Leita í fréttum mbl.is

Allt fyrir málstaðinn ... notum börnin!

Þeir sem lásu færsluna mína um misnotkun Framtíðarlandsins á börnum (http://stundinokkar.blog.is/blog/stundinokkar/entry/151735/) eru væntanlega ekki hissa á því að mér finnist það ósmart að andstæðingar stækkunar álversins etji börnunum sínum út í svona lagað.   Ég sá til dæmis grein í bæjarblaðinu þar sem 10 ára barn er að kvarta yfir því að fá ekki að kjósa.  Kommon!  Trúir því virkilega einhver að 10 ára barn sé miður sín yfir því að hafa ekki kosningarétt?  

Nei, þessi skæruhernaður er farinn að minna mann á fréttir utan úr heimi þar sem börnum er atað út í grjótkast eða þeim sigað fremst í víglínur í borgarstríðum með hríðskotabyssur eða basúkkur í hendinni!  Ég efast um að öllum Hafnfirðingum þyki smekklegt að vera með þessum hætti komin í hóp með Palestínu, Írak og Sierra Lione! 

Ég sá líka mjög skrítin komment út í gamla fólkið í Hafnarfirði hjá einum andstæðingi stækkunar, en hann virtist vera þeirrar skoðunar að fólk sem væri dautt innan fárra ára ætti ekki að hafa kosningarétt!   Já, þið lásuð rétt og ef þið haldið að þetta séu útúrsnúningar þá er best að láta beina tilvitnun í umrædd skrif fylgja hérna með: 

"Hitt er síðan alveg fullgild spurning, hvort það sé í raun og veru þeirra sem komnir eru af léttasta skeiði að ákvarða, með eða á móti, í máli sem hafa mun áhrif á unga og ófædda til næstu 60 til 80 ára ef stækkun verður samþykkt. Ég tel ekki,"  segir einn sólarmaðurinn á http://redlion.blog.is/blog/redlion/entry/159379/.   Þetta væri raunar fyndið ef þetta væri ekki svona sorglegt. 


mbl.isHafnfirsk ungmenni mótmæla álversstækkun
Palli Pé

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Als

Einstaklega óviðeigandi og ósmekklegt eins og þú bendir á. Á svo ekki að banna fólki med lífshættulega sjúkdóma að kjósa einnig? Hér er mönnum greinilega ekkert heilagt í viðleitni sinni og áróðri.

Kveðja,

Ólafur Als, 31.3.2007 kl. 11:47

2 identicon

Heill og sæll Palli Pé.

Ég þakka þér fyrir að halda á lofti vangaveltum mínum um hverra er framtíðin og hverjir ættu því að kjósa í dag. Mér finnst þó ósmekklegt að gera mér það upp að tala um andlát fólks innan fárra ára, enda hef ég ekki rætt þannig um málið. Mér gefst því tækifæri enn einu sinni að útskýra mál mitt. Takk fyrir það.

Ég trúi því ekki að nokkur maður telji að meina eigi öldruðum að kjósa í stækkunarmálinu, ég hef hvergi séð það sjálfur né ritað?

Ég er aðeins að velta með Hafnfirðingum vöngum hverra það er að ákvarða um hag Hafnarfjarðar og Hafnfirðinga og skuldbindinga til næstu 60 til 80 ára verði af stækkun.

1. Er það þeirra sem eru hættir á vinnumarkaði?

2. Er það þeirra sem hætta á vinnumarkaði innan næstu 10 ára?

3. Er það okkar sem erum komin á miðjan aldur?

4. Er það ungu kynslóðarinnar sem á eftir að búa við ákvörðun okkar?

5. Eða er það þeirra sem ófæddir eru?

Nú er það svo að þeir tveir síðast nefndu geta ekki tjáð sig um málið þar sem fyrri hópurinn er ekki með kosningarétt og hinn ófæddur.

Það er því mikilvægt að við gætum okkar í dag, því í kjörklefanum förum við hvert og eitt með okkar eigið atkvæði, en á ákveðinn hátt með umboð þeirra sem ekki fá eða geta ekki kosið.

Lifið heilir stækkunarsinnar og aðrir Hafnfirðingar og megum við öll eiga góðan kosningardag og bjarta framtíð hvernig sem fer í stækkunarmálinu.

Þorsteinn Gunnlaugsson, rekstrarverkfræðingur M.Sc.

Þorsteinn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband