Leita í fréttum mbl.is

Eva Joly fordæmir Breta og Hollendinga í Icesave.

Eva Joly, sem m.a. er ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins, gagnrýnir fjölda ríkja og aðþjóðastofnanir fyrir að ráðast með ofríki gegn Íslendingum í Icesave deilunni.  Hún segir sum ríki, Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ábyrgðarlaus í afstöðu sinni og að Íslendingar muni aldrei getað greitt þær skuldir sem þessi ríki leggi á þjóðina. Þannig muni AGS og ESB “vinna sannkallað afrek: draga land þar sem þjóðartekjur á hvern íbúa hafa verið með þeim hæstu í heimi niður á stig þeirra allra fátækustu.“

Þetta segir Eva Joly í  harðorðri grein sem birt er samtímis í Morgunblaðinu, norska dagblaðinu Aftenposten, breska dagblaðinu Daily Telegraph og franska stórblaðinu Le Monde um helgina.

Ísland mun hvorki geta greitt AGS né Bretlandi eða Hollandi

„Þegar til kastanna kemur verður hvorki hægt að endurgreiða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum né Bretlandi né Hollandi. Lega Íslands er hernaðarlega mikilvæg og landið ríkt af náttúruauðlindum. Ef svo fer sem horfir mun aldurssamsetning íbúanna breytast og ungt, menntað fólk flytja úr landi. Þeir sem eftir verða munu eiga meira undir þeim sem hæst býður. Engum dylst aukinn áhugi Rússa á svæðinu,“ skrifar Eva Joly.

Ábyrgðarlaus afstaða AGS og ESB

Joly fer hörðum orðum um viðsemjendur Íslendinga í Icesave-deilunni og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að málinu, sem varði hagsmuni langt utan íslensku strandlengjunnar.

„Ábyrgðarlaus afstaða sumra ríkja, Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart hruni íslenska efnahagskerfisins sýnir að þau eru ófær um að draga lærdóm af hruni þess samfélags sem Ísland var holdgervingur fyrir – þ.e. samfélags óhefts markaðsfrelsis, einkum frjálsra fjármálamarkaða sem þessir sömu aðilar tóku þátt í að móta.“

Norðurlöndin bregðast Íslandi

Hún sendir Norðurlöndunum tóninn og segir þau „afreka það nú helst að bregðast ekkert við þeirri kúgun sem Ísland er beitt“, nokkuð sem dragi úr trú manna á raunverulegan vilja þeirra til að veita Íslandi stuðning.

Barroso með hugan við eigin hagsmuni

Joly skýtur föstum skotum að José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og sakar hann um að hafa haft hugann við eigin kosningabaráttu í haust þegar hann kaus að styggja ekki helstu stuðningsmenn sína, Breta, þegar framkvæmdastjórnin hafi tekið skýra afstöðu með Bretlandi í málinu strax í nóvember.

„Ef Evrópa og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn snúa ekki við blaðinu kann að vera að þau vinni sannkallað afrek: dragi land þar sem þjóðartekjur á hvern íbúa hafa verið með þeim hæstu í heimi niður á stig þeirra allra fátækustu.“

Þá segir hún m.a. orðrétt:

“Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, missti hér af gullnu tækifæri til þess að láta loks verkin tala.”

“Það voru Hollendingar og Bretar sem ákváðu einhliða að upphæð innistæðutryggingarinnar ætti að vera ekki aðeins 20 þúsund evrur fyrir hvern reikning, rétt eins og kveðið var á um í evrópskum og íslenskum lögum – nokkuð sem þegar var ógerlegt fyrir íslensku ríkisstjórnina að standa við [...] heldur að upphæð 50.000 til 100.000 evrur, jafnvel hærri.”

“Það hversu mjög Brown hefur beitt sér gegn þessu smáríki er því ekki hægt að skýra á annan hátt en þann að hann hefur viljað ganga í augu eigin kjósenda og skattgreiðenda, fólks sem að sönnu varð fyrir miklu fjárhagstjóni og rétt er að halda til haga.”


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll kæri bloggvinur. Ég sé að við höfum báðir sett hugleiðingar um þessa dæmalaust dugmiklu konu. Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 1.8.2009 kl. 19:33

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Félagi kannski hugsum við  eins þegar kemur til hugsun um hag lands og þjóða við viljum þjóðinni sem mest og best  á tillist til pólitísks þras á hverjum degi því allir vilja sína Lilju kveða.

Kv. Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 1.8.2009 kl. 20:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband