Leita í fréttum mbl.is

Mikill bílafloti Vinstri Græna veldur mengun

Landsfundi Vinstrihreyfingarinnar á Grand Hóteli

Magnús Bergsson gat þess að mikill bílafloti hefði verið fyrir utan hótelið og í framhaldi spurði hann hvað margir hefðu komið gangandi á fundinn. Varð fátt um svör. Þá spurði hann hve margir hefðu tekið strætisvagn og fékk sömu viðbrögð. Í ljós kom að hann var sá eini sem hafði komið hjólandi á fundinn en nánast allir réttu upp hönd þegar hann spurði hve margir hefðu komið á bíl.„Ég held að við ættum nú að líta okkur aðeins nær og ekki aðeins tala um hlutina heldur líka framkvæma þá,“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

"Varð fátt um svör" Þetta blogg er eftir öðru á þessari lélegu áróðurssíðu Alcan. Fullkomnar rangfærslur hvað eftir annað enda nennir maður varla að lesa þetta lengur og mér sýnast fáar heimsóknir hingað benda til þess að ég er ekki einn á því máli. "Málefni Starfsmanna Alcan í Straumsvík og það sem Rétt og Satt er" í haus síðunnar hljómar því eins og lélegur brandari.

Fólk svaraði því einmitt mjög skilmerkilega og rétti upp hendur þegar Magnús kom með þessa þörfu ábendingu. Það voru ekki margir, nokkrir tugir, sem höfðu gengið og sárafáir tekið strætó. Ég gekk á fundinn í morgun og óskandi væri að fleiri hefðu gert það eða hjólað eða tekið strætó. Það var mj-g vel tekið í það að menn þurfa að byrja hjá sjálfum sér í umhverfisverd. Vonandi hjóla fleiri, ganga eða taka strætó á fundinn á morgun. Ég geng.

Hlynur Hallsson, 24.2.2007 kl. 18:33

2 identicon

Sæll  Ljón

Þetta var þörf ábending, þakka frábæra bloggsíðu ekki veitir af mótvægi við áróður VG og nytsamra sakleysingja þeirra Sólar í Straumi sem VG stjórnar reyndar af sellu sem var stofnuð í Kópavogi rétt fyrir jólin.      Og svona til upplýsinga lesendur Rauða ljónsins þá þarf enginn starfsmaður Alcans í Straumsvík að koma til vinnu á einkabíl, því að Hópferðabílar fara um allt Stór-Reykjavíkursvæðið og keyra menn úr og í vinnu  geri aðrir betur í framlagi til mengunarvarna, allavegna ekki VG.  Og eitt í viðbót unnið allar keppnir um "Hjólað í vinnuna" undanfarin ár og sýnir vel umhverfisvitund starfsmanna Alcans.

Kveðja

Ingi A. 

Ingi A. (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 19:05

3 identicon

Sæll félagi Hallur.

Mér finnst þetta blog síður lélegra en bloggið þitt, margar athyglisverðar færslur eins og færslan um upplýsingafulltrúa BSRB.

Á síðum sem einskorðast við eitt málefni er alltaf minna innlit en ella og þarf ekki að gera lítið úr því.  Sjálfur hef ég brennandi áhuga á atvinnulífi, náttúruvernd og ýmsum þjóðþrifamálum. 

Hvað innlit snertir þá má benda þér á það að tæp 1500 innlit hafa verið á síðu Sól á Suðurnesjum síðasta 1. og hálfan mánuðinn 6100 innlit á síðu starfsmanna álversins í Straumsví þann rúma mánuð sem síðan hefur verið í gangi.  Ekki er hægt að sjá hvað mörg innlit eru á síðu Sólar í Straumi en á fyrri síðu þeirra sem var blogsíða hafa komið 3100 manns  inn á heilu ári.

Að síðustu Hallur varast ber að gera lítið úr starfsfólki því það mun ekki verða flokki þínum til framfara þegar nær dregur.

Von um ánægjulegan landsfund.

S.S

Siggi (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 21:17

4 identicon

Ég held að Hlynur Hallsson ætti að athuga að svona er sagt frá landsfundi VG á mbl.is (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1255427), og ég reikna með að Ljónið hafi sínar upplýsingar þaðan.
Hann er því ekki að búa neitt til í þessu.

Ef Hlyni finnst þessi síða svona léleg og ómerkileg, hvers vegna leggur hann þá leið sína hingað og finnur sig knúinn til að koma með athugasemdir? 

. (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 21:20

5 identicon

So what! .... Já.. við íslendingar þurfum að taka okkur á í mengunarmálum og þótt nánast allir komu akandi á þennan fund þýðir það ekki að "fyrst þeir gera það þá megum við það" viðhorfið ráði. Það er nú bara þannig að almenningssamgöngur þarf að stórefla. Það vita allir.

Þetta hjálpar þó ekki ykkar málstað og réttlætir hann ekkert frekar.

Hfj (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 23:13

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Ljón.

Það er sannarlega allt í lagi að benda á þetta atriði sem vissulega er dæmi um ákveðinn tvískinnungshátt og nægir þar að nefna að talið er að á morgun kunni svifryksmengun í höfuðborginni að fara yfir hættumörk, vegna nagladekkja og magns bíla per mann í notkun innanbæjar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.2.2007 kl. 02:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband