Leita í fréttum mbl.is

Jesús að drepa jólasveininn jólaskreyting í USA.

Ron hefur gert allt vitlaust í hverfinu sínu í Nipomo í Kaliforníu hann setti upp jólaskrautið í garðinn sinn. Þar sjást hinar hefðbundnu fígúrur jólaskreytinganna, Rúdolf, Jólasveinninn og Jesús Kristur í blóðugum bardaga.

Það fer fyrir brjóstið á nágrönnum að hann hafi stillt upp styttu af Jesú, sem heldur á tvíhleypu, og Jólasveinninn liggur dauður fyrir framan hann. Hreindýrið Rúdolf sést síðan myrt og bundið við húddið á bifreið Frelsarans.

Ron Lake hlustar ekki á vælið í nágrönnunum og segir uppstillinguna vera listrænan gjörning.

„Þetta er tjáning á minni bældu sköpunargleði,“ er haft eftir Lake í staðafjölmiðli auk þess sem hann segir þetta vera viss mótmæli gegn markaðsvæðingu jólanna.

Nágrannarnir sármóðguðu ætla þó ekki að gefast upp og hyggjast safna undirskriftum gegn gjörningnum.

 santa_jesus_bmp_280x800_q95.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Rauða ljón. Ég hef mikið hugsað um endingu á einni visu..Kaffisopinn indæll er, eykur fjör og skapið bætir..

Enginn kannast við endirinn og nú vil ég bara að vinir mínir sem kunna, botni þetta.

En annars bestu kveðjur og góða nótt.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 19.12.2009 kl. 21:41

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæl. Sigurbjörg.

Kaffisopinn indæll er
eykur fjör og skapið bætir
en langbest alltaf líkar mér
Lúðvíks Davíðs kaffibætir.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 19.12.2009 kl. 23:04

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Vantar víst joðið Sigurjbjörg.

Rauða Ljónið, 19.12.2009 kl. 23:07

4 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Takk vinur Sigurjón en nú er kella að fara í hátt.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 19.12.2009 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband