Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Á Hafnarfjörður að gefa Sól í Straumi 8 milljónir.

Á Ríkasta bæjarfélag landsins að gefa andstæðingum framfara 8 milljónir?

Sjá heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar.

Á "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar að samþykkja að veita samtökunum Sól í Straumi styrk að upphæð 8 milljóna króna til að koma til móts við kostnað vegna öflunar og úrvinnslu upplýsinga vegna fyrirhugaðrar stækkunar álbræðslunnar í Straumsvík, kostnaðar við að koma upplýsingum á framfæri við bæjarbúa, kostnað vegna fundarhalda og vinnslu og birtingar auglýsinga."

Af hverju tala allir vinstri menn um álbræðslu og líka bæjarstjórnin enda er hún vinstri sinnuð.  En það skal getið að við rafgreinum súrálið frá álinu en bræðum ekki ál.  Það er mikill munur á álbrðslu og Áliðjuveri.

ÁÞ


Framför.

Ég á mér þá sýn að fyrir íþróttarmenn í Hafnarfirði og Hafnfirskar æsku  og Hafnfirðinga að byggt verði stórt fjölnota íþrótta/sýningarhöll í bænum okkar fljótlega á næstu árum eða sem fyrst.  Með stuðningi öflugra fyrirtækja bæjarins eins og Actavis og Alcan og fleirri og þá aðilja sem eru í viðskiptum fyrir þessi fyrirtæki..

Svig. 


Framtíð iðnaðar/svæðisins í Hafnarfirði eða íbúðabyggð?

Miðað við skoðanakannanir á hinum ýmsu blogum um atkvæðagreiðslu íbúa Hafnarfjarðar um stækkun Alcans þá væri líklegt að fyrirtækið fengi ekki að stækka.  Í dag er að sjá að þessi munur er um 5-15% stækkunarandstæðingum í vil.  Net- atkvæðakosning er að mínu viti lítið marktæk enda hafa slíkar kosningar sýnt hina ýmsu smáflokka með ofurfylgi og Sjálfstæðisflokkinn sem smá flokk ef einhver dæmi séu tekin.

 

Nú verðum við sem viljum að gott fyrirtæki haldi áfram að eflast og dafna í bænum okkar að berjast fyrir tilverurétti fyrirtækisins. Ég tel að fyrirtækið Alcan á Íslandi fari eftir ströngustu skilyrðum í heiminum til að það fái að nútímavæðast.  Fyrirtækið er það öflugt í umhverfismálum að það fer létt eftir þessum leikreglum og gott betur.

 

Margir andstæðingar stækkunarinnar tala alltaf um eins og þetta svæði eigi að vera framtíðar íbúasvæði þegar álverið fer eftir 10-15 ár ef af stækkun yrði ekki.  Væri þá ekki gott að láta þá vita sem eru um þessar mundir að fjárfesta í iðnaðarlóðum á svæðinu ef þetta iðnaðarsvæði á síðan að vera íbúarsvæði eftir 1-2-3 áratugi.

 Nú þarf bæjarstjóri að skýra út fyrir okkur Hafnfirðingum hvort þetta iðnaðarsvæði eigi að verða eitthvað annað þegar fram líða stundir.

ÁÞ


« Fyrri síða

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband