Leita í fréttum mbl.is

Loforð þeirra um skjaldborg fyrir almenning í landinu er lygi ofan á lygi.

Hvað gerðist hjá þessari ríkisstjórn sem nú ræður ríkjum? Þetta er ekki sama fólkið sem pólitíkusar og það var fyrir hrun. Jóhanna er orðin að því sem hún  barðist gegn fyrir hrun og Steingrímur er orðin sá sem hann í raun fyrirleit fyrir hrun.c documents and settings isleifur desktop pinocchio2
Restin er eins og reiklaust þangið í briminu og tala í fullri alvöru um lygnan sjó. Þegar ungliðar vinstri manna sem og almenningur í landinu börðu potta og pönnur sögðu Steingrímur og Jóhanna að ríkisstjórn Geirs Haarde yrði að víkja og vitnuðu í fólkið sem mótmælti fyrir utan.
Loforð þeirra um skjaldborg fyrir almenning í landinu er lygi ofan á lygi. Það var gefið skotleyfi á heimilin og bankarnir fengu frjálsar hendur. Maður sem skuldaði 20 milljónir í erlendri myntkörfu fyrir hrun skuldaði um rúmar 70 milljónir eftir hrun. Bankinn fékk lánið eftir kennitöluflakk á 10 milljónir en rukkaði strax þessar 70 milljónir. Var svo tilbúinn að fara niður í 48 milljónir með hjálp ríkisstjórnarinnar.
Fjölskyldan og heimilin í landinu eru sett í hlekki sem Steingrímur og Jóhanna bjuggu til á kvöldin í hannyrðaklúbbi ríkisstjórnarinnar. Eina lausnin sem þau bjóða eru skattar á vofur og drauga því hinir lifandi geta ekki meira. Spunameistarar eru á námskeiðum hjá rappmeisturum til þess að bunan, sem stendur út úr þeim hljómi sem mest kúl. 

Spillingin var vond fyrir hrun en hefur náð nýjum hæðum í gegnum slitastjórnir og  skilanefndir og bankanna sjálfra. Bankarnir eiga orðið Ísland í þeim skilningi að flest öll fyrirtæki landsins eru í höndum þeirra. Síðan ráða þeir hverjir fá fyrirtækin, hverjir verða settir á hausinn. Kunningjasamfélagið er allsráðandi og hefur náð nýrri merkingu. Bankarnir treina öll mál - vilja helst ekki gera neitt því stór hópur mann hefur hag af því að gera ekki neitt þar innan dyra. Þetta er klárlega í boði ríkisstjórnarinnar því hún bauð  þeim upp á þetta á sínum tíma þó svo hún reyni að fela  það með aumu yfirklóri. Bankarnir voru settir í hendur vogunarsjóða sem voma hér yfir og eiga landið eftir krókaleiðum í gegnum erlenda vogunarsjóði.

Steingrímur og Jóhanna þorðu ekki að taka afstöðu með fólkinu í landinu. Þau skjálfa af þrælsótta ef þau heyra talaða ensku af mönnum með lögfræðipróf. Hér er ekkert verið að gera til þess að koma atvinnulífinu í gang – heldur beinlínis verið að rífa það niður. Hinsvegar eru múrar reistir í kringum landið í formi hafta á innflutningi á landbúnaðarvörum, gjaldeyrishöft eru til staðar, tvöfalt gengi krónunnar  er við líði, eitt fyrir almenning, annað fyrir útvalda og í eftirrétt er boðið uppá  hræðslu áróður gagnvart útlöndum. Þetta er það sem er í boði. Bankarnir leysa til  sín íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði og gera allt til þess að halda verðinu uppi. Þetta er skjaldborg með öfgum formerkjum viðfjolskylduhjalp.jpg það sem var boðað.
Sjá má greinina í heild hér eftir Bubba.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband