1.8.2009 | 18:17
Eva Joly fordæmir Breta og Hollendinga í Icesave.
Þetta segir Eva Joly í harðorðri grein sem birt er samtímis í Morgunblaðinu, norska dagblaðinu Aftenposten, breska dagblaðinu Daily Telegraph og franska stórblaðinu Le Monde um helgina.
Ísland mun hvorki geta greitt AGS né Bretlandi eða Hollandi
Þegar til kastanna kemur verður hvorki hægt að endurgreiða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum né Bretlandi né Hollandi. Lega Íslands er hernaðarlega mikilvæg og landið ríkt af náttúruauðlindum. Ef svo fer sem horfir mun aldurssamsetning íbúanna breytast og ungt, menntað fólk flytja úr landi. Þeir sem eftir verða munu eiga meira undir þeim sem hæst býður. Engum dylst aukinn áhugi Rússa á svæðinu, skrifar Eva Joly.
Ábyrgðarlaus afstaða AGS og ESB
Joly fer hörðum orðum um viðsemjendur Íslendinga í Icesave-deilunni og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að málinu, sem varði hagsmuni langt utan íslensku strandlengjunnar.
Ábyrgðarlaus afstaða sumra ríkja, Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart hruni íslenska efnahagskerfisins sýnir að þau eru ófær um að draga lærdóm af hruni þess samfélags sem Ísland var holdgervingur fyrir þ.e. samfélags óhefts markaðsfrelsis, einkum frjálsra fjármálamarkaða sem þessir sömu aðilar tóku þátt í að móta.
Norðurlöndin bregðast Íslandi
Hún sendir Norðurlöndunum tóninn og segir þau afreka það nú helst að bregðast ekkert við þeirri kúgun sem Ísland er beitt, nokkuð sem dragi úr trú manna á raunverulegan vilja þeirra til að veita Íslandi stuðning.
Barroso með hugan við eigin hagsmuni
Joly skýtur föstum skotum að José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og sakar hann um að hafa haft hugann við eigin kosningabaráttu í haust þegar hann kaus að styggja ekki helstu stuðningsmenn sína, Breta, þegar framkvæmdastjórnin hafi tekið skýra afstöðu með Bretlandi í málinu strax í nóvember.
Ef Evrópa og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn snúa ekki við blaðinu kann að vera að þau vinni sannkallað afrek: dragi land þar sem þjóðartekjur á hvern íbúa hafa verið með þeim hæstu í heimi niður á stig þeirra allra fátækustu.
Þá segir hún m.a. orðrétt:
Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, missti hér af gullnu tækifæri til þess að láta loks verkin tala.
Það voru Hollendingar og Bretar sem ákváðu einhliða að upphæð innistæðutryggingarinnar ætti að vera ekki aðeins 20 þúsund evrur fyrir hvern reikning, rétt eins og kveðið var á um í evrópskum og íslenskum lögum nokkuð sem þegar var ógerlegt fyrir íslensku ríkisstjórnina að standa við [...] heldur að upphæð 50.000 til 100.000 evrur, jafnvel hærri.
Það hversu mjög Brown hefur beitt sér gegn þessu smáríki er því ekki hægt að skýra á annan hátt en þann að hann hefur viljað ganga í augu eigin kjósenda og skattgreiðenda, fólks sem að sönnu varð fyrir miklu fjárhagstjóni og rétt er að halda til haga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Af mbl.is
Innlent
- Sjöunda gosið á Sundhnúkagígaröðinni
- Mjög alvarlegt ef Njarðvíkuræð gefur sig
- Beint: Landsvirkjun fjallar um raforkuöryggi
- Sýndu enn og aftur hversu megnugir þeir eru
- Úlfar: Heppileg tímasetning á gosinu
- Augu almannavarna á mikilvægum innviðum
- Hraun fór yfir Grindavíkurveg
- Él á Norður- og Austurlandi
Athugasemdir
Sæll kæri bloggvinur. Ég sé að við höfum báðir sett hugleiðingar um þessa dæmalaust dugmiklu konu. Sértu ávallt kært kvaddur
Ólafur Ragnarsson, 1.8.2009 kl. 19:33
Sæll. Félagi kannski hugsum við eins þegar kemur til hugsun um hag lands og þjóða við viljum þjóðinni sem mest og best á tillist til pólitísks þras á hverjum degi því allir vilja sína Lilju kveða.
Kv. Sigurjón Vigfússon
Rauða Ljónið, 1.8.2009 kl. 20:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.