Leita í fréttum mbl.is

Við hjá ALCAN erum með umhverfismálin á heilanum og höfum unnið góða áfanga sigra.

Við hjá Alcan erum með 3 Þurrhreinsistöðvar sem gegna því hlutverki að hreinsa flúorið og ryk úr afsogi.  Hreinsað flúor er síðan notað aftur við vinnsluna..  Síupokar gegna því hlutverki að hreinsa ryk úr gasinu áður en það fer út í andrúmsloftið aftur.  Í okkar fyrirtæki hefur mikið áunnist á síðustu árum og höfum við minnkað gróðurhúsaáhrif í andrúmsloftið um allt að 70% á síðasta áratug og munum við halda áfram á sömu braut.  Ég tel að þessi árangur okkar í umhverfis og öryggismálum hljóti að valda eftirtekt annara fyrirtækja í sambærilegum rekstri.

Það er ömurlegt fyrir þjóð okkar? Ef þjóðin ætlar að veita brautargengi í okkar þjóðfélagi, stjórnmálaflokkum eins og Vg og SF sem virðast ætla miðað við forystu Ingibjargar og Steingríms? Ráðast á vinnandi fólk.  Þeirra hugsjón er aðeins ein að berjast gegn vinnandi fólki með lífsvæn laun.

Síðan vil ég minnast á könnun Fréttablaðsins þar sem kemur í ljós að jafnaðarmannaflokkur getur aldrei barist gegn  framförum á Íslandi þótt viss hluti þjóðarinnar safnist saman í afturhaldssaman fortíðar flokk Vg.

ÁÞ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það skemmtilega við þær umræður sem hafa snúið að fyrirtækinu síðustu vikur er sú athygli sem umhverfismálin eru loksins að fá. Við hjá Alcan höfum staðið okkur gífurlega vel í umhverfismálum og munum halda því áfram. Við erum með stöðugt eftirlit með þeim útblæstri sem kemur frá fyrirtækinu með sjálvirkum mælibúnaði í strompum þurrhreinsistöðva og rjáfri kerskála. Við mælum einnig gróður og vatn í kringum fyrirtækið í samstarfi við Umhverfisstofnun og Iðntæknistofnun Íslands. Allar mælingar eru vel undir þeim mörkum sem eru gefin út í starfsleyfi fyrirtækisins sem eru vel undir heilsuverndarmörkum og gróðurverndarmörkum. Mælingar á flúor í gróðri nú eru svipuð og þau voru áður en framleiðsla hófst hjá fyrirtækinu eða um 3-5 ppm. Gróðurverndarmörk eru 30 ppm og heilsuverndarmörk margfalt það. Sem dæmi þá er um 1000-1500 ppm flúoríð í tannkreminu heima hjá þér.

 

En hvað er flúor? Flúor er frumefni og hefur táknið F í lotukerfinu. Flúor er að finna víða í náttúrunni eins og flest frumefni, því frumefni eru byggingareiningar alls. Jörðin í heild sinni er súpa frumefna og við og umhverfi okkar er hluti af þeirri súpu. Á vísindavef HÍ er að finna eftirfarandi texta:

 ,, Flúor er nauðsynlegur í hæfilegu magni til eðlilegs þroska og viðgangs fyrir dýr og menn, sé skortur á flúor í fæðu leiðir það til takmarkaðs vaxtar, blóðleysis og ófrjósemi.

Dagleg hæfileg flúorneysla er um 0,3-3 mg og fæst úr fjölmörgum fæðutegundum, eins og fiski, kjöti, eggjum, kartöflum, smjöri, osti og tei. Fiskur, sjávarsalt og te eru líklega bestu uppsprettur flúors úr fæðu.”
 

Flúor er nauðsynlegur en þó í hófi, eins og flest annað. Þess vegna höfum við Umhverfis- og heilbrigðisstofnun sem setja fyrirtækjum heilsu- og gróðurverndarmörk í útgefnum starfsleyfum. Við megum ekki gleymi þessum stofnunum sérfræðinga sem hafa það fyrir starfi að fylgjast með fyrirtækjum eins og Alcan og gefa út starfsleyfi sem þau starfa í samræmi við, og Alcan á Íslandi gerir það.

Fannar Jónsson (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 20:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband