Leita í fréttum mbl.is

Ekki aftur mistökin frá 1904

  Ekki aftur mistökin frá 1904

Voru stæðstu mistök sem Hafnfirðingar gerðu 1904 eru þau nú að koma niður á okkur Hafnfirðingum  geta þau endurtekið sig nú rúmum 103 árum síðar í annari mynd.

Árið 1904 þann 28. Ágúst var stofnað í Hafnarfirði útgerðarfélag sem fekk nafnið Fiskveiðahlutafélag Faxafóa tilgangur  var að stunda fiskveiðar með botnvörpuskipi, keyptur var til landsins botnvörpuskipið ,, Coot” eða fyrsti togari íslendinga og kom hann til Hafnarfjarðar 6. mars 1905.

Var það upphafið á atvinnuþróun og uppbyggingu í Hafnarfirði.


Önnur mistök frá árinu 1904 voru gerð í 12. desember þegar Jóhannes J Reykdal

Setti upp rafal við lækinn í Hafnarfirði og lýsti upp bæinn þetta var fyrsta virkjun á Íslandi.

Engin íbúasamtök voru stofnuð til að koma í veg fyrir þetta og búa Íslendingar en við þetta, afleiðingin er sú að landsmenn hafa þurft að flytja út úr moldakofunum.

Tökum því rétta afstöðu segum já við Stærra og betra Álveri.

Kv,Sigurjón Vigfússon, trúnaðarmaður Steypuskála og varaaðaltrúnaðarmaður starfsmanna Alcans.

 Stækkum Alcan já Takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Ég hef lengi fylgst með skrifum á þessari síðu. Leyfi mér loksins að segja það sem ég hef hugsað lengi: Hvernig á fólk að taka alvarlega skrif þar sem skrifarinn hefur ekki einu sinni lágmarksvald á stafsetningu, hvað þá almennilegri framsetningu?

Hlynur Þór Magnússon, 30.3.2007 kl. 10:36

2 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Bæti við: Ég hef að öðru leyti enga skoðun á þessum málum.

Hlynur Þór Magnússon, 30.3.2007 kl. 10:37

3 identicon

Sæll Hlynur,

Ég tel enga þörf á athugasemdum sem þessum, enda öllum heimilt að tjá sig í ræðu og riti. Leikni manna er misjöfn í því sambandi. Ef maður skilur ekki hvað skrifað er þá leitar maður viðbragða, eða lætur það ógert.

Hvað varðar afstöðuleysi þitt til málsins og skoðanaleysi, leyfi ég mér aftur á móti að undrast. Ég get mér þess til að þú sért ekki Hafnfirðingur, en er fullviss að þú sért Íslendingur.

Sem Íslendingur varðar þetta þig eins og alla aðra ábyrga Íslendinga og spyr ég þig því eftirfarandi:

1. Er þér sama hvort frekari raforku (okkar) er ráðstafað til stóriðju á alltof lágu verði?

2. Er þér sama þó vaxtakostnaður íslenskra heimila haldi áfram að vera alltof hár (jafnvel hækki samkv. uppl. Seðlabanka) og verðbólga meiri vegna áframhaldandi stóriðjustefnu?

3. Er þér sama þó meirihluti landsmanna er á móti stækkun í Straumsvík?

4. Er þér sama þó Hafnfirðingar kalli stækkun í Straumsvík yfir landsmenn alla, með þeim miklu áhrifum og skuldbindingum, til skemmri tíma og til lengri tíma (60 til 80 ár, jafnvel lengur).

Mig langar mikið að heyra skoðanir þínar á ofangreindu, því ég hef nefnilega undrast áhugaleysi þeirra landsmanna sem ekki búa í Hafnarfirði. Ég kalla hér með eftir viðbrögðum ÍSLENDINGA til málsins, þið eigið að beita Hafnfirðinga þrýstingi, við erum með ykkar umboð í kjörklefanum 31.mars.

Með bestu kveðju

Þorsteinn Gunnlaugsson, rekstrarverkfræðingur M.Sc.

thorsteinn.gunnlaugsson@simnet.is gsm. 8224200

Þorsteinn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 15:20

4 Smámynd: Rúnar Sigurður Sigurjónsson

Hlynur, þú skildir nú væntanlega hvað maðurinn var að segja, eða ertu eins unglingarnir sem rífast á alnetinu góða og þegar þeir nenna ekki lengur að hlusta á mótrök á þá koma þeir með stafsetningarrökin og fassismann um að þeir skilji ekki hvað er átt við og horfa í hina áttina?
Skítt með þó að framsettning og stafsetning sé ábótavant, hér er það tilgangurinn sem helgar meðalið og það er það sem telur á endanum. Ekki barnaleg smáatriði

Held líka, að með fullri virðingu fyrir mögum þeim sem rita á þessa síðu, að þeir hafi ekki mikið verið að stunda bréfaskrif og æfingar í uppsettningum síðustu árin, enda vinna fæstir þeirra bakvið tölvuskjái alla daga og eru því ekki í "góðri" æfingu.

Rúnar Sigurður Sigurjónsson, 30.3.2007 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband