13.3.2007 | 23:09
Tilgangur Kompásar um umfjöllun um álverið í Straumsvík
Margar spurningar sitja eftir í höfði manns eftir að hafa horft á þátt Kompásar með yfirskriftinni "Um stækkun álversins". Í kynningu kom fram að það ætti að fjalla um stækkun álversins frá báðum hliðum. Fljótlega kom í ljós að það var ekki tilgangurinn. Meiri hluti þáttarins fór í að ræða um starfsmannastefnu fyrirtækisins og umhverfismál með rangfærslum. Sem hlutlaus áhorfandi hefði maður ekki orðið mikið fróðari um kosti og galla fyrirhugaðar stækkunar álversins. Maður sat uppi með einhliða umræðu um hvernig fyrirtækinu er stjórnað og starfsmannastefnu þess. Tekin eru viðtöl við starfsmenn sem hafa yfirgefið fyrirtækið ósáttir og virðast eiga eitthvað óuppgert við það. Hvað með alla hina sem hafa starfað þarna í langan tíma og líkar vel. Af hverju fáum við ekki þeirra hlið málsins. Nei, heldur fá fullyrðingar eins og að Isal "falsi" upplýsingar um umhverfismál til að líta sem best út. Hvernig dettur mönnum í hug að birta svona án þess að grafast fyrir um málið. Isal mun aldrei geta "falsað" þessar upplýsingar. Umhverfisstofnun fer yfir allar mælingar hjá Isal ásamt því að kvarða tæki sem notuð er til mælinga. Isal er vottað af umhverfisstaðlinum ISO 14001 þar sem reglulega eru úttektir á fyritækinu og því vel fylgst með.
Annað dæmi er um fréttaflutningin því einu myndirnar af fyrirtækinu voru birtar þegar kerleki var. Mengunin sem var þá sýnd gefur ekki rétta mynd af álverinu. Af hverju er það ekki sýnt eins og það lítur vanalega út.
Fréttamaður Kompásar notaði svo allan sinn tíma til að drita sömu spurningum á Rannveigu þar sem spurt var um starfsmannastefnuna og vothreinsun. Hversu oft þurfti hún að svara þessu svo fréttamaðurinn myndi ná þessu. Nei það var eingöngu einn tilgangur og það var að ná höggstaði á fyrirtækið.
Svona fréttaflutningur er til háborinnar skammar og gefur áhorfendum stöðvar 2 kolranga mynd af álverinu. Á fólk ekki skilið að sjá hlutina eins og þeir eru. Að lágmarki skal gæta jafnræðis og forðast einhliða umræður.
Hafnfirðingar eru að fara að taka stóra ákvörðun eftir rúmar tvær vikur og þeir eiga ekki skilið svona fréttaflutning. Þeir eiga skilið að taka ákvörðun út frá kostum og göllum fyrirhugaðar stækkunar og út frá staðreyndum og réttum upplýsingum.
Það er alveg ljóst að ekki fengu þeir neinar upplýsingar um fyrirhugaða stækkun frá Kompási.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Lífstíll, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Athugasemdir
Stöð 2 ætti að skammast sín. Ég skil ekki fólk sem vill selja sig sem fagmenn í fjölmiðlun skuli drulla svona yfir sinn eiginn starfsheiður með svona vinnubrögðum. Hlutdrægnin var æpandi og stóra spurningin sem maður situr upp með eftir áhorfið, er fyrir hverra hagsmuni ganga þessir menn? Græðir Baugur Group eitthvað á því að álverinu í Straumsvík sé lokað?
PS: Það var ekki nóg með að þeir sýndu myndir þar sem reykur steig upp vegna kerleka, heldur beindu þeir oft aðdráttarlinsunni yfir húsin í nýju íbúðabyggðinni á Völlunum, þannig að álverið virtist í ógnarnálægð og gnæfa yfir byggðina. Joseph Göbels hefði verið stoltur af þessari myndvinnslu!
Sigurður J. (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 23:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.