Leita í fréttum mbl.is

Ekki má kynna eldriborgurum stækkun Alcans.

Vistmenn á DAS, í Hafnarfirði hafa beðið um að Alcan kæmu og upplýsti það um stækkunar málið og Alcan hefur gert svo .

 Þetta virðist vera bannað að sögn  þeirra sem eru á móti stækkun þeir treysta ekki eldriborguðum  til að mynda sé sjálfstæðum skoðun um málinu svo getur  verið að menn hafi fordóma um að  eldriborgarar á DAS megi ekki búa við sama lýðræðið og upplýsingar  aðrir landmenn eins og þeir fordómar sem sí og æ koma fram um starfsmenn Alcan sömu fordómar virða vera gagnvart eldriborgurum í Hafnarfirði.

Margir vistmenn á DAS eru fyrverandi starfsmenn Alcan og flestir  menn á DAS  sem ég hef hitt munu kjósa með stækkun sumir þeirra er utan af landi og vita hvað það er að hafa vinnu og hvað það er að vera atvinnulaus þeir hafa líka séð byggðir dala út á landi þeir geta ekki hugsað sé að hið sama gerist í Hafnarfirði.

Kv. Sigurjón Vigfússon

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sigurjón.

Auðvitað á að sýna þeim eldri fulla virðingu og kynna þeim málin, en þá frá báðum hliðum. 

Hitt er síðan alveg fullgild spurning, hvort það sé í raun og veru þeirra sem komnir eru af léttasta skeiði að ákvarða, með eða á móti, í máli sem hafa mun áhrif á unga og ófædda til næstu 60 til 80 ára ef stækkun verður samþykkt. Ég tel ekki.

Með bestu kveðju, Þorsteinn

Þorsteinn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 20:03

2 identicon

Sælir

Nú verður manni orðfall, þegar maður les athugasemd Þorsteins, að leggja það til að svifta eldri borgara kosningarétti.

kv.

Ingi A. 

Ingi A. (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 20:22

3 identicon

Sæll Ingi.

Ég er ekki að leggja til að svipta einn né neinn neinu, aðeins að velta upp þessum fleti málsins.

Það er okkur öllum hollt að hugsa hvar við sjáum okkur eftir td. 10 - 20 ár, og hvaða hagsmuni við höfum af stækkun. (gefið að við verðum enn á lífi).

Með bestu kveðju, Þorsteinn

Þorsteinn Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband