Leita í fréttum mbl.is

Takk fyrir þessi hlýju orð til starfsmanna Alcans. Dorrit Moussaieff

Það er ekki hægt að segja annað en að manni hafi hlýnað um hjartarætur eftir að hafa fylgst með ágætu viðtali Evu Maríu  í Kastljósinu í gærkvöldi við forsetafrúnna Dorrit Moussaieff.  Þar talaði  forsetafrúin okkar með hlýjum orðum til starfsmanna fyrirtækisins.

 

Starfsmenn minnast vel heimsóknar Dorritar þar sem hún sem persóna kom okkur svo sannalega á óvart með sinni virðingu til okkar.  Ef starfsmenn hefðu ekki þekkt hana sem forsetafrú, þá hefðu starfsmenn haldið að ný kona væri að hefja störf hjá fyrirtækinu þar sem forsetafrúin leit á alla sem jafningja sína án yfirstéttahroka.

 

Ég vildi fá að segja þessa skoðun mína þar sem við álvers starfsmenn höfum svo sannalega fengið að finna fyrir óhróðri frá ýmsum á störf okkar á síðustu mánuðum.

 

Vona svo að forsetafrúin sjái sér fært að heimsækja okkur sem fyrst aftur í álverið og takk aftur fyrir þessi hlýju orð til starfsmanna.

 

ÁÞ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Tek undir þetta, heyr heyr

Jóhanna Fríða Dalkvist, 15.1.2007 kl. 08:16

2 identicon

Sá ekki umrædda viðtal en heyrði pínu úr fjarlægð og verð að  segja að ég er mjög feginn að hún var ekki að reyna að tjá sig á íslensku. 

Skrítið hvað hún verður alltaf barnaleg þegar hún reynir að segja eitthvað á íslensku, fæ alltaf kjánahroll. 

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 15.1.2007 kl. 14:11

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Ég vill biðja þig að sýna Forsetafrúni virðingu. Ekki þessa fordóma í garð Íslenskar ríkisborgara af erlendum uppruna hver  sem sá einstaklingur er.

Kv. Svig.

Rauða Ljónið, 15.1.2007 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband