Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Sjónvarp

Hreindýraslátrunartímabilið hafið.

 

417425AHreindýraslátrunartímabilið  hófst í morgun. Aldrei hefur verið leyfilegt að fella fleiri dýr en í ár, eða 1.333, en til að það takist þarf slátrunin að ganga mjög vel.                   

 Eins og sást á myndbandi með fréttum kveljast dýrin, og eflaust meira en þegar Hrefnur eru skotnar af hvalveiðamönnum, en þessi veiði þykir fín gefur samt ekkert í þjóðarbúið ólýkt Hrefnuveiðum umhverfismönnum finnst ekkert athugavert við þessar veiðar,, hvar er  Árni nú. Nú bera Hvalaskoðunarmenn enga umhyggju fyrir Hreindýrum enda gefur það þeim ekkert í aðra hönd.

 Hreindýraslátrunartímabilið  stendur frá 15. júlí til 15. september.

Áhugi á Hreindýraslátrun hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og þrátt fyrir met fjölda veiðileyfa fengu færri en vildu.

 bangsi

 

Á þennan ísbjörn þurfti 8 skot.


Alcan til Þorlálshafnar og atvinna úr Hafnarfirði.

 Fulltrúar Alcan í Straumsvík áttu fund með sveitarstjónarmönnum í Þorlákshöfn í gær til að kanna möguleikann á því að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver þar. Viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart álveri er allt annað en Hafnfirðinga - segir talsmaður Alcan.

Þegar íbúar í Hafnarfirði höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík í kosningu lá fyrir samningur Alcan og Landsvirkjun um orkusölu vegna stækkunarinnar. Hann var óundirritaður en byggður á viljayfirlýsingu um forgang Alcan að orku í stækkun álversins. Þessi viljayfirlýsing rennur úr gildi eftir sléttan mánuð eða í lok júní.

Alcan leitar nú nýrra leiða til að stækka og nýta sér forgang að orkunni, á skömmum tíma. Í gær voru aðstæður skoðaðar í Þorlákshöfn á fundi með sveitarstjórnarmönnum. Siguður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Alcan segir að meðal annars hafi verið athugað hvaða staðir kæmu til greina undir nýtt álver. Það væri ein leið sem Alcan væri að skoða til að geta stækkað eftir niðurstöðuna í íbúakosningunni. Þá er rætt um að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver.

Sigurður segir það varla raunhæft að ætla að mál væru komin svo langt á næsta mánuði þannig að flötur væri á því að ganga til orkusölusamninga á grundvelli viljayfirlýsingarinnar. Aftur á móti væri möguleiki að reyna að fá Landsvirkjun til að framlengja viljayfirlýsinguna ef raunhæfir kostir um nýtingu orkunnar væru í sjónmáli.

Sigurður segir að ákveðið hafi verið að halda áfram skoðun á Þorlákshafnarálveri í undirnefnd. Sveitarstjórnarmenn hefðu sýnt málinu mikinn áhuga og væri viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart Alcan allt annað og betra en hefði mætt þeim í Hafnarfriði undanfarið.

Vinnum að því að lágmarka svifryk og stækkum Alcan

Stuðningsmenn öfgaumhverfisstefnu verða að vera samkvæmir sjálfum sér og henda bílgörmum sínum og fá sér reiðhjól í staðinn .Í fréttum Stöðvar 2 um daginn var loks talað við hlutlausan aðila um málefni Alcans um mengun. 

Svifryk er hættulegasta mengunin sem mannfólkið býr við.                                            

Þór Tómasson, efnaverkfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir afskaplega ólíklegt að brennisteinsdíoxíð frá álverinu geti étið lungu íbúa að innan en þessi frétt kom frá fyrverandi starfsmanni Ísals í  Kompás þætti síðasta Sunnudag  - ekki nema menn stæðu með höfuðið í reyknum ofan í skorsteinum álversins. Enda sé styrkur efnisins í umhverfinu hér langt undir settum mörkum.sjá myndband frá Stöð 2

Þór hefur ekki trú á því að börn sem sofa úti í vagni, kannski allt að fjóra tíma á dag, í Vallarhverfinu og öðrum hverfum nærri álverinu verði fyrir heilsutjóni af völdum brennisteinsdíoxíðs eða annarrar mengunar. Sú loftmengun sem samkvæmt Evrópusambandinu er talin langskaðlegust heilsu manna í dag, segir Þór, er fínt svifryk og næst á eftir var köfnunarefnisoxíð. "Hvoru tveggja þessara efna koma náttúrlega mest frá umferð á Íslandi." 

Miðað við ummæli sumra þá mætti halda að sumir dreymdu dagdrauma með höfuðið ofan í reyk.  

Ég treysti sérfræðingum sem hafa farið yfir öll þessi mál og gefið Alcan leyfi fyrir stækkun.  Nútímaverksmiðja á góðum vinnustað er draumur verkamannsins. 

Kveðja Árelíus Þórðarson sem er umhverfissinni en vil hafa kröftugt atvinnulíf í sátt við náttúruna.

 

Stækkum Alcan já takk.

 

 


Forsætisráðherra styður okkur framfarasinna um stækkun Alcans.

Geir H. Haarde forsætisráðherra lýsti því yfir í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag að hann styddi stækkun álversins í Straumsvík.

Forsætisráðherra tók með orðum sínum afdráttarlaust undir málflutning okkar framfarasinna og annara samtaka í Hafnarfirði þegar hann sagði að stækkun álversins væri góð fyrir Hafnarfjörð og íbúa sveitarfélagsins. Jafnframt tók Geir Haarde fram að stækkunin væri hagstæð fyrir allt þjóðfélagið.

 

Nú hafa öll hagsmuna og verkalíðsfélög ályktað um stækkunina á jákvæðan hátt fyrir okkur framfarasinna.

 

Baráttusamtökin Sól í Straumi munu þó berjast fyrir stopp stopp hagvaxtarvélinni til 31 mars með góðum stuðningi Vg en vonandi ekki stöðvar 2.

 

Kveðja  Árelíus Þórðarson.

Stækkum Alcan já takk.


Stöð 2 þarf að gæta jafnræðis og sannleikans.

Stöð 2 hefur verið að leita að fyrrum starfsmönnum Alcan ÍSALs til að geta notað þá í áróðri og óhróðri eina markmiðin eru að koma höggstað á starfsmenn og fyrirtækið og grafa undan bæði starfsmönnum og svo fyrirtækinu Alcan, skiptir þá litlu máli hvar sannleikurinn liggur eða  hvort hið rétta komi í ljós óhróðurinn og árásir á starfsmenn og Alcan er eina markmiðið sem fréttamenn og stjórnendur Kompás leita að og er eitt hvað sem er fjarri sannleikanum.  

 Stöð 2 mun halda áfram að leggja Alcan í einelti svo og starfsmenn þess. Stöð 2  leitar uppi fyrrverandi starfsmenn sem hafa þurft að yfirgefa staðinn við lélegan orðstír viljugir eða óviljugir, þeirra á meðal er Pálmi Stefánsson en hann fékk ekki þann frama sem honum fannst að hæfileikar hans ættu skilið og hefur beðið eftir tækifæri til að ná sér niðri á Alcan. Því var það himnasending að Kompás skyldi hafa samband við hann og þá gat hann hellt úr skálum reiði sinnar, sem hann og mun gera á þann hátt búa til ímyndaðan eiturfrasa sem ekki mun standast nánari skoðunar. 

Þrír aðrir starfsmenn hafa þeir eining náð í sem vilja nú ná sér niður á fyrrverandi vaktarvinnufélögum sínum sem þó stóðu með þeim er þeir lent í þeirri ógæfu að missa vinnuna og veittu þeim stuðning á erfiðum tímum.

kv,Sigurjón Vigfússon


Jón Ásgeir Jóhannesson? Völd stjórnmálamanna og lýðræðis réttlæti landsmanna minnkar á kosnað eigenda fjölmiðlanna

Vald stjórnmálamanna minnkar með hverju árinu sem líður.Vald eigenda fjölmiðla eða þeirra sem stjórna þeim vex að sama skapi.  Þeir sem stjórna umræðunni hafa valdið.  Við hin erum vanmáttug en sum okkar reyna þó að berjast gegn ofurvaldi og hafa oft sigur að lokum.

Við almúginn fáum oft litlu áorkað.  Stundum finnst okkur við vera Davíð sem berjumst við Golíat ef við reynum að tala út frá hjartanu.  Stundum eru ummæli afbökuð gagnvart þeim sem hafa eitthvað að segja. Vald eigenda fjölmiðla og þeirra sem stjórna þeim verður að breytast.  Annars er lýðræðið í stórkostlegri hættu. 

 Ég vona að ný fjölmiðlalög taki á þessum hlutum þannig að öll sjónarmið verði látin ráða á kostnað einhlíts áróðurs. 

Að lokum. 

Jón Ásgeir?  Ég vil alls ekki hafa þetta svona?  Ég vil að fjölmiðlar og fréttamenn gæti hlutleysis.  Fréttamaðurinn sem tók hádegisdrottningarviðtalið á stöð þinni í gær hefur alls ekki gætt hlutleysis í umræðu um álverið í Straumsvík í rúmt ár. Nú þarf að taka í taumana eða setja á ströng fjölmiðlalög sem munu ekkert  gera annað en að auka lýðræðið.  Eins og þetta hefur verið á stöð 2 undanfarið rúmt ár gengur bara alls ekki lengur. 

Kveðja  Árelíus Þórðarson 


Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti eigandi á stöð 2

Vona svo sannarlega að þú Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti eigandi 365 fréttamiðla lesir  þetta  og greinarnar á undan eða einhver bendi þér á þar sem fréttastofur eiga að mínu viti að gegna hlutleysis.

Og eigi ekki að misnota frétta frelsið eða lýðræðislegt jafnræði.Hvernig stæði frétta flutningur af Baugsmálinu ef stöð 2 flytti fréttirnar á sama hátt og hún gerir á stækkunar máli Alcan og þá um leið  á starfsmönnum þess. 

Kveðja um bætt vinnubrögð og aukið lýðræði. 

Kv.Svig 

 


Svívirðileg vinnubrögð á Stöð2

Talandi um málefnalegheit og aðstöðumun.

Blaðið í morgun kynnti niðurstöður úr skoðanakönnun um stækkun álversins í Straumsvík þar sem útkoman var nánast 50/50 með/móti. Stöð 2 grípur þessa frétt og sýnir í kvöldfréttunum og hvað gera þeir? Tala eingöngu við Pétur Óskarsson talsmann Sólar í Straumi og hann fær að rakka allt og alla niður eins og hann listir. Vælir yfir því að þeim finnist þau vera send með vasahníf í orustu á móti fullkominni herfylkingu. Slá link.

Kv, Sigurjón Vigfússon


Sælir Straumarmenn, Stækkun Alcans JÁ TAKK. Hafnfirðingar gerum bæinn okkar kraftmikinn.

1.      Sælir Sólar menn.Af hverju á ekki bara að hætta að hugsa um að efla velferð í þessu landi til framtíðar þar sem nóg virðist af henni í dag. Velferð kostar peninga og allir vita að fólk þarf að hafa samkeppnisbær laun. Húsvíkingar reyndu allt áður en þeir heimtuðu álver. Það má segja að allt sem þeir reyndu gekk ekki upp, síðan gáfust þeir upp og heimtuðu álver. Fyrir um 12 árum síðan gengu hér um í Hafnarfirði 10% atvinnulausra manna. Davíð Oddson aflýsti kreppunni þá þegar síðasta stækkun álversins var fullgerð. En vissulega eru betri tímar núna en hagkerfi okkar er svo brothætt að lítið þarf út af bera til að allt hjaðni niður og leiti til baka.Sjálfur vil ég vera hreinskilinn og kvíði fyrir því ef Vg nær einhverri fótfestu sem ráðandi afl í okkar landi.Fyrir rúmum mánuði síðan  hringdi í mig góður vinur minn að norðan til að spyrja mig um ráðleggingar um lán og þá hvort eitthvað vit væri í að taka lán í útlenskum gjaldmiðli? Þessi vinur minn er annálaður stuðningsmaður Vg. Ég tjáði honum það ef hann treysti Vg fyrir efnahagsstjórnunninni næstu ára þá skyldi hann taka erlend lán en hann var efins um það með efnahagsstjórnun Vg í fararbroddi.Í mínum huga fer fram mikið lýðskrum um stækkun álversins í Straumsvík. Þegar menn segja sannleikan um framtíð Alcans um líftíma þess og fl að þá verður allt vitlaust og þeir sem kölluðu okkur álhausa kálhausa í síðustu kosningabaráttu blása úr og kalla að menn séu með hótanir. Hvaða fyrirtæki verður langlíft ef það fær ekki að þróast og taka upp nýjustu tækni?Ef menn hafa fylgst með sveitastjórnakosningunum í vor þá gátu menn séð það að meðaltekjur hvers skattskylds útsvarsgreiðanda í Hafnarfirði eru mjög lágar. Það er s.s nóg af láglaunastörfum í Hafnarfirði. En þess skal geta að álverið borgar vel yfir lágmarkslaunum á landsvísu og góðan útsvarspakka til bæjarins.Það er leitt að horfa upp á þessa skrumstælingu fjölda fólks sem hefur ekki hundsvit á því hversu gott er að vinna innan veggja álversins. Miðað við allt miðað við þá mengun sem þau ímynda sér ættum við sem vinnum þar að vera löngu dauð. Í mínum huga er framtíð eins skuldugasta bæjarfélags á Íslandi í veði.

Álver með snyrtilegu umhverfi á rétt á sér sem ekki sést nein mengun frá. Þannig er Alcan í dag og mengar ekkert sem hefur nein áhrif á íbúa Hafnarfjarðar þótt af stækkun yrð

Stækkun álversins JÁ TAKK.Á. Ö. Þórðarson.

Hafnfirðingar kjósa um framtíð mína? Mörgum þeirra er sama og finnst að ég ætti að fara að semja ljóð eins og svo margir afturhaldssinnar.

Alcan er gott fyrirtæki og hefur reynst mér afskaplega vel. 

 

Á sínum tíma þá hætti ég sjómennsku minni þar sem mér fannst ömurlegt að starfa í grein sem var með óréttlát kvótakerfi.

 

Ég tel Alcan á Íslandi vera með besta áliðnaðar starfsfólk á heimsvísu.  Ég tel á mínum vinnustað að starfsfólkið hafi gert kraftaverk.  Skautsmiðja á heimsvísu er talin óþrifalegasta deild álfyrirtækja.  Hjá okkur er hún ein sú þrifalegasta og tel ég að með því að fá alla til að róa í takt þá sé hægt að gera kraftaverk. Við höfum gert kraftaverk Skautsmiðjunni og erum við starfsmenn stoltir fyrir allt það hrós frá öllum þeim sem hafa heimsótt okkur.  

 

Nú er svo komið í mínu lífi að ég legg spilin á borðið?  Ef Alcan verður ekki stækkað þá mun Alcan sem framleiðir 180.000 tonn sem gamalt úrelt álver byrja að loka sem getur tekið X mörg ár.  Við starfsmenn munum örugglega sjá breytingar.  Sjálfur hef ég hugsað þetta ferli oft?  Um þessar mundir er ég að hugsa mína stöðu hvort ég vilji vera hjá fyrirtæki áfram sem mun hætta rekstri eftir nokkur ár. En að sjálfsögðu hef ég áhuga á að starfa hjá fyrirtæki sem er fremst í umhverfis, öryggismálum og að vinna  við að lágmarka gróðurhúsalofttegundir.

 

Ég hef sagt við mína konu ef álverið í Straumsvík verði ekki stækkað þá flytjum við á landi brott því ég mun ekki kyngja því endalaust að alltaf sé ráðist á þá atvinnugrein sem ég hef valið mér.

 

Enn og aftur bið ég Hafnfirðinga um að vera framsækna og sækja fast í og styðja að fyrirtækið fái að nútímavæðast og þróast.

 

Það er mikill mannauður hjá elsta álfyrirtæki landsins.  Sá auður mun hverfa til anskotans ef fyrirtækið verður ekki stækkað?

 

Kveðja

 

Á Örn Þórðarson.


Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband