hafnarfirði.

 Fulltrúar Alcan í Straumsvík áttu fund með sveitarstjónarmönnum í Þorlákshöfn í gær til að kanna möguleikann á því að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver þar. Viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart álveri er allt annað en Hafnfirðinga - segir talsmaður Alcan.

Þegar íbúar í Hafnarfirði höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík í kosningu lá fyrir samningur Alcan og Landsvirkjun um orkusölu vegna stækkunarinnar. Hann var óundirritaður en byggður á viljayfirlýsingu um forgang Alcan að orku í stækkun álversins. Þessi viljayfirlýsing rennur úr gildi eftir sléttan mánuð eða í lok júní.

Alcan leitar nú nýrra leiða til að stækka og nýta sér forgang að orkunni, á skömmum tíma. Í gær voru aðstæður skoðaðar í Þorlákshöfn á fundi með sveitarstjórnarmönnum. Siguður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Alcan segir að meðal annars hafi verið athugað hvaða staðir kæmu til greina undir nýtt álver. Það væri ein leið sem Alcan væri að skoða til að geta stækkað eftir niðurstöðuna í íbúakosningunni. Þá er rætt um að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver.

Sigurður segir það varla raunhæft að ætla að mál væru komin svo langt á næsta mánuði þannig að flötur væri á því að ganga til orkusölusamninga á grundvelli viljayfirlýsingarinnar. Aftur á móti væri möguleiki að reyna að fá Landsvirkjun til að framlengja viljayfirlýsinguna ef raunhæfir kostir um nýtingu orkunnar væru í sjónmáli.

Sigurður segir að ákveðið hafi verið að halda áfram skoðun á Þorlákshafnarálveri í undirnefnd. Sveitarstjórnarmenn hefðu sýnt málinu mikinn áhuga og væri viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart Alcan allt annað og betra en hefði mætt þeim í Hafnarfriði undanfarið.

Alcan hefur lágmarkað gróðurhúsalofttegundir frá fyrirtækinu um 70% síðan árið 1990

Samkvæmt fréttavef BBC munu leiðtogar landa innan ESB skuldbindi sig til að draga úr gróðurhúsalofttegundum um 20% fyrir 2020 miðað við losunina 1990. Fyrir liggur einnig tillaga um skuldbindingu þess eðlis að 20% af orkuneyslu ESB komi frá umhverfisvænum orkuverum um 2020.

 

Frá árinu 1990 hefur losun gróðurhúsalofttegunda frá álverinu í Straumsvík minnkað um 70% á hvert framleitt tonn. Þessi árangur hefur vakið mikla athygli í "álheiminum" enda er losun þessara lofttegunda mun minni í Straumsvík en í flestum öðrum álverum.

Við Straumsvíkurmenn erum bestir til að lágmarka gróðurhúsalofttegundir og ferlið okkar mun halda áfram.

Kveðja Árelíus Þórðarson.

 


mbl.is Bindandi samkomulag ESB í mótun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Hafnarfjörður, við viljum ekki enda eins og eitthvað De Code fyrirtæki?

Komið þið sæl. Er nýkominn frá Danmörku og nýkomin  af 16 tíma vakt. Í litlum bæ sem bróðir minn býr í sem heitir Pindstraup er 100 ára gömul spónar verksmiðja í miðjum bænum.  Þessi verksmiðja spúir þykkum reyk allan sólarhringinn dag og nótt.  Í vissum vindáttum leggur brennifnyk yfir bæinn.  Samt eru allir bæjarbúar mjög hliðhollir þessari verksmiðju sem fæðir og klæðir þrjú þúsund íbúa samfélagsins. Hjá Alcan sjá bæjarbúar aldrei slíka mengun þar sem  verksmiðjan okkar spúir ekki eld og reyk dag og nótt.  Alcan hefur ákveðið að bjóða fólki að koma og sjá starfsemina með eigin augum og þá hátækni sem þrífst innan veggja fyrirtækisins. 

Að sjálfsögðu spurði ég bróður minn vissra spurninga þar sem ég eftir þessa sjón varð hneykslaður af  samfélaginu mínu í Hafnarfirði, þeirra sem hafa nýtt okkar góða fyrirtæki niður í skóinn. Á eitt hundrað afmæli fyrirtækisins í Pindstraup á síðasta ári gaf fyrirtækið öllum bæjarbúum stórar og  góðar gjafir.  Fólkið var þakklátt og enginn svívirti fyrirtækið og kallaði gjafirnar mútur eins og leiðbeinendur frá Sól í Straumi reyndu að telja okkur bæjarbúum um enda var aðeins um 20- 30 geisladiskum skilað af 8000 diskum.

 Kæru Hafnfirðingar.

 Ég vil sjá eitt mesta umhverfisvæna  fyrirtækið á Íslandi vaxa og dafna.  Ég vil sjá Alcan leggja mikinn pening í íþróttafélögin á næstu árum.  Ég vil að bæjarstjórnin hver sem hún verður hafi bolmagn til að létta á skattpínu sinni á okkur bæjarbúa. Ég vil sjá öflugt og kröftugt atvinnulíf.  

Að lokum kæru Hafnfirðingar? 

Þið verðið að skoða málin frá eigin hugsjón?  Hvort það sé gæfulegt fyrir okkur Hafnfirðinga að Vg og Sól í Straumi komi okkur þrjátíu ár aftur til anskotans. Svo væri gaman að fá að vita hvað fólk á við með orðinu sprotafyrirtæki en þetta orðalag  er mikið notað af meðlimum Sólar í Straumi um þessar mundir. Allir þeir sem tjá sig í athugasemdardálki undir fullu nafni verður svarað en öðrum dulnefningum ekki. 

 Kveðja. Árelíus Örn Þórðarson sem er að eflast eftir hina frábæru ferð.


mbl.is Tap deCODE eykst milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Hafnarfjörður gjaldþrota?

Við stækkun Alcan-ÍSALs munu tekjur ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar aukast sem nemur mörgum milljörðum þegar allt er tekið saman anstæðingar stækkunar verða að gera sér grein fyrir því að sá hagvöxtur síðustu ára er að mestu tekin sem lán erlendis og sen líður að skuldadögunum hvernig þeir ætlast til að þjóðin greiði þessi lán er hullinn ráðgáta nema þeir ætlist til að næstu kynslóðir greiði þessi lán, neyslan þjóðarinnar hefur verið að lifa um efnum fram og heimilin orðin meira og minna skuldsett með bílakaupum flatskjám og öðrum munaðavarningi og mesti  hlutinn tekin að láni.

Sé litið til nágrannaþjóðar okkar er viðhorfið að öðrum toga þær keppast við að laða til sín erlenda fjárfesta til að byggja upp þjóðfélög sín og styrkja innlend fyrirtæki og styrkja innviði sinar þjóða og búa þannig að að komandi kynslóðir geti notið þess, hér á landi eru viss öfl sem vinna markvisst að niður rifi á atvinnuvegum þjóðarinnar og tjalda öllu til svo að svo megi takast og halda upp markvissum áróðri gegn erlendum atvinnurekendum jafnt sem innlendu, hatur áróður hefur náð að mestu hámarki sínu i garðs Alcna-ÍSALs og starfsmönnum þess loka skal þessu fyrirtæki að sögn þessa hópa og skiptir þá engu máli þó starfsmenn missi lifibrauð sitt þeir segja að starfsmenn geta fengi vinnu annarstaðar en aldrei sagt hvar, aldri í sögu Íslenskuþjóðarinnar hefur önnur eins áróðursmaskina farið af stað merki rasisma er í hávegum háð með svona skoðunum og málflutningi.

Nú verða bæjarfulltrúar Samfylkinguna  Hafnarfjarðar að fara að gera upp hug sinn hvort þeir vilja meiri atvinnuuppbyggingu í Hafnarfjörð eða meira atvinnuleysi á komandi árum eða hvort þeir vilja setja Hafnarfjarðarbæ endanlega á hausinn á næstu árum þeim ber skylda til að taka ákvörðun í þessu mál til þess voru þeir kosnir, þeir geta ekki hagað sér eins og Vinstri grænir sem vilja allt af ríki og bæ og leggja ekkert til við að byggja upp atvinnu í Hafnarfjörð.

Skattamálin varðandi Alcan liggur nú þegar upp á borðinu og þær tekjur sem Hafnarfjörður mun fá af starfsemi Alcan er áætlaður yfir 1,4 milljarður eða 12 til 14% af tekjum bæjarins fyrir utan þau fyrirtæki sem koma til að vera til verði stækkað.

Rauða Ljónið kallar á ákvörðun í þessu máli Rauða Ljónið Skorar á bæjarfulltrúa Samfylkingarnar að sýna ábyrgð og hlúa að bænum sínum á sama hátt og starfsmenn Alcan og Verkalýðsfélöginn og Hagur Hafnarfjarðar takið þá ákvörðun með eða á móti.

Kv, Sigurjón Vigfússon


Mun barátta framfarasinna sigra afturhaldið?

 Bæjarstjóri Kópavogs er framfarasinni þess vegna blogga ég þessa frétt við þennan tengil sem ég var nýbúinn að pikka inn.

Mikið er ég hissa?  Það er eins og búið sé að slíta tunguna úr stórskotaliðssveit Vg og nokkrum liðhlaupum úr Sf.

 

Eftir mína yfirferð yfir Mogga bloggið þá má segja að tíðindalaust sé á vígstöðunum eitthvað sálfræðibull samt í gangi á Sólarsíðunni.

 

Það er búið að vera mjög gaman að vera þátttakandi í hersveit framfarasinna sem vill sjá fyrirtækið Alcan þróast og nútímavæðast.  Á síðustu vikum hefur verið nóg að gera við að hrekja burtu staðlausa stafi úr orðum andstæðinganna.

 

Það er alveg á hreinu frá mínu hjarta?  Við munum berjast til 31 Mars fyrir því að fyrirtæki með heimsárangur í umhverfis-öryggis og heilsufarsmálum fái að dafna.  Ef við framfarasinnar töpum fyrir afturhaldinnu í þessu baráttumáli okkar þá verður svo að vera.  En eitt er víst að við framfarasinnar ætlum að halda baráttunni áfram til 31. Mars og eigum eftir að eflast mjög fram á þeim tíma.

 

 Fólk verður að skilja það að við framfarasinnar segjum að nú sé nóg komið að afturhaldsinnar kalli okkur öllum ónotarnöfnum.  Sjálfur veit ég um hvað ég er að tala þar sem ég var einn af þeim fáu sem hóf þessa réttlætisbaráttu fyrir rúmlega einu ári síðan.

 

Svo til að undirbúa listsköpun mína fyrir framtíðina ef allt fer á versta veg langar mig að enda þetta á einu steypu ljóði.

Að bíða eftir stækkun Alcans 

Ég vil ekki burt, Ég vil ekki burt.   Hver veit hvurt, hver veit hvurt?   Út í heim, út í heim.     Þar sem enginn að kvöldi, fær um ferð mína spurt.                                                                       

Ég finn lönd, ég finn lönd. Brosir strönd,brosir strönd. Svo hrynur það allt, ég er hnepptur í bönd. 

Enn ég dvel, enn ég dvel. Allt ég fel, allt ég fel. Bíð hér aleinn í fjötrum sem skjaldbaka í skel.

Á.Örn Þórðarson.


mbl.is Skógræktarfélagið geri tillögu að samkomulagi við Kópavogsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óður til umhverfisfíkla frá umhverfissinna sem vill kraftmikið atvinnulíf og að virkjað sé í sátt við náttúruna.

                         Klettinn í fjallinu klaufstu í tvennt með kjarnmiklum ræðum og tárum. Það afl hefur Ómar… okkur sent í dreyra frá jöklunum gráu.

 Þú syngur og messar dag eftir dag með dásemd af sköpunarmætti. Það hlusta víst einhverjir á vonir þínar og brag og blessun frá umhverfisfíkla slætti.

 Samt niða niður fossar tárfagrir öld eftir öld.uns örþreyttir strengirnir rofna.Að síðustu kom þitt kvöld. Þú hverfur í gljúfrið þitt dökkva. 

Daga og nætur stend ég upp á stól og stari upp til hæða.Ég hlusta á umhverfið í vetri og sól viskunnar eilífu fræða. 

Í fortíð og nútíð þú færir í eitt með fádæma haglegum ljóðum.Ekki fá aldirnar rödd þinni breytt né umbrot frá umhverfisvina þjóðum.

 Fossrödd þín Ómar…hljómar háttfrá umhverfissjónarmiðum. Alltaf er hjartað mitt opið á gátt frá hægri öfgasjómanninum.

 Ég skora á umhverfisfíkla að ná sáttum við okkur framfarasinna.  Þjóð sem keyrir fram af bjargbrúnni eftir að hafa slökkt á hagvaxtarvélinni verður ekki affarsæl í framtíðinni.  Þjóðin á að halda áfram sínu kraftmikla atvinnulífi eða láta umhverfisfíklana ráða og telja fólki að affarasælast sé að loka sig af í dimmu herbergi og semja ljóð sem allir geta gert þegar aldurinn færist yfir og aukinn frítími myndast. 

Kveðja Á. Örn Þórðarson.


Stækkun í Straumsvík.

Stjórnmálamenn sem ekki gera greinarmun á nýjum álverum í Helguvík eða á Húsavík annarsvegar eða stækkun álversins Straumsvík hinsvegar eru í besta falli á villi götum. Undirbúningur stækkunarinnar í Straumsvík hófst 1999. Frumkvæðið  kom frá forráðamönnum fyrirtækisins hér og fyrirtækið enn í eigu Svisslendinga. Farið var alfarið að íslenskum leikreglum, tryggja sér land, fyrirhuguð stækkun sett í umhverfismat sem var samþykkt. Þá var farið í orkuleit, samningar náðust við Orkuveitu Reykjavíkur um 40% orkunnar í tíð R-listaflokkana og síðar tókust samningar við Landsvirkjun um hin 60% orkunnar. Þau sem stóðu í þessum samningum voru ekki her útlendinga, heldur forstjóri og kerskálastjóri ÍSAL, þau Rannveig Rist og Gunnar Guðlaugsson. Í millitíðinni sameinast Alusuisse (Svisslendingarnir) og Alcan (Kanadamennirnir) og síðar Pecheynnay (Frakkarnir) og fyrirtækið fær nafnið Alcan á Íslandi. Frumkvæðið að stækkuninni er því íslenskt enda hagsmunirnir íslenskir. Alcan á fleiri möguleika, orkuverð er lægra í Kanada og Bahrein býður upp á "olíu knúin álver"og þar með nánast ókeypis orku. Umhverfismálin ráða hér mestu, vandinn er hnattrænn ekki íslenskur. Við stöndum þjóða best í umhverfismálum og því eðlilega leitað til okkar. Þeir íslensku kostir sem eru upp á borðinu eru fráleitt allir jafn umhverfisvænir. Húsavíkur álver kallar á jarðvarmavirkjun á einu fjölsóttasta ferðamannasvæði  landsins og Helguvíkur álver kallar á jarðvarmavirkjun á Reykjanesskaganum á svæðum sem mörg hver eiga ekki sinn líka eins og Brennisteinsfjöll . Stækkunin í Straumsvík felur í sér virkjun neðarlega í Þjórsá, (afturkræf framkvæmd) og búið að samþykkja af skipulagsyfirvöldum !Einnig jarðvarmavirkjun á Hengilssvæðinu sem er vissulega viðkvæmt en þar er byrjað að virkja nú þegar með samþykki R-Listans og skipulagsyfirvalda. Skipulagsstofnun samþykkti ekki Kárahnjúkavirkjun, umhverfisráðherra varð að grípa þar inn í.   Umhverfismat á eftir að fara fram gagnvart bæði Helguvík og Húsavík og standist það ekki mun enginn umhverfisráðherra breyta því áliti hvar í flokki sem hann/hún stendur! Hér er því um ólíka hluti að ræða. Álverið í Straumsvík er með öll tilskilin leyfi til stækkunar en hinir staðirnir ekki. Hinsvegar kaus Hafnarfjarðarbær að fara þá leið að hafa íbúakosningu um málið, ekki urðu nein málaferli út af því, ekki mótmælti ÍSAL og ekki Alcan. Kosningarnar fara því fram 31.mars næstkomandi,stjórnmálamenn þurfa því enga afstöðu að taka nema að þeir búi í Hafnarfirði. Maður er hinsvegar í nettu sjokki yfir þekkingarleysi stjórnmálamanna á starfseminni í Straumsvík og því andvaraleysi að sú starfsemi skipti engu máli fyrir Hafnarfjörð né land og þjóð. Stækkunin skiptir gríðarlegu máli fyrir Hafnarfjörð og land og þjóð. Við misstum af iðnbyltingunni þess vegna er en hægt að virkja hér ef rétt er að málum staðið, eins og hjá ÍSAL. Fjörutíu ára saga ÍSAL segir okkur að óhætt sé að stækka í Straumsvík, slík aðgerð myndi treysta rekstrargrundvöll þjóðarinnar til framtíðar og við gætum snúið okkur að öðrum möguleikum, öllum til hagsbóta og það gæfi okkur fótfestu til að segja hingað og ekki lengra hvað álver snertir. Eitt er að stækka það sem fyrir er og samþykkt er, en annað að byrja frá grunni! Skora á stjórnmálamenn að kynna sér starfsemina í Straumsvík og koma í veg fyrir að því frábæra starfi sem þar  fer fram verði fórnað að óskoðuðu máli! Úti í henni Evrópu og Skandinavíu er auðvelt að vera "Grænn" þar er búið að virkja allt sem hægt er,við komumst sem betur fer aldrei á það stig! 

 Stækkum í Straumsvík!! Logi Hjartarson


Hafnfirðingar kjósa um framtíð mína? Mörgum þeirra er sama og finnst að ég ætti að fara að semja ljóð eins og svo margir afturhaldssinnar.

Alcan er gott fyrirtæki og hefur reynst mér afskaplega vel. 

 

Á sínum tíma þá hætti ég sjómennsku minni þar sem mér fannst ömurlegt að starfa í grein sem var með óréttlát kvótakerfi.

 

Ég tel Alcan á Íslandi vera með besta áliðnaðar starfsfólk á heimsvísu.  Ég tel á mínum vinnustað að starfsfólkið hafi gert kraftaverk.  Skautsmiðja á heimsvísu er talin óþrifalegasta deild álfyrirtækja.  Hjá okkur er hún ein sú þrifalegasta og tel ég að með því að fá alla til að róa í takt þá sé hægt að gera kraftaverk. Við höfum gert kraftaverk Skautsmiðjunni og erum við starfsmenn stoltir fyrir allt það hrós frá öllum þeim sem hafa heimsótt okkur.  

 

Nú er svo komið í mínu lífi að ég legg spilin á borðið?  Ef Alcan verður ekki stækkað þá mun Alcan sem framleiðir 180.000 tonn sem gamalt úrelt álver byrja að loka sem getur tekið X mörg ár.  Við starfsmenn munum örugglega sjá breytingar.  Sjálfur hef ég hugsað þetta ferli oft?  Um þessar mundir er ég að hugsa mína stöðu hvort ég vilji vera hjá fyrirtæki áfram sem mun hætta rekstri eftir nokkur ár. En að sjálfsögðu hef ég áhuga á að starfa hjá fyrirtæki sem er fremst í umhverfis, öryggismálum og að vinna  við að lágmarka gróðurhúsalofttegundir.

 

Ég hef sagt við mína konu ef álverið í Straumsvík verði ekki stækkað þá flytjum við á landi brott því ég mun ekki kyngja því endalaust að alltaf sé ráðist á þá atvinnugrein sem ég hef valið mér.

 

Enn og aftur bið ég Hafnfirðinga um að vera framsækna og sækja fast í og styðja að fyrirtækið fái að nútímavæðast og þróast.

 

Það er mikill mannauður hjá elsta álfyrirtæki landsins.  Sá auður mun hverfa til anskotans ef fyrirtækið verður ekki stækkað?

 

Kveðja

 

Á Örn Þórðarson.


Orð til talsmanns Sólar í Straumi.

Sæll Sigurður Pétur.

Það sem særir okkur framfarasinna mest er stanslaus áróður ykkar afturhaldssinna á störf þeirra sem nenna að vinna og hafa migið í saltan sjó?

Þú eins og ég vitum vel þegar bágt ástand er á atvinnulífi þjóðar okkar? Þú manst líklegast eftir árinu 1996 þegar ég tók þig með mér á sjóinn til að kenna þér að míga í saltan sjó. Ég man vel þegar þú brosandi Pétur hafði fengið fyrstu reynslu sjómannsins og burðaðist með fullan svartan ruslapoka af humri í land.

Ég verð að segja að ég er farinn að verða þreyttur á þessu þvaðri þínu og vitleysu. Um daginn tjáðir þú þig um að ef Alcan stækkaði þá myndu öll börn í Hafnarfirði nánast drepast úr mengun.

Nú tel ég sé nóg komið þegar þú ásakar okkur starfsmenn að ganga erinda forsvarsmanna Alcans. Ég held að þú þekkir mig það vel að ég skrifa nákvæmlega um allt sem mér sýnist og berst af alefli ef mér og mínum er sýnt eitthvað óréttlæti. Mér er anskotans sama hvað fólk finnst um mín skrif því ég skrifa alltaf beint frá mínu hjarta og ýti á SEND takkann. Eini stíllinn sem ég hef breytt um er að ég er farinn að lesa einu sinni eða tvisvar yfir það sem ég skrifa.

Að lokum Sigurður Pétur. Hættu að sýna störfum okkar áliðnaðarmanna fjandsemi. Þú veist vel að ég og fleiri sem þú þekkir vel værum ekki búnir að vinna þarna í áratugi ef þetta væri svona fjandsamlegt, drullugt og ömurlegt eins og þið Sólarmenn staklist á ykkar áróðri. Vil minna þig á að álver er hátækni iðnaður.

Öll menntun mín til að geta skrifað þessar línur einn og óstuddur er Alcan að þakka. Eins og þú veist þá var skólaganga mín í Stýrimannaskólanum með herkjum. Eins og þú veist þá erfa sum börn verstu eiginleika foreldrana en með fullorðinsárunum þegar ró kemst yfir þá fer allt á betri veg.

Þú ert velkominn í kaffi hvenær sem er þannig að við getum tekið stöðuna. En ég fæ æluna upp í háls af þessari umræðu þar sem fólk er að nota þessa sjálfsögðu stækkun Alcans sem pólitískt skotvopn sér og sínum til framdráttar.

Nú er nóg komið af ómálenanlegri umræðu og skrifum. Ef rannsóknir sýna að stækkun Alcans skaðar ekki neitt í nálægðum byggðum álversins þá á að sjálfsögðu að stækka til hagsbóta framförum og hagsældar í Hafnarfirði.

Nútíma álver er hátækni iðnaður

Stækkum Alcan til hagsældar fyrir Hafnarfjörð.

Kveðja Á. Ö. Þórðarson.


Er hugmyndafræði Samfylkingarinnar fengin hjá Karli bréta prins í umhverfismálum og ferðamannaiðnaði?

Karl Bretaprins ákvað fyrir nokkrum vikum síðan af aflýsa árlegri skíðaferð sinni til að stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda en prinsinn hefur verið gagnrýndur fyrir að fljúga um allan heim til að taka við viðurkenningum fyrir störf sín að umhverfisverndarmálum og stuðla með því að losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta kom fram á fréttavef Jyllands-Posten. Deginum eftir flaug hann til New York til að taka við einni slíkri umhverfisviðurkenningu.

Ómar keyrir á litlum sparneytum álbíl ef ég fer með rétt mál og er hlynntur mengandi ferðamannaiðnaði. Samfylkingarbanarnir í Samfylkingunni eru ekki hlynntur skít og drullu og hafa verið helstu talsmenn þess að banna Íslendingum að koma nálægt slíku.  Fyrst með slagorðinu Fagra Ísland og nú síðast með áróðrinum um tækni eitthvað í stað stóriðju. Ég tel alla íslendinga umhverfissinna sem vilja fara mismunandi leiðir skynseminar.

Ef færi fram skoðanakönnun á fylgi flokkanna meðal starfsmanna Alcans  þá væri Samfylkingin langöflugust flokka hjá okkar fyrirtæki enda feikivinsæll bæjarstjóri í bænum okkar. Hvert atkvæði fjölskylduföðurs getur haft vægi upp á 3-15 fallt.  Ef við tökum lítið dæmi og teljum okkur trú á að flestir stuðningsmanna Alcans séu búnir að fá nóg af ójafnaðarmennskunni. Tökum fyrir hæsta áhrifagildið?  300 starfsmenn *15 eru 4500 atkvæði. Ég er farinn að finna urg hjá starfsmönnum gagnvart Samfylkingunni.

Í Fjarðarpóstinum í dag kemur fram að Talnakönnun gerði könnun fyrir Vísbendingu um afstöðu landsmanna um stækkun Alcan.  55% voru fylgjandi 45% á móti.

Að lokum óska ég þess að Samfylkingin verði áfram jafnaðarmannaflokkur en ekki áróðursflokkur gagnvart okkur framfarasinnum.  Flestir Hafnfirðingar eru ánægðir með Samfylkinguna í Hafnarfirði þar sem bæjarstjórinn í Hafnarfirði lítur hlutlaust á málin en að mínum dómi er annað að segja af forustusveit Samfylkingarinnar á landsvísu sem lítur hlutdrægt á málin.

Kveðja.Á Örn Þórðarson  

Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband