Leita í fréttum mbl.is

Vinstri Grænir taka upp stefnu Alcans ?

Vinstri Grænir taka upp stefnu sem er samhljóma kjarasamningi hlutaðeigandi verkalýðsfélaga og SA/Alcan
    Landsfundur VG samþykkti stjórnmálaályktun á landsfundi sem fór fram um helgina.
 
Stjórnmálaályktun í átta liðum stærsti hluti ályktunar mætti halda að væri tekin beint upp úr kjarasamningi 
verkalýðsfélaganna og SA/Alcan félagslega hlið samningana.
 
 
 Ályktun V.G . í umhverfismálum Alcan fékk fyrst fyrirtækja vottun í umhverfismálum á Íslandi Iso 14001. 
og vinur markvíst að þeim málaflokki, meðal starfsmanna er öryggis- og umhverfisvitund meiri en þekkist
 í öðrum fyrirtækjum hér á landi.
 
 
Ekki er til í kjarasamningi hér launalegt misrétti heldur algjört launajafnrétti, nú er liðin á annar áratug sem algjört
jafnrétti var samið um milli Alcan og verkalýðfélagana sömu laun algjört launajafnrétti. Einnig er hér engin
 launaleynd, starfsmennn taka laun eftir kjarasamningi og er þar allt á upp á borðinu. 
Jafn margir kvenmenn og karlmenn eru í stjórn Alcan .
 
 
 Menntun Alcan er fyrst fyrirtækja sem rekur skóla Stóriðjuskóla sem samið var um fyrir meira en 10 árum.
Starfsmenn fá fríar ferðir til og frá vinnu sem er bæði orkusparndi og umhverfisvænt, einnig eru margir sem 
hjóla og þó nokkrir ganga til og frá vinnu því búið er að leggja göngu og hjólreiðastíg frá áverinu.
 
 
Svo ef þið haldið að þið hafið fundið upp umverfismál þá vaðið þið í villu, þið ættuð þið að koma í
   heimsókn til okkar og læra því við höfum reynslu þekkingu og færni
  Samkvæmt fréttum kom einn á hjóli á landsfundin ykkar hinir allir á bílum.
 
 
Ég hvet V.G. eindregið til að vera samstiga starfsmönnum Alcans og Alcan  í raun í hnattrænum
 umhverfismálum., það voru við sem fyrstir ruddum brautina í þeim málaflokki.
Við eigum samleið í álinu. Með grænan málm framleiddan með grænni orku.
Hver er grænn?
 
 
Steingrímur J. Sigfússon sagði, ,, þetta er einhver magnaðasta samkoma sem ég hef verið á .
” Það er alveg rétt hjá Steingrími  og er ég sammál honum um það að ná inn í stjórnmálaályktun 
hluta af stefnu verkalýðsfelagana og stefnu Alcans er að hinu góða fyrir landsmenn.
,, Það er magnað”,
 
 

Kv, Sigurjón Vigfússon Stækkum Alcan já takk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að það sé tímasóun fyrir ykkur að reyna að sleikja ykkur upp við gamla kommann hann Steingrím Joð.   Hann er búinn að bíta það í sig að stöðva og banna alla uppbyggingu iðnaðar sem frekur er á helstu auðlind okkar, þ.e. orkuna og þar mun sitja.  Honum er skítsama um hvort þið missið vinnuna eða almennt að lífskjör á Íslandi batni hjá hinum bláklædda vinnandi manni.  

Hvað umhverfismálin varðar og græna litinn þá er það bara hræsni í þessu liði, það kom það glögglega fram á landsfundinum, þar sem forræðishyggja langt aftur úr öldum var kynnt; gamli rauður var mættur á svæðið og græni feluliturinn horfinn; í bili a.m.k.

Siggi Jóns (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 02:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband