Leita í fréttum mbl.is

Níðst á alþýðunni á Íslandi, hvar er ASÍ.

Á þeirri forsendu er full ástæða fyrir Alþýðusamband Íslands að beina þeim tilmælum til aðildarfélaga sinna að grípa til róttækra aðgerða vegna þessarar ákvörðunar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins þar sem þau skilaboð eru send út að dómar hæstaréttar gildi ekki fyrir fjármálakerfið heldur einungis fyrir sauðsvartan almúgann.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness hvetur alþýðu þessa lands til að standa saman og sýna íslenskum stjórnvöldum fulla hörku og það verði ekki liðið að dómar hæstaréttar gildi ekki fyrir alla í þessu landi. Oft hefur verið þörf fyrir samstöðu en nú er nauðsyn," skrifar Vilhjálmur á vef verkalýðsfélagsins.

 


mbl.is Segir níðst á alþýðunni á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Já, hvar er ASÍ?

Ragnhildur Kolka, 30.6.2010 kl. 13:19

2 identicon

Ja, ég spyr á móti, hversu margir af alþýðunni, sem verkalýðsfélög innan ASÍ skyldu vera með þessi lán???

Eru það kannski bara örfáir og ætli meirihlutinn sem þessi lán tóku hafi ekki verið aðilar með hærri tekjur, sem sé tilheyri varla þeirri stétt sem kölluð er sauðsvartur almúginn (þótt hann sé langt frá því að vera svartur)???

Er kannski verið að kalla eftir því að enn og aftur verði samtök lægst launaða starfsmanna landsins notuð sem eyki fyrir hálaunamennina??

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 15:14

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Já Ragnhildur hvar er ASí.

Sigurður, láglaunamaðurinn hefur ætíð greitt fyrir þann hálauna.

Rauða Ljónið, 30.6.2010 kl. 17:47

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við verðum að standa saman og verjast gegn þessum okurlánafyrirtækum nú síðast í fréttum um SP fjármögnun bíll keyptur með  4.8 milljóna láni sem fór i 9.8 milljónir og viðkomandi gat ekki borgað tapaði bílnum hann verðmetin á 3 millur seldur á fimm en lántakinn krafin um 6 millur hvað er í gangi? ef þetta er ekki rán þá veit ég ekki hvað er rán. Bankar og fjármögnunarfyrirtæki sýndu ekki á tíðum miskunn því ættum við að sýna þeim miskunn þegar klár er að við höfum dómstólana með okkur!

Sigurður Haraldsson, 30.6.2010 kl. 19:58

5 Smámynd: Rauða Ljónið

 Sæll. Sigurður sá þetta dæmi og hef séð mörg viðlíka hvernig farið er með fólk í greiðsluerfiðleikum þar sem sá stóri níðst á þeim smáa í skjóli laga en vilja svo ekki hlíta dómi hæstaréttar né landslögum þegar þeir telja  þau vera þeim í óhag.

Æðstu menn fjármálafyrirtækjanna og stöku embættismenn voru vel „vitandi vits“ um hvað framundan kynni að vera og hvaða þýðingu gengistrygging hefði í hruni efnahagslífsins.

Þeir göbbuðu almenning „vitandi vits“ til að bjarga sér.

Rauða Ljónið, 30.6.2010 kl. 20:26

6 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Upp á hvað er verið að bjóða þegar framkoman er eins og dæmi hafa sýnt! Tæki hafa beinlínis verið rifin úr höndum á fólki og lögreglan hefur staðið með fjármálafyrirtækjunum nú hefur staðan snúist við skildi lögreglan standa með okkur?

Talaði við yfirmann lögreglunar í Reykjavík i dag og bað hann að íhuga það hvað þeir gerðu ef við værum með uppsteyt við þessi fyrirtæki, kvaðst hann myndi skoða málin einnig aðvaraði ég hann út af því sem SÍ og FME gerðu í dag það er að sega köstuðu sprengju út til okkar hvernig eigum við að taka því?

Sigurður Haraldsson, 30.6.2010 kl. 21:20

7 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Sigurður fjármálafyrirtækin hafa verið lögvernduð í þessum gjörningum með her lögfræðinga með sér og ekki tekið tillits til skuldarann hvort hann hefði geta borga með lengingu lána eða réttlátri skuldbreytingu þetta hafa þessi fyrirtæki nýtt sér.
Til að græða á ógæfu lántakans..
Nú þegar dæmið snýst við þá mun löggjafinn koma inn og vermda þessi fyrirtæki mér sýnist á umræðunni nú hjá ráðherrum benda í þá átt.

Rauða Ljónið, 30.6.2010 kl. 21:47

8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar, setur landið enn nær uppreisn.

Mín eigin færsla: http://einarbb.blog.is/blog/einarbb/entry/1072934/

Síðan er þessi ábending til þeirra sem vilja taka upp Evru:

http://einarbb.blog.is/blog/einarbb/entry/1070350/

---------------------

Stærstu vonbrigðin eru líklega, að ef Gylfi Magnússon hefur rétt fyrir sér, að fjármálakerfið þoli þetta ekki - að þar með staðfestist sennilega að endurreisn bankakerfisins hefur sennilega mistekist.

Hint, má finna í skýrslu AGS þ.s. fram kemur, að stærð kerfisins sé nú 159% af þjóðarframleiðslu - en í dag á það einungis að þjóna innanlands markaði.

En, ríkisstj. virðist ekki skilja hugtakið "opportunity cost" - í þessu tilviki, hvað annað hefði verið hægt að gera við þann pening sem það hefur kostað, að hafa bankakerfið stærra og þar með dýrara í rekstri en brýn þörf var fyrir.

*Er þessi umfram launa-/rekstrarkostnaður þ.s. 20% afskriftin hefði kostað?

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.7.2010 kl. 01:38

9 identicon

Ef þið hafið séð myndina Catch 22 á sínum tíma (þ.e. fyrir þó nokkrum árum síðan) þá vitið þið að við erum hér með Catch 22.

Fyrir þá sem ekki sáu þessa mynd þá er Catch 22, klásúla 22 í reglunum og bandaríska herinn, en hún segir í hnotskurn: til þess að menn losni við hermennsku þá verða þeir að vera geðveikir. Ef þeir vilja hins vegar losna úr hermennsku þá eru þeir greinilega ekki geðveikir. M.ö.o. þú losnar ekki úr hermennskunni.

Í þessu tilfelli þá losnum við sauðsvartur almúginn ekki við að borga gengistryggðu lánin. Það er tómt kjaftæði að tala um að kröfuhafar eigi að bera tapið. Við skulum líta til þess að hér á landi eru starfandi eftirlitsstofnanir sem eiga að hafa eftirlit með því að fjármálafyrirtæki starfi í samræmi við lög og reglur. Þessar stofnanir eru Seðlabankinn, Fjármálaeftirlitið og Alþingi. Enginn þessara aðila gerði athugasemd við gengistryggðu lánin, þrátt fyrir að samþykkt voru lög á Alþingi 2001 (ef ég man rétt frekar en 2002) um að gengistrygging á lán í íslenskum krónum væri ólögleg. Þar með hafa þessar eftirlitsstofnanir gróflega brugðist hlutverki sínu. Það þýðir sem sé að kröfuhafarnir, sem í flestum tilfellum eru væntanlega erlendir aðilar, eiga bótakröfu á þessar eftirlitsstofnanir fái þeir kröfur sínar ekki greiddar. Þetta er þvílíkt yfirgengileg vanræksla af hálfu þessara eftirlitsstofnana.

Og hver á þessar eftirlitsstofnanir og ber ábyrgð á þeim, jú ríkissjóður. Og hver á ríkissjóð og ber ábyrgð á honum, jú við sauðsvarti almúgurinn. Þannig að þetta lendir þá bara á okkur öllum í formi hærri skatta til ríkissjóðs.

Eigum við þá bara ekki að greiða bara alls ekki þessar skuldir okkur. Jú það væri svo sem leið ef við viljum fara aftur í tímann til t.d. aldamótanna 18-1900. Slíkt myndi leiða til þess að allir erlendir markaðir væru lokaðir á okkur og við fengjum hvergi lánafyrirgreiðslu eða greiðslufresti erlendis og yrðum að staðgreiða allt okkar. Og það um ókomna áratugi, þar til erlendir viðsemjendur okkar væru þess trúandi að okkur væri treystandi fyrir peningum þeirra og eignum.

Það er því svo sem gott og blessað að standa úti á horni og úthrópa, en betra að setjast niður og finna lausn sem flestir geta sætt sig við þó svo að slík sátt líkist hverju örðu hundsbiti.

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 1.7.2010 kl. 11:05

10 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Bankakerfið er sennilega cirka hrunið - Sigurður - ef þ.e. svo að Gylfi hafi rétt fyrir sér, því munum að skv. lánabókum bankanna eru 43% skilgreind í vandræðum og ólíklegt að af þeim verði borgað.

Eitthvað af þeim dettur reyndar út, ef eins og sennilega gerist Hæstaréttur staðfestir að samingsvextir gildi.

-----------------------

Þ.s. þarf að gera, er að stokka kerfið upp, loka svona tveim bönkum t.d. færa þeirra bissness yfir í Landsbankann án þess að fj. þar starfsfólki, afskrifa öll innlán yfir cirka 4-5 milljónum - þá skapast ef til vill borð fyrir eina stóra afskrift t.d. 30%.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 1.7.2010 kl. 11:28

11 Smámynd: Rauða Ljónið

Sælir. Einar og Sigurður Catch 22 er ágæti lýsing á ástandinu hinsvegar er bankakerfið ekki nógu öflugt  að dómi margra til að standa þetta af sér en skiptar skoðanir eru um það og hvernig því myndir reiða af hugmyndir að fækka bönkum er að vísu ákjósanleg.

En  eitt skulum við allir muna að með þjóðarsáttinni 1991 þá var verðtrygging tekin af launum þar skrifuðu undir verkalýðsfélögin samtök atvinnulífsins ásamt ríkisstjórninni   alþingi.
Allir þessir hópar  lofuðu að standa vörð um lánakerfið vexti og afborganir  ef verkalýðshreyfingin tæki á sig umsamda og mikla kjaraskerðingu  sem launþegar skyldu borgaá næstu 5 til 6 árum  en í raun tók þetta  um 9 til 10 ár og launahækkunum yrði still í hóf.
Nú í dag erum við komin á verri tímapunt og nú þarf launþegin aftur að borga.
Fyrir gjörninga sem aðrir stóðu að.
Íslenskur launamaður stóð við sitt samkomulag hinir ekki.
Nú í dag á launþeginn aftur að greiða  fyrir þessa hópa sem varpa ætið ábyrgðinni á launþega með gjörðum sínum og gerði svo oft á síðustu öld.
Og engin ráðarmaður hvorki já ríkisstjórn né verkalýðshreifunguni vil minnast þess að eitt sin fylgdi verðhækkanir á laun vísitöluni það er orðið tapó.

Rauða Ljónið, 1.7.2010 kl. 13:40

12 Smámynd: Rauða Ljónið

Og engin ráðamaður hvorki já ríkisstjórn né verkalýðshreyfingunni vil minnast þess að eitt sin fylgdi verðhækkanir á laun vísitölunni það er orðið tapó.

Rauða Ljónið, 1.7.2010 kl. 13:43

13 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Einar Björn Bjarnason, 1.7.2010 kl. 14:54

14 Smámynd: Rauða Ljónið

Takk . Einar.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 1.7.2010 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband