Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
29.1.2008 | 17:06
Hlýnun jarðar hættir á næsta ári.
Eins og sjá má á samanburði við jörðina geta sólblettir orðið gríðarlega stórir.
Vísir.is greinir frá því í dag.
Þegar á næsta ári mun hlýnun jarðar byrja að snúast við. Og eftir nokkra áratugi hefst lítil ísöld sem mun vara í 45-65 ár. Hún mun valda fimbulkulda um mestallan heiminn.
Í Bretlandi verða veturnir til dæmis eins og í Síberíu. Þetta eru niðurstöður rússneskra veðurfarsfræðinga sem segja að þetta gerist þótt allar heimsins þjóðir hætti að blása frá sér góðurhúsalofttegundum.
Rússarnir eru nefnilega þeirrar skoðunar að gróðurhúsalofttegundir hafi ekkert með loftslagsbreytingar jarðar að gera, heldur séu það breytingar á virkni sólarinnar sem valdi henni.
Talsmaður rússnesku vísindamannanna er Khabibullo Abdusamatov, sem er yfirmaður Pulkovo geimrannsóknarstöðvarinnar í Sankti Pétursborg.
Niðurstöður sínar byggja rússarnir á fækkun sólbletta. Sólblettir eru dökkir að sjá vegna þess að þeir eru kaldari en umhverfið. Þeir geta orðið stærri um sig en jörðin og hafa mikil áhrif á virkni sólarinnar. Því fleiri sem þeir eru þeim mun meiri er útgeislun hennar.
Rússarnir sækja samlíkingu til hinnar svokölluðu litlu ísaldar sem stóð frá 1645 til 1715. Þá urðu gríðarlegir kuldar í Evrópu og Bandaríkjunum.
Abdusamatov segir að sannað sé að þá hafi sólblettavirknin aðeins verið einn þúsundasti af norminu. Þetta er að gerast aftur, segir hann.
Abdusamatov segir að árið 2041 verði sólblettir í lágmarki. Snörp kæling jarðarinnar hefjist því í síðasta lagi í kringum 2060. Næstu 65 árin verði ísöld. Með skelfilegum afleiðingum fyrir mannkynið.
Rússarnir eru síður en svo einir um þá skoðun að sólblettir hafi áhrif á veðurfar á jörðinni. Bradley E. Schaefer, prófessor við Yale háskóla skrifaði árið 1997 grein í tímaritið Sky & Telescope.
Þar veltir hann fyrir sér örlögum byggðar norrænna manna á Grænlandi. Hún lagðist af af óútskýrðum ástæðum. Um það leyti voru sólblettir í lágmarki. Grein sína kallaði Schaefer Sunspots that Changed The World.
Kv,Sigurjón Vigfússon
28.1.2008 | 23:14
Svartur dagur í sögu Akraness.
Bæjarstjórn Akranes berst fyrir því að halda lífi í fiskvinnslunni upp á Skaga, enda sannir Skagamenn þar á ferð en útkoman var svartur dagur fyrir Skagann því miður.
Nú hafa um 540 störf tapast á landsbyggðinni og arfleifðstörf er annað eins eða um 1080 störf alls þó svo að einhverjar henduráðningar verði er skaðinn er mikill fyrir útgerðarbæina kringum landið og landið sjálft og þetta er rétt að byrja.
Mikið gæfi ég fyrir það að Bæjarstjórnir sem hafa starfað í Hafnarfirði berðust líkan á sama hátt og Skagamenn, ekki nóg með það að þeir flytji atvinnu úr Firðinum eins og nýlegar kosningar bera með sér um 130 störf farin í járniðnaðinum úr bænum og til austur lands.
Heldur gáfu þeir kvóta Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar til Samherja á sínum tíma á árunum 1986 1988 þó svo að samningarnir kvæðu svo um að sú ákvörðun væri ekki einhliða um kvótann.
Kv, Sigurjón Vigfússon
Svartur dagur í sögu Akraness | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2008 | 17:47
Meirihlutinn í Reykjavík er tryggður.
Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri.
Þarf ekki á Margréti né Guðrúnu að halda.
Samkvæmt sveitastrórnalögum getur hann valið varamann.
Margrét Sverrisdóttir og Guðrún Ásmundsdóttir binda sig við fráfarandi meirihluta og verða þar með ekki varamenn samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Sveitarstjórnarlög 1998 nr. 45 3. júní
24. gr. Varamenn.
Varamenn taka sæti í sveitarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalfulltrúar þess lista sem þeir eru kosnir af falla frá, flytjast burtu eða forfallast varanlega á annan hátt eða um stundarsakir frá því að sitja í sveitarstjórn.
<!--[if !vml]--><!--[endif]--> <!--[if !vml]--><!--[endif]-->Nú er framboðslisti borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum og geta þá aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Yfirlýsing um slíkt samkomulag skal lögð fram á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar.
Ef þetta reynist rétt og reynt verður á lögin verður út koman þessi.
Sigurjón Vigfússon
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.1.2008 kl. 05:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2008 | 18:14
Nýr meirihluti í Reykjavík.
Nýr meirihluti í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur myndað nýjan meirihluta með Ólafi F. Magnússyni borgarfulltrúa Frjálslyndaflokksins. Nýr meirihluti hefur boðað til blaðamannafundar á Kjarvalsstöðum klukkan 19:00.
Frá þessu var gengið í dag en ekki er vitað hvernig skiptingu embætta verður háttað.
Kv. Sigurjón Vigfússon
10.1.2008 | 22:02
Stærsta rán Íslandssögunnar.
En eigum við heiðurmenn í sjómannastétt þá Örn Snævar Sveinsson og Erlingur Sveinn Haraldsson, til hamingju með Dóminn.
Örn Snævar Sveinsson og Erlingur Sveinn Haraldsson, eiga heiður skilinn fyrir að láta reyna á jafnræðisregluna með því að hefja veiðar án kvóta. Hæstiréttur Íslands stóð vörð um kvótakerfið en nú hefur Mannréttindanefnd Sameinuðuþjóðanna tekið í hnakkadrambið á óréttlætinu og ráninu og skikkar íslenska ríkið til að greiða sjómönnunum skaðabætur og koma fiskveiðistjórnun í löglegt horf.
Óska okkur öllum sem eru á móti gjafahvótakerfinu með dóm Mannréttindanefnd Sameinuðuþjóðanna.
Kv, Sigurjón Vigfússon
Íslensk stjórnvöld breyti fiskveiðistjórnunarkerfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó