Færsluflokkur: Bloggar
22.2.2007 | 05:44
Að kyngja ofan í sig skömmina?
Forustumenn Vg í Suðvestur kjördæmi hættir að tjá sig um álverið í Straumsvík. Okkar frábæra skákkona hefur ekki sagt stakt orð á blogsíðu sinni síðan 10 febrúar eða 3 dögum áður en listinn var kynntur.
Miðað við öll þau skrif sem Vg hefur látið frá sér sem sprengju til okkar starfsmanna á heilu ári þá skil ég vel þeirra afstöðu.
Ef Vg og Sól í Straumi vilja málefnalega umræðu þá mun undirritaður ekki skorast undan og hætta þessum álhausa kálhausaleik.
Eru Vinstri grænir og Sól í Straumi með þögn sinni að biðla til málefnalegra sáttar?
Eigi veit ég það en ég virði það að þeir kyngi ofan í sig skömmina miðað við þann lestur sem ég hef lesið í fjölmiðlum á síðasta ári.
Það er málefnalegt að segja stækkum Alcan JÁ TAKK.
Á. Örn Þórðarson.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2007 | 03:00
Mun barátta framfarasinna sigra afturhaldið?
Bæjarstjóri Kópavogs er framfarasinni þess vegna blogga ég þessa frétt við þennan tengil sem ég var nýbúinn að pikka inn.
Mikið er ég hissa? Það er eins og búið sé að slíta tunguna úr stórskotaliðssveit Vg og nokkrum liðhlaupum úr Sf.
Eftir mína yfirferð yfir Mogga bloggið þá má segja að tíðindalaust sé á vígstöðunum eitthvað sálfræðibull samt í gangi á Sólarsíðunni.
Það er búið að vera mjög gaman að vera þátttakandi í hersveit framfarasinna sem vill sjá fyrirtækið Alcan þróast og nútímavæðast. Á síðustu vikum hefur verið nóg að gera við að hrekja burtu staðlausa stafi úr orðum andstæðinganna.
Það er alveg á hreinu frá mínu hjarta? Við munum berjast til 31 Mars fyrir því að fyrirtæki með heimsárangur í umhverfis-öryggis og heilsufarsmálum fái að dafna. Ef við framfarasinnar töpum fyrir afturhaldinnu í þessu baráttumáli okkar þá verður svo að vera. En eitt er víst að við framfarasinnar ætlum að halda baráttunni áfram til 31. Mars og eigum eftir að eflast mjög fram á þeim tíma.
Fólk verður að skilja það að við framfarasinnar segjum að nú sé nóg komið að afturhaldsinnar kalli okkur öllum ónotarnöfnum. Sjálfur veit ég um hvað ég er að tala þar sem ég var einn af þeim fáu sem hóf þessa réttlætisbaráttu fyrir rúmlega einu ári síðan.
Svo til að undirbúa listsköpun mína fyrir framtíðina ef allt fer á versta veg langar mig að enda þetta á einu steypu ljóði.
Að bíða eftir stækkun Alcans
Ég vil ekki burt, Ég vil ekki burt. Hver veit hvurt, hver veit hvurt? Út í heim, út í heim. Þar sem enginn að kvöldi, fær um ferð mína spurt.
Ég finn lönd, ég finn lönd. Brosir strönd,brosir strönd. Svo hrynur það allt, ég er hnepptur í bönd.
Enn ég dvel, enn ég dvel. Allt ég fel, allt ég fel. Bíð hér aleinn í fjötrum sem skjaldbaka í skel.
Á.Örn Þórðarson.
![]() |
Skógræktarfélagið geri tillögu að samkomulagi við Kópavogsbæ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.2.2007 | 04:45
Óður til umhverfisfíkla frá umhverfissinna sem vill kraftmikið atvinnulíf og að virkjað sé í sátt við náttúruna.
Klettinn í fjallinu klaufstu í tvennt með kjarnmiklum ræðum og tárum. Það afl hefur Ómar okkur sent í dreyra frá jöklunum gráu.
Þú syngur og messar dag eftir dag með dásemd af sköpunarmætti. Það hlusta víst einhverjir á vonir þínar og brag og blessun frá umhverfisfíkla slætti.
Samt niða niður fossar tárfagrir öld eftir öld.uns örþreyttir strengirnir rofna.Að síðustu kom þitt kvöld. Þú hverfur í gljúfrið þitt dökkva.
Daga og nætur stend ég upp á stól og stari upp til hæða.Ég hlusta á umhverfið í vetri og sól viskunnar eilífu fræða.
Í fortíð og nútíð þú færir í eitt með fádæma haglegum ljóðum.Ekki fá aldirnar rödd þinni breytt né umbrot frá umhverfisvina þjóðum.
Fossrödd þín Ómar hljómar háttfrá umhverfissjónarmiðum. Alltaf er hjartað mitt opið á gátt frá hægri öfgasjómanninum.
Ég skora á umhverfisfíkla að ná sáttum við okkur framfarasinna. Þjóð sem keyrir fram af bjargbrúnni eftir að hafa slökkt á hagvaxtarvélinni verður ekki affarsæl í framtíðinni. Þjóðin á að halda áfram sínu kraftmikla atvinnulífi eða láta umhverfisfíklana ráða og telja fólki að affarasælast sé að loka sig af í dimmu herbergi og semja ljóð sem allir geta gert þegar aldurinn færist yfir og aukinn frítími myndast.
Kveðja Á. Örn Þórðarson.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 05:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2007 | 03:13
Guð hjálpi Hafnarfirði ef álverið í Straumsvík fær ekki að stækka? Hrikalega há fasteignagjöld og hæsta útsvar segir allt í dag?
Álverið er og mun ALLTAF verða einhverskonar máttarstólpi í atvinnulífi bæjarins okkar Hafnarfirði. Allir eru sammála um þessa fullyrðingu nema þeir sem aðhyllast afturhaldi eins og Vg og samtökin Sól í Straumi.
Undirritaður heldur því fram að við Hafnfirðingar verðum að samþykkja stækkun álversins í Straumsvík vegna þess að í álverinu eru borguð viðunandi laun og heimsmetsárangur hefur unnist í heilsu-umhverfis og öryggismálum.
Látum ekki Sól í Straumi og Vinstri- Græna Beita stjórntæki sem Sovétamenn beittu þegna sína hér á árum áður. En heilaþvottur og lýðskrum var þeirra beittasta vopn og sættist þjóðin í marga áratugi við allt orðagjálfrið.
Hafnarfjörður getur orðið öflugur bær ef stöndug fyrirtæki ná að vaxa og dafna í bænum okkar. Það er mín skoðun ef álversstækkunin verður blásin af þá verður þessi bær sem stjórnað er af vinstri mönnum, steindauður bær í marga áratugi.
Fólk eins og ég sem vill drifkraft í Hafnarfjörð mun flytja úr bænum. Margir munu segja farvel og er það besta mál. Eftir tíu ár klóra menn sér í rassinum og væla? Fyrst fór kvótinn síðan álið og loks fólkið sem nennir að vinna.
Nú eru bara vinnustaðir í Hafnarfirði eins og Bónus, fiskverkannir, matsölustaðir,/ skyndibitastaðir og aðrir staðir sem borga lág laun enda var Hafnarfjörður með eitt lægsta útsvar sveitarfélaga per mann á síðasta ári?Hátækni eitthvað, þekkingariðnaður eitthvað hækkar ekki útsvar Hafnarfjarðar per mann nema skrumverjar komi með skýrar tillögur hvað á að koma í staðinn.
Á Örn Þórðarson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.2.2007 | 22:00
Konudagurinn er í Dag.
Vill minna karlþjóðina að í dag 18.Feb er dagur konunnar og vonast eftir því að menn hafi munað eftir deginum og glatt sínar konur í tilefni dagsins.
Kv, Sigurjón Vigfússon
![]() |
Konudagurinn er í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 19.2.2007 kl. 09:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.2.2007 | 15:32
Á Þjórsársvæðinu, Búðarhálsvirkjun bráðhagkvæm rennslisvirkjun .
Búðarhálsvirkjun bráðhagkvæm rennslisvirkjun sem nýtir þær miðlunarframkvæmdir sem komnar eru á Þjórsársvæðinu, sjálfsögð virkjun. Ég er ekki á móti henni, ég styð hana að því gefnu að við þurfum á orkunni að halda til einhverra skynsamlegra nota. Neðri virkjanirnar í Þjórsá eru mjög hagkvæmar vegna þess að þær nýta alla miðlunina sem fyrir er ofar í Þjórsársvæðinu. Núpavirkjun og síðan Urriðafossvirkjun eru að vísu ekki án umhverfisfórna. Það þarf vissulega að fara vel yfir það, en að breyttu breytanda eru þær mjög eðlilegur virkjunarkostur áður en menn ráðast í ný og óröskuð svæði. Að fullnýta Nesjavallasvæðið, auðvitað, frekar en að fara í Brennisteinsfjöll eða Torfajökulssvæðið, að sjálfsögðu. Úr því sem komið er er einboðið að fullnýta svæði eins og Nesjavelli. Ég styð það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 04:51
Kraftmikið atvinnulíf framfarasinna verður að vinna bug á afturhaldi Vg
Komið þið sæl.
Það hefur alltaf verið mín skoðun að kraftmikið og fjölbreytt atvinnulíf gefi af sér betri velferð.
Ef stjórnmálaflokkur berst gegn fjölskyldum hundruða manna þá er hann ekki að hugsa um velferð í okkar landi. Ef stjórnmálaflokkur berst gegn því að fullfrískir menn hafi ekki vinnu sem honum er ekki þóknanlegur þá verður engin velferð.Hvernig á að fjármagna ókeypis skólamáltíðir, ókeypis leikskóla og ókeypis hitt og þetta þegar ráðist er á verkamenn þessa lands í ágætlega launuðum störfum. Ég hef heyrt að það sé stefna Hafnarfjarðarbæjar að hafa sem flest ókeypis og er það hið besta mál.
Hvernig á að vera hægt að hækka lægstu laun þjóðfélagsins hjá hinu opinbera og hjá launþegum í hinum almenna geira þegar ráðist er á störf fólks og fyrirtæki sem eru sjálfbjarga og falla og standa með sinni afkomu. Hvernig getur þjóðin eða við látið átölulaust að einn stjórnmálaflokkur öskri nánast daglega að fyrirtæki/fyrirtækjum í samkeppni að þau fái ekki að dafna og nútímavæðast þótt farið sé eftir öllum skilyrðum og leikreglum.Hvernig væri Ísland í dag ef einn stjórnarandstöðuflokkurinn hefði leitt ríkisstjórna síðustu 15 árin? Ég skal segja ykkur það! Stór hluti Íslendinga væru að tína hundasúrur upp á fjöllum. Ég er hissa og ekki ótrúlegt að tunga vefjist um tönn eftir lestur skrifta margra á netinu og hinum ýmsu fjölmiðlum síðustu vikna.Það er mín skoðun að í mínum bæ Hafnarfirði verða bæjarbúar að taka höndum saman og segja já við stækkun álversins eftir að hafa kynnt sér allar leikreglur sem settar eru fyrir stækkun.
Á Örn ÞórðarsonBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vinstri Grænir og Sól í Straumi vilja að Hafnarfjarðarbær greiði kosnað af áróðurherferð sinni gegn starfsmönnum Alcan.
Árið 2006 var farþegaflutningur um Keflavíkurflugvöll 2.019,470 fjöldi farþega. Samkvæmt meðaltali á CO2 á farþega er meðal losun ca., miða við fluglengd til Ísalands er heildar losun þá 14.1329.000 fjórtan milljónir eitthundrað tuttugu og níuþúsund tonn af CO2 vöruflug losar 60.000 þúsund tonn eða um 360.000 tonn af CO2 sem samsvarar í flugi 14,492.900 fjórtan milljónir fjöðurhundruð níutíu og tvöþúsund og níuhundruð tonn af CO2 innanlandsflug var með 805.355 farþegar árið 2005 um 300.0000 tonn losun á CO2. Gera má ráð fyrir að flugsamgöngur til og frá og innanlands 2006 og Hnattræn losun Íslendinga er því um 14.792.900 fjórtán milljónir sjöhundruð nítíu og tvöþúsund og níuhundruð tonn af CO2 sem er á við 9,860.000 tonna framleiðslu af Áli níu millilón tonn áttahundruð og sextíuþúsund tonnum eða sem samsvarar 55 Álverum eins og Alcan er í dag.
Farartæki og flutningar þar sem Ál Grænim málmurinn er notað dregur það mikið úr losun á CO2 vegna léttleika mjálmsins, Sjá grein í mbl. Bls 40 11.2.2007
Að 180 þús tonna Álver eins og Alcan sparar því Hnattræna losun á CO2 um 720 þús tonn, á ári.
Kv,Sigurjón Vigfússon, Stækkum Alcan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eru Sól í Straumi stjórnmálaflokkur í dulbúningi Vg?
Þau sem skipa tvö efstu sætin hjá Vg eru annálaðir stuðningsmenn Sólar í Straumi, sjá heimasíðu þeirra.
Þau sem skipa 3 og 7 sætið á lista Vg eru stjórnarmenn hjá Sól í Straumi.
Svo vill þetta ágæta fólk fá fjárstuðning frá okkar fjárvana bæ upp á tæpar 15 milljónir króna til að halda áfram áróðri sínum fyrir Vg? Lesið síðuna hér fyrir neðan.
Þegar stórt er hugsað verður maður hneykslaður. Hvað munu bæjaryfirvöld í Hafnarfjarðar gera?
Ég tel að öll samtök sem berjast á móti framförum eigi að hafa fólk innan sinna raða sem eru ekki að skipa sæti á lista stjórnmálaflokka.
Ég neita að bæjaryfirvöld styrki pólitísk samtök um 15 milljónir króna. Ég trúi ekki öðru en að flestir Hafnfirðingar séu sammála mér nema þeir sem eru innmúraðir við Sól í Straumi.
Á. Ö. Þ.
![]() |
Framboðslistar VG á höfuðborgarsvæðinu samþykktir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.2.2007 | 17:47
Vinstri Grænir heimta 14.9 milljónir ? út úr Hafnarfjarðarbæ.
Þann 13. febrúar 2007
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvartar yfir bókun Sjálfstæðisflokksins vegna andstöðu hans við beðni um styrkveitingu til andstæðinga stækkun Alcans og segir þar meðal annars.,, Annars vegar er um að ræða hóp fólks sem unnið hefur í sjálfboðavinnu. Það er sýn Vinstri grænna að þennan aðstöðumun beri að jafna út af fremsta megni og áréttar að stórmunur er á fjárhagsáætlun Alcan vegna stækkunarinnar og Sólar í Straumi. Bæjaryfirvöldum ber skylda til að jafna þennan aðstöðumun. En fremur er sagt. ,,Það er því nauðsynlegt að bæjaryfirvöld sjái sóma sinn í því að styrkja myndarlega frjáls félagasamtök.
Þann 11. janúar 2007 lagði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir fram tillögu og hljóðar svo.,, Á fundinum í dag lagði ég fram tillögu um að bæjaryfirvöld styrki áhugasamtökin Sól í Straumi. Tillagan var ekki tekin til efnislegrar umræðu heldur frestað til næsta fundar. Vona ég svo sannarlega að bæjarráðsmenn sjái hag Hafnfirðinga í því að styðja fjárhagslega við bakið á Sól í Straumi til að þau geti haldið sínu góða starfi áfram og stigið næstu skref. Upphæðin er svo. ,, Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir því að veita Sól í Straumi styrk að upphæð 8 milljóna króna.
Þann 15. janúar leggur svo Sól í Straumi aðra tillögu um enn frekari styrk. Sem Hljóðar svo.
,, . Nú í morgun lagði Sól í Straumi fram umsókn um styrk til Hafnarfjarðarbæjar. Umsóknin miðast við kynningu á málstað Sólar í Straumi fyrir bæjarbúum í Hafnarfirði fram að kosningu um málið. Í kostnaðaráætlun hópsins er gert ráð fyrir framhaldi á borgarafundunum sem haldnir hafa verið í vetur, aðkomu sérfræðinga að þeim fundum, útgáfu á prentuðu efni og dreifingu á því, auglýsingum, gerð teikninga og mynda af framtíðarskipulagi Straumsvíkursvæðisins, dagsferð fyrir Hafnfirðinga að virkjunarsvæðunum á Reykjanes og Þjórsá og öðru kynningarstarfi. Áætlun Sólar í Straumi gerir ráð fyrir heildarútgjöldum að upphæð 6.915.000,- með vsk. og hljóðar umsóknin uppá þá upphæð. Umsókn Sólar í Straumi er lögð fram í trausti þess að Hafnarfjarðarbær vilji að öll sjónarmið í stækkunarmálinu komi fram. Með mikilli sjálfboðavinnu kjarnahópsins og elju þeirra íbúa bæjarins sem bætast vilja í hópinn telur Sól í Straumi að fyrir þessa upphæð takist hópnum að kynna sín sjónarmið fyrir bæjarbúum.
Samtals er verið að reyna að ná út úr Hafnarfjarðarbæ 14,9 milljónim króna.
Ég get ekki séð að áhuga hópar sem vilja vinna í sjálfboðavinnu hver sem sá hópur er eigi að fá fjármuni úr bæjarsjóði ef svo er hefur sjálfboðavinnan beytts í gróðrastíu.
Kv, Sigurjón Vigfússon
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó