Leita í fréttum mbl.is

ASÍ hefur þungar áhyggjur af efnahagshorfum.

ASÍ segir hætt við að ungt fólk lendi í greiðsluerfiðleikum.

Miðstjórn ASÍ hefur sent frá sér ályktun um efnahagsmál. Þar er lýst „þungum áhygggjum" yfir stöðu efnahagsmála.

Í kjölfarið hefur fylgt mesta verðbólga í 18 ár. Þetta er alvarlegasta staða sem við höfum staðið frammi fyrir í langan tíma.

Að lokum leggur miðstjórnin áherslu á að „stjórnvöld grípi þegar til aðgerða til að sporna gegn vaxandi atvinnuleysi og fjöldagjaldþrotum. Í því sambandi telur miðstjórnin mikilvægt að opinberir aðilar auki mannaflsfrekar framkvæmdir s.s. viðhaldsverkefni og reyni eftir megni að afstýra þeirri innlendu lánsfjárkreppu sem við búum við. Miðstjórnin telur einnig mikilvægt að Íbúðalánasjóður verði nýttur til að aðstoða skuldsett heimili sem komast í þrot með því að veita greiðsluerfiðleikalán. "

Greiningardeild Landsbankans spáir 1,2% hækkun verðlags í þessum mánuði. Það samsvarar liðlega 13% verðbólgu á ári. Í maímánuði mældist verðbólgan 12,3% á sama mælikvarða. Landsbankinn spáir að verðbólgan nái hámarki í ágústmánuði, 14%, en minnki hratt eftir það og verði 3,5% í maí á næsta ári.

Undanfarna fjóra mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um ríflega 7,5%, en það samsvarar um 25% verðbólgu á ársgrundvelli.

Talsvert um uppsagnir VR-félaga

Á annað hundrað félagsmanna hjá VR missti vinnunna um síðustu mánaðamót. Gunnar Pálsson, formaður VR, býst við áframhaldandi uppsögnum á næstu mánuðum. Sjötíu manns var sagt upp hjá Nóatúni vegna þess að loka á þremur verslunum.

 

Kv. Sigurjón Vigfússon 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband