Leita í fréttum mbl.is

Ráðist á fórnalamb nauðgara af ættingjum geranda.

 Kona sem lenti í ofsóknum eftir nauðgun. Maðurinn var sakfelldur í hæstarétti en fjölskylda mannsins, vinir hans og sveitungar risu upp og svívirtu hana opinberlega.
Konan hefur flúð bæjarfélagið en segir að óhróðurinn hafi borist hratt til nýrra heimkynna hennar á Akranesi. Hún hafi ekki aðeins fengið fjölda nafnlausra skilaboða sem öll voru full af viðbjóði, þurft að sæta hótunum og svívirðingum heldur einnig lent í líkamsárás.
Hún hefur lýst hún reynslu sinni og segir meðal annars hvernig það var að flytja frá Ísafirði á Akranes eftir allt sem á undan var gengið. „Hann á ættingja hérna og viðbjóðurinn kom, liggur við, á undan mér. Þannig að ég átti ekki auðvelt uppdráttar hér heldur til að byrja með. Ekki fyrr en sanngjarnt fólk gaf mér tækifæri og kynntist mér fordómalaust. Þá fór viðhorf þeirra sem skipta máli að breytast. Það býr hérna yndislegt fólk, sérstaklega starfsfólkið á félagsmálastofnun og sömuleiðis presturinn.“
Hún segist hafa lent í líkamsárás í fyrra út af nauðgunarmálinu. „Frænka mannsins býr hér. Hún sendi mér hver skilaboðin á fætur öðru sem voru full af viðbjóði. Síðan kom hún drukkin heim til mín um miðja nótt og barði húsið að utan þannig að börnin voru logandi hrædd. Reyndi síðan að ganga í skrokk á mér. Eftir þetta eru börnin alltaf að tékka á því hvort það sé ekki örugglega allt læst. Þau eru alltaf hrædd þegar ég fer út, jafnvel þótt ég þurfi bara að skreppa út í búð. Þau hafa upplifað hreina skelfingu.“

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband