Leita í fréttum mbl.is

Sjómannadagsráđ og afi minn Sigurjón á Garđari

Sjómannadagsráđ og langafi minn Sigurjón á Garđari

Stolin grein frá Halli frćnda.

 

http://hallurmagg.blog.is/blog/hallurmagg/

 

dag eru liđin 70 ár frá ţví langafi minn Sigurjón Einarsson skipstjóri, oftast kenndur viđ togaran Garđar frá Hafnarfirđi, stofnađi Sjómannadagsráđ ásamt Henry Hálfdánarsyni og fleirum.

Langafi minn átti eftir ađ starfa ađ framgangi Sjómannadagsráđs allt sitt líf. Fljótt eftir stofnun Sjómannadagsráđs hóf ţađ fjársöfnum til byggingar dvalar- og elliheimilis fyrir aldrađa sjómenn. Sigurjón langafi minn hélt í land áriđ 1957 til ţess ađ taka viđ sem fyrsti forstjóri Hrafnistu, dvalarheimilis aldrađra sjómanna. Ţá voru 20 ár liđin frá stofnun Sjómannadagsráđs.

Á Hrafnistu ríkti Sigurjón sem forstjóri í 8 ár og viđ hliđ hans langamma mín Rannveig Vigfúsdóttir.

Tuttugu árum síđar, 1977, höguđu örlögin ţví ţannig ađ Rannveig langamma mín og fyrrum hússtýra á Hrafnistu í Reykjavík, varđ sú fyrsta sem flutti á nýtt dvalar- og hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirđi, heimabć ţeirra hjóna.

Nú á ţessum merkisdegi er mér ljúft og skylt ađ minnast ţessara öndvegishjóna. Ţótt ég muni glöggt eftir langafa mínum, Sigurjóni á Garđari, ţá var ég ekki nema tćpra 7 ára ţegar hann varđ bráđkvaddur stuttu eftir ađ hann hafđi haldiđ rćđu fyrir minni sjómannskonunnar í hófi ţann 3. janúar 1969.

Aftur á móti átti ég margar góđar stundir međ langömmu minni, Rannveigu, bćđi heima á Austurgötu 40 og á Hrafnistu í Hafnarfirđi eftir ađ hún fluttist ţangađ.

Fyrir ţessar stundir er ég ţakklátur.

Mig langar af tilefni dagsins annars vegar ađ birta lýsingu langafa míns ađ ađdraganda stofnunar Sjómannadagsráđs og hins vegar vitna til rćđu hans viđ vígslu Hrafnistu:'

“Ekki veit ég, hvađ tveir menn rćddu fyrst sín á milli um stofnun Sjómannadags, en ţađ ćtla ég, ađ skriđur hafi fyrst komizt á ţađ mál fyrir alvöru, ţegar viđ Henry Hálfdánarsson bundumst samtökum um ađ ryđja ţví braut. Varđ ţađ ađ samkomulagi međ okkur, ađ máliđ skyldi boriđ fram viđ sjómenn međ ţeim hćtti, ađ Henty kallađi í loftskeyta- eđa talstöđina á bv Hannesi ráđherra, sem hann var loftskeytamađur á, og tilkynnti sjómönnum, sem til hans gátu heyrt, ađ hann hefđi mál fyrir ţá ađ leggja og vćru ţeir hvattir til ađ hlusta vel. Mitt hlutverk var svo ađ taka strax til máls og mćla međ stofnun dagsins. Undirtektir urđu ţegar í stađ svo góđar, ađ áfram var haldiđ og dagurinn stofnađur í bróđerni...”

(Sigurjón Einarsson, Sigurjón á Garđari. Endurminningar Sigurjóns Einarssonar skipsstjóra (Reykjavík 1969), bls. 241.)

“...Ţegar ég tek nú viđ lykli Dvalarheimilis aldrađra sjómanna, sem tákni ţeirrar vörzlu sem mér er ţar međ falin, ţá kemur mér í hug ađ ţessi lykill er á fleiri vegu táknrćnn, ţví ađ hann gengur ađ byggingu, sem er gerđ úr gulli, gulli okkar innri manns, gulli samstarfs og brćđralags, ţeirra kennda, sem mannkyniđ er ţví miđur of fátćkt af, en endist ţó bezt til fegurra og betra lífs. Mótuđ í fast efni er hér mannúđ og drenglund og um leiđ verđugur og gagnlegur minnisvarđi sjómannasamtakanna í Reykjavík og Hafnarfirđi...”. 

(Sigurjón Einarsson, Sigurjón á Garđari, bls. 251)

Kv,Sigurjón 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband