Leita í fréttum mbl.is

Mótmælir fyrir framan sjónvarpið

Tryggvi Tóbíasarson, atvinnuleysingi, hefur tekið upp á því að mótmæla ástandinu í þjóðfélaginu fyrir framan sjónvarpið sitt, en það hefur hann nú gert á hverju kvöldi í þrjár vikur.

„Jú, þetta gengur ágætlega. Ég sest niður þegar kvöldfréttirnar byrja og hita upp með því að fussa og skammast aðeins, gíra mig svo smám saman upp og mótmæli svo af öllum lífs og sálar kröftum yfir Kastljósinu. Svo slaka ég aðeins á, kíki á netið eða glápi á einhvern þátt – og tek svo aðra rispu þegar tíufréttirnar koma. Þá sleppi ég mér líka algerlega.“

Tryggvi er ekki frá því að mótmælin séu þegar farin að hafa áhrif. „Tjah, allavega eru nágrannarnir farnir að ókyrrast aðeins – og svo er konan auðvitað farin.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband