Leita í fréttum mbl.is

Samtökin Hagur Hafnarfjarðar styðja stækkun!

Samtökin Hagur Hafnarfjarðar hvetja Hafnfirðinga til að samþykkja stækkun álversins í Straumsvík í íbúakosningum sem fram fara 31. mars næstkomandi. Hagur Hafnarfjarðar eru samtök fyrirtækja sem þjónusta álverið, einstaklinga sem eiga afkomu sína undir framtíð álversins og fólk sem vill tryggja áframhaldandi blómlegt atvinnulíf í Hafnarfirði. Samkvæmt frétt á vef samtakanna (www.hagurhafnarfjardar.is) telur stjórn þeirra einsýnt að ef stækkunin verði ekki samþykkt þá muni fjara undan álverinu og að það loki í nálægri framtíð, hugsanlega árið 2014 þegar raforkusamningar renna út. Þetta muni fyrst bitna á þeim fyrirtækjum sem þjónusta álverið og þeirra starfsfólki. Í sömu frétt segir réttilega að ríflega 800 íslensk fyrirtæki séu birgjar og þjónustuaðilar álversins í Straumsvík - þar af eru ríflega 100 fyrirtæki staðsett í Hafnarfirði sem lætur nærri að vera fimmta hvert fyrirtæki í sveitarfélaginu. Komi til þess að álverið dragi úr starfsemi sinni er ljóst að þessi fyrirtæki veikjast mjög að mati samtakanna og mörg hver myndu hætta starfsemi. Þúsundir Íslendinga eigi afkomu sína undir þessum fyrirtækjum og því sé í rauninni verið að kjósa um störf og lífsafkomu þess fólks þann 31. mars. Í fréttinni segir að þessar staðreyndir hafi verið uppnefndar hræðsluáróður en því hafna samtökin en viðurkenna fúslega að þau hræðist þá framtíð sem samdráttur á starfsemi álversins hefði í för með sér. Samtökin hafa kynnt sér vel áform álversins um stækkun og telja áhyggjur af umhverfismálum ekki á rökum reistar. Mengunarvarnarbúnaður og stöðugt eftirlit mun tryggja farsælt sambýli Hafnfirðinga og álversins. Sjá nánar á www.hagurhafnarfjardar.is 

 

 Kv.Sigurjón Vigfússon Stækkum Alcan Já takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Stór hópur fólks stundar þá íþrótt að níða niður atvinnuvegi þessa lands.

Snorri Hansson, 27.2.2007 kl. 14:47

2 identicon

Það er alveg með ólíkindum að Sól í Straumi skuli vilja loka álverinu vegna þess augnstol sem þeim finnst þeir verða fyrir, og þar með svifta á þúsundum manna atvinnu sinni með dyggri aðstoð VG.

kveðja

Ingi A. 

Ingi A. (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 20:04

3 identicon

Rosalega finnst mér lélegt þegar fólk er að commenta og ekki kynnt sér allar hliðar málsins. Inga A þú verður að lesa betur heima áður en þú kemur með svona comment . Sama með Snorra Hansson.. Vitnið annars eru þetta marklaus orð.

 Kveðja,

Hfj (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband