Leita í fréttum mbl.is

Fordæma verklag Kaupþings.

Neytendasamtökin fá ekki svar við ítrekuðum fyrirspurnum frá Nýja Kaupþing með hvaða hætti bankinn mun bæta tjón venjulegra viðskiptarvinna utan útrásarvíkinganna,

Hér setja ekki allir við sama borð að mati bankans hver það er sem fær leiðréttingu sinna mála.

Neytendasamtökin fordæma verklag bankans en bréfum þeirra hafa ekki verið svarað.

Samkvæmt niðurstöðu Neytendastofu og síðar áfrýjunarnefndar neytendamála braut Kaupþing lög um neytendalán með því að tiltaka ekki í lánaskilmálum með hvaða hætti vextir á gengistryggðum lánum væru breytilegir og við hvaða aðstæður þeir gætu breyst.

Þar sem málið var tæpt ár í vinnslu Neytendastofu og áfrýjunarnefndar töldu Neytendasamtökin fyrirséð að bankinn hefði undirbúið einhver andsvör, að einhver yfirlýsing myndi birtast frá bankanum, um það hvernig hann hygðist bæta lántakendum það tjón sem lögbrotin hefðu valdið,“ segir á vef Neytendasamtakanna í dag.

Neytendasamtökin sendu samtökin Nýja Kaupþingi erindi 1.október fyrir hönd lántakenda og óskuðu eftir upplýsingum um með hvaða hætti bankinn hygðist bæta lántakendum tjónið. Erindi var svo ítrekað 16. október. Enn bólar ekki á viðbrögðum bankans.

Fyrra erindið var sent á yfirmann lögfræðisviðs, yfirmann viðskiptabankasviðs og bankastjóra. Seinna erindið var sent beint á persónulegt netfang bankastjóra.

Enginn þessara aðila hefur séð tilefni til að svara. Neytendasamtökunum þykir ótrúlegt að banki í eigu ríkisins, banki sem gefur sig út fyrir að vera annt um hag viðskiptavina sinna, sjái hvorki tilefni til að svara erindum samtakanna, né senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld hafa komist að þeirri niðurstöðu að bankinn hafi gerst sekur um lögbrot.

Þar sem Neytendasamtökin eru nú orðin úrkula vonar um að þeim berist svar sjá þau sig knúin til að fordæma verklag bankans opinberlega,“ segir að lokum í pistli Neytendasamtakanna í dag.






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband