9.2.2007 | 04:38
Orð til talsmanns Sólar í Straumi.
Sæll Sigurður Pétur.
Það sem særir okkur framfarasinna mest er stanslaus áróður ykkar afturhaldssinna á störf þeirra sem nenna að vinna og hafa migið í saltan sjó?
Þú eins og ég vitum vel þegar bágt ástand er á atvinnulífi þjóðar okkar? Þú manst líklegast eftir árinu 1996 þegar ég tók þig með mér á sjóinn til að kenna þér að míga í saltan sjó. Ég man vel þegar þú brosandi Pétur hafði fengið fyrstu reynslu sjómannsins og burðaðist með fullan svartan ruslapoka af humri í land.
Ég verð að segja að ég er farinn að verða þreyttur á þessu þvaðri þínu og vitleysu. Um daginn tjáðir þú þig um að ef Alcan stækkaði þá myndu öll börn í Hafnarfirði nánast drepast úr mengun.
Nú tel ég sé nóg komið þegar þú ásakar okkur starfsmenn að ganga erinda forsvarsmanna Alcans. Ég held að þú þekkir mig það vel að ég skrifa nákvæmlega um allt sem mér sýnist og berst af alefli ef mér og mínum er sýnt eitthvað óréttlæti. Mér er anskotans sama hvað fólk finnst um mín skrif því ég skrifa alltaf beint frá mínu hjarta og ýti á SEND takkann. Eini stíllinn sem ég hef breytt um er að ég er farinn að lesa einu sinni eða tvisvar yfir það sem ég skrifa.
Að lokum Sigurður Pétur. Hættu að sýna störfum okkar áliðnaðarmanna fjandsemi. Þú veist vel að ég og fleiri sem þú þekkir vel værum ekki búnir að vinna þarna í áratugi ef þetta væri svona fjandsamlegt, drullugt og ömurlegt eins og þið Sólarmenn staklist á ykkar áróðri. Vil minna þig á að álver er hátækni iðnaður.
Öll menntun mín til að geta skrifað þessar línur einn og óstuddur er Alcan að þakka. Eins og þú veist þá var skólaganga mín í Stýrimannaskólanum með herkjum. Eins og þú veist þá erfa sum börn verstu eiginleika foreldrana en með fullorðinsárunum þegar ró kemst yfir þá fer allt á betri veg.
Þú ert velkominn í kaffi hvenær sem er þannig að við getum tekið stöðuna. En ég fæ æluna upp í háls af þessari umræðu þar sem fólk er að nota þessa sjálfsögðu stækkun Alcans sem pólitískt skotvopn sér og sínum til framdráttar.
Nú er nóg komið af ómálenanlegri umræðu og skrifum. Ef rannsóknir sýna að stækkun Alcans skaðar ekki neitt í nálægðum byggðum álversins þá á að sjálfsögðu að stækka til hagsbóta framförum og hagsældar í Hafnarfirði.
Nútíma álver er hátækni iðnaður
Stækkum Alcan til hagsældar fyrir Hafnarfjörð.
Kveðja Á. Ö. Þórðarson.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál, Ferðalög, Lífstíll, Menning og listir, Sjónvarp, Tónlist, Tölvur og tækni, Vefurinn, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 04:56 | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Af mbl.is
Fólk
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
- Endurgerði þekkt kvikmyndaveggspjald buxnalaus
- Liam Payne borinn til grafar
- Elton John mætti allnokkrum kílóum léttari
- Fyrrverandi Playboy-kanína fær ekki aðgang að stefnumótaforriti
- Jarðarför Liams Payne í dag
- Vaknar grátandi af söknuði um miðjar nætur
- Náði botninum við dánarbeð ömmu sinnar
- Aldís Amah með hlutverk í Hallmark-jólamynd
Viðskipti
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
- Innherji: Frekari uppsagnir en nú tveir forstjórar
- Eigið fé er dýrasta fjármögnunin
- Skoða skráningu á Norðurlöndum
Athugasemdir
Hvað er hátækniiðnaður? hvaða skilgreiningu notið þið á hugtakinu hátækniiðnaður?
Ingi Björn Sigurðsson, 9.2.2007 kl. 10:31
Flott hjá þér Árilíus, svara fyrir sig.
Björn Kristjánsson (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 12:50
Ágæti Á. Ö. Þórðarson.
Ég undrast mjög viðbrögð þín við annars ágætri umfjöllun Sigurðar Péturs. Mjög ósmekklegt að leggjast svo lágt og fara í persónulegt hnútakast og vil minna á að menn skulu varast að persónugera hlutina eða taka þeim persónulega. Öll getum við haft ólíkar skoðanir og þið nefnið nú sjálfir að virða ber skoðanir annara. Gætum að okkur - aðgát skal höfð í nærveru sálar og oft má sagt (skrifað) kjurt liggja. Einbeitum okkur að viðra skoðanir okkar á faglegum rökum helst studdar tilvísunum, en látum persónulegar árásir eiga sig. Hafi menn ekki þol í að lesa skrif annara án þess að "fá æluna upp í háls" eins og þú skrifar, þá eiga menn að láta ógert að taka þátt í þessari annars fínu skoðanaskiptum. Lifðu heill. Kveðja Þorsteinn G.
Þorsteinn G (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 13:03
Sæll Þorsteinn G.
Það er deginum ljósara að þú hefur ekki lesið neitt af viðtölum og skrifum Sigurðar P. þó svo að þú haldir öðru fram ef einhver hefur haft persónulegt hnútukast og ómálefnalega ófaglega órökstudda umræðu þá er það Sigurður Pétur. Lifðu heill
Kveðja Ingi A.
Ingi A. (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 14:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.