Leita í fréttum mbl.is

Samstöðufundur á Austurvelli í dag frá kl. 17:00 - 18:00

 

Ég hvet því alla sem láta sig þetta stóra mál sig varða og ættu allir að gera það, að mæta á Austurvöll.   Mikilvægt er að sýna fulltrúum erlendra fjölmiðla og öðrum ríkjum í alþjóðasamfélaginu að Íslendingar standa saman.

Ræðumenn á fundinum verða Elínbjörg Magnúsdóttir fiskverkakona, Einar Már Guðmundsson rithöfundur, Andrés Magnússon læknir og Jóhannes Skúlason frá InDefence-hópnum.

Boðið verður upp á tónlistarflutning á staðnum. Þar eru á ferð KK, Jónas Þórir, sem spilar á píanó, Egill Ólafsson og fleiri.

Egill Ólafsson verður fundarstjóri.

Engin þörf er á pottum og sleifum.

Facebook síða Barna Íslands.

Við hvetjum alþingi til þess að samþykkja ekki ríkisábyrgð miðað við núverandi Icesave samninga. Við erum ekki tilbúin að láta framtíð barna Íslands að veði.

Facebook síða InDefence.

Sýnum þingmönnum okkar, fulltrúum erlendra fjölmiðla og öðrum ríkjum í alþjóðasamfélaginu að Íslendingar standa saman. Við viljum sanngjarnan Icesave samning sem þjóðin getur staðið við.

 

Nokkur hundruð manns hafa staðfest komu sína hjá þessum tveim hópum í gegnum facebook samskiptasíðuna. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband