Leita í fréttum mbl.is

Jafnrétti kynjanna í launum er hjá Alcan. Nú verða allir framfarasinnar að standa saman.

Ég er mjög ánægður með þennan óvænta stuðning “Hagur Hafnarfjarðar” til handa okkur stuðningsmönnum um stækkun álversins í Straumsvík.  Sjálfur veit ég vel að það skiptir litlu máli hvað við stækkunar sinnar eða þeir sem eru á móti  gaspra?  Hafnfirðingar taka ákvörðum frá sínu hjarta og þeim upplýsingum sem þeir hafa  trú á.   Sjálfur er ég búinn að vera starfsmaður hjá góðu fyrirtæki í um 10 ár og alltaf liðið vel enda haft allt til alls miðað við það sem ég hafði í mínum fyrri störfum áður en ég hóf störf hjá Alcan.  

 Vegna þess hvað Alcan er góður vinnustaður með 100% umgjörð hvatti ég dóttur mína að sækja um sumarstarf hjá fyrirtækinu sem hún gerði enda séð það í tíu ár á andliti föður síns hvað hann er ánægður.  Samt er aldeilis óvíst hvort hún fær vinnu hjá fyrirtækinu þar sem 500 til 2000 umsóknir berast um sumarstörf á hverju ári.  Sumarfólk sem kemur fyrsta sumarið biður um að fá að koma aftur og aftur.  Ef það stendur sig vel í vinnu og mætir vel þá er það með öruggar tekjur sem fleytir því áfram allt skólaárið og þarf ekki að biðja mömmu og pabba um pening næstu árin.  

Launamisrétti kynjanna hefur verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu en hjá Alcan þekkist það ekki þar sem bæði kynin eru með sömu laun miðað við starfsaldur.  

 Þetta verður líklegast mín síðasta færsla í vikutíma þar sem ég fer af landi brott að heimsækja litla bróður sem er orðinn meiri dani en íslendingur.  Að sjálfsögðu mun ég reyna að rita eitthvað á hans danska lyklaborð.  Að vikutíma liðnum, endurnærður mun ég koma tvíefldur til leiks með lyklaborð í hendi og taka lokaslaginn þannig að gott fyrirtæki fái að vaxa og dafna.  

 Fylkjum liði? Allir þeir sem vilja Hafnarfirði allt hið besta? Sigrum þessa fáránlegu íbúakosningu sem er vissulega óígrunduð þar sem ég á einn bróður sem er listamaður og stuðningsmaður Vg. Á milli okkar fer yfirleitt allt í háaloft ef við ræðum okkar skoðanir, annars erum við bestu vinir og þykjum vænt um hvorn annan. 

Eitt ljóð að lokum. 

 Rauður hnefi, sindrandi sprengja. 

Leggur Hafnarfjörð í rúst. 

Rauður hnefi, ræðst að starfsmönnum Alcans. 

Vil horfa þrjátíu ár til fortíðar. 

 Rauður hnefi, lætur reiða til höggs. 

Varnarlausu starfsfólki. 

 Rauður hnefi er ekki miskunnarlaus. 

Hann slítur sundrar og myrðir. 

 Nú lætur fósturjörð fagurt í eyrum. 

Rauður hnefi er tákn rauðsokkuástar? 

Kveðja. 

Á Örn Þórðarson.
mbl.is Hvetja Hafnfirðinga til að samþykkja stækkun álvers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Maron Bergmann Jónasson

Hvað kemur það málinu við hvort bróðir þinn er listamaður og í VG.  Afar sérstök lesning, segi ekki meir.

Maron Bergmann Jónasson, 26.2.2007 kl. 08:57

2 identicon

Þakka þér frábær blögg og haltu áfram að blögga í Danmörku ekki veitir af gegn VG og nytsömum sakleysingjum þeirra Sól í Straumi, en þeir eru arfafúlir útí  Hag í Hafnarfirði vegna þess að Hagur hefur hag Hafnarfjarðar fyrir brjósti.

Kær kveðja

Ingi A.

Ingi A. (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 10:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband