16.3.2007 | 04:17
Horfum á framtíðina og látum aldrei afturhaldsöflin byrgja okkur sýn.
Komið þið sæl. Að skrifa um það sem er rétt og satt í rúma tvo mánuði um sama málefnið getur stundum tekið á. Undirritaður sem hér heldur á penna kann í sjálfu sér ekkert á þetta blog nema að skrifa eitthvað strax frá því sem honum liggur á hjarta og senda það. Undirritaður hefur fengið kvörtun yfir því hvers vegna hann skrifar svona harðort í garð Vg og tengir Sól í Straumi við þann stjórnmálaflokk. Undirritaður ætlar að reyna að lýsa sinni skoðun á því hvers vegna hann hefur verið með öll þessi skot á Vg.
Fyrir rúmu ári síðan var stofnuð síða sem heitir Staðreyndir og umræður um stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík Á sama tíma komu mjög ósvífin skrif í fjölmiðlum frá mörgum skrifbendum sem kölluðu okkur starfsmenn mörgum illum nöfnum sem ég treysti mér ekki er að hafa eftir hér. Öll þessi skrif gegn okkur starfsmönnum í álveri áttu það sameiginleg að þær voru undirritaðar af stuðningsmönnum Vg. Ef þið hafið aðgang að net-Mogganum þá getið þið örugglega nálgast þessar greinar. Við framfarasinnar létum margan óhróðurinn yfir okkur ganga og létum litlu svarað enda vann Vg góðan sigur í sveitastjórnarkosningunum síðastliðnum, mikið til út á kostnað starfsmanna Alcans með Ögmund í broddi fylkingar.
Nú er nóg komið og skora ég á Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Frjálslynda flokkinn að koma sterkir til og blása niður þennan sósíalíska afturhaldsama málflutning Vg og stuðningsmanna úr Sól í Straumi niður því ég man eftir drunganum hér í Hafnarfirði árið 1993 þegar 10% Hafnfirðinga gengu hér um atvinnulausir eftir Vinsri stjórnina 1988.
Málflutningur afturhaldsinnana í Vg er stór hættulegur og margra áratuga afturfarar til fortíðar. Hafnfirðingar munu sjá svarta Sól í Straumi ef kjósendur Íslands vilja láta Steingrím fá lyklavöldin í Stjórnarráðinu. Ef tekin er græna ímyndin af flokknum þá er ekkert eftir nema hinn argasti niðurrifs afturhalds sósialískur flokkur sem var vinnsæll hjá niðurrifs öflunum um miðja síðustu öld. Alþýðubandalagið sáluga barðist þó með hagsmuni verkafólks að leiðarljósi
Læt þennan fyrsta kafla af mörgum um umfjöllun minni á Vg nægja að sinni. Ég þekki margt gott fólk sem aðhyllist grænu stefnu Vg en það er mín skoðun að stefna flokksins er stórhættuleg fyrir framtíð landsins og barnanna okkar.
Sjáum ljósið kæru Hafnfirðingar og stækkum Alcan.
Kveðja Árelíus Þórðarson.
Stækkum Alcan já Takk.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Ferðalög, Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda, Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 09:29 | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Af mbl.is
Viðskipti
- Fréttaskýring: Hvaða vitleysu ertu að lesa?
- Greining á eignum hlutabréfasjóða
- Það er alltaf óvissa
- Mikið virði í Íslenskum verðbréfum
- Afkoma Haga styrktist á fjórðungnum
- Hagnaður Ölgerðarinnar dregst saman um 22%
- Erum rétt að byrja
- Hrönn stýrir Kríu
- Skuggagervigreind eykur líkur á árásum
- Ísleifur nýr forstöðumaður hjá Ofar
Athugasemdir
Lifi byltingin
Tómas Þóroddsson, 16.3.2007 kl. 08:30
Lifi bylting framfarasinnanna og guð hjálpi Íslendingum ef afturhalds öflin og Steingrímur fá lyklanna.
Jón Árnason
Jón Árnason (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 10:03
Hættið þið þessum skrifum Árelíus og Sigurjón skítugu verkamenn hjá auðhringnum Alcan.
???? (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 11:46
Takk (???.) . Stækkum Alcan já takk, Kv, Sigurjón ný kominn úr baði.
Rauða Ljónið, 16.3.2007 kl. 12:18
Sæll, Sigurjón !
Þótt við séum, á öndverðum meiði; að þá tekur út yfir allt, skrif ''????'' . Gæti hugsazt, Sigurjón, að við ættum eftir að hittast síðar, hvernig sem leikar fara, 31.III. nk. Þá er gott; að hafa hreina samvizku, eftir orðræður okkar, að undanförnu, persónulegt skítkast hefir ekki skemmt samskipti okkar, á nokkurn hátt, og er það vel. Sýnir a.m.k. einhvern þroska, og hugsun, vinnubrögð ''????'' eru fyrir neðan kjallaragólf.
Með beztu kveðjum / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 18.3.2007 kl. 16:08
Sæll,Óskar Helgi þó vð séum ekki á sama máli þá get ég ekki annað séð en við höfum gengið hreint í skrifum okkar á milli með, kveðju og virðingu, Sigurjón
Rauða Ljónið, 18.3.2007 kl. 19:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.