Leita í fréttum mbl.is

Ógleymanleg minningarorð

Minningargreinarnar í Morgunblaðinu eru lesnar upp til agna á hverjum degi, sumt er þar afar fróðlegt og vel skrifað, margt persónulegt og jafnvel dramatískt og annað miður vel heppnað, einsog gengur.

springbird

  • "Drottinn minn gefðu dánum ró og hinum líkin sem lifa"
  • “Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn”
  • “Gönguferðin þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar.”
  • “Hún hafði það sterka skapgerð að smávegis rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi.”
  • “Hann var sannur Íslendingur og dó á 17. júní.”
  • “Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag.”
  • “Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í lúðrasveitum.”
  • “Hann skrapp úr vinnu til að fara í þrekprófun í Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík.”
  • “Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðann.”
  • “Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér vegna barnanna.”
  • “Þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinn fingur.”
  • “Helga lést svo þennan dag kl. 4. Helga hafði ætlað að eyða þessum degi í annað.”
  • “Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim.”
  • “Og má segja að ekki setti hún svo skál með tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi.”
  • “Orð þessi eru skrifuð til að flytja Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafólki hans og ekki síður frá tengdamóður hans, þótt nú nálgist 20. árið frá fráfalli hennar.”
  • “Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn.”
  • “Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs.”
  • “Á þessum fjölbreytta lífsferli sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ.á.m. Indíánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að meira eða minna leyti, einkum þó ensku og Norðurlandamálin.”
  • "En afmælisboðin hjá Betu frænku breyttust, því börnin gengu út, hvert af öðru"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband