Leita í fréttum mbl.is

En og aftur dæmir Héraðsdómur Reykjavíkur myntkörfulán ólöglegt

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt að 350 milljóna króna myntkörfuláns ólöglegt, sem fyrirtæki skuldar Landsbankanum, hafi ekki hækkað, þótt gengi krónunnar hafi hríðfallið síðan lánin voru tekin. Bankinn telur höfuðstólinn nú vera hátt í 900 milljónir, en lánasamningarnir miðuðu við japönsk jen og svissneska franka.

 Í dómi Héraðsdóms segir að á forsíðu allra samninganna hafi lánsupphæð verið tilgreind í íslenskum krónum og að endurgreiða skuli í krónum á tilgreindu gengi. Bersýnilegt sé að samið hafi verið um lánin í íslenskum krónum og „að tilvísun til þess að lán sé í öðrum myntum er til málamynda og að engu hafandi" segir í dóminum. Þar er jafnframt vísað í annan dóm sem féll í héraði 12. febrúar þar sem niðurstaðan var sú að ekki væri heimilt að tengja skuldbindingar við erlenda gjaldmiðla.

Dómarinn í þessu máli tekur undir og segir að ekki sé heimilt að reikna fjárhæð skuldarinnar, með þeirri hækkun sem orðið hafi á gengi jens og franka. Upphaflegur höfuðstóll standi og ekki sé heldur heimilt að reikna á hann annars konar verðtryggingu.

Tvö mál þessu skyld, eru nú fyrir Hæstarétti, málið frá 12. febrúar og annað þar sem dómur féll á annan veg. Hæstiréttur flýtir meðferð málanna og verður dæmt í þeim í síðasta lagi 21. júní.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband