Færsluflokkur: Bloggar
26.2.2007 | 12:43
Vinstri Grænir taka upp stefnu Alcans ?
Vinstri Grænir taka upp stefnu sem er samhljóma kjarasamningi hlutaðeigandi verkalýðsfélaga og SA/Alcan
Landsfundur VG samþykkti stjórnmálaályktun á landsfundi sem fór fram um helgina.
Stjórnmálaályktun í átta liðum stærsti hluti ályktunar mætti halda að væri tekin beint upp úr kjarasamningi
verkalýðsfélaganna og SA/Alcan félagslega hlið samningana.
Ályktun V.G . í umhverfismálum Alcan fékk fyrst fyrirtækja vottun í umhverfismálum á Íslandi Iso 14001.
og vinur markvíst að þeim málaflokki, meðal starfsmanna er öryggis- og umhverfisvitund meiri en þekkist
í öðrum fyrirtækjum hér á landi.
Ekki er til í kjarasamningi hér launalegt misrétti heldur algjört launajafnrétti, nú er liðin á annar áratug sem algjört
jafnrétti var samið um milli Alcan og verkalýðfélagana sömu laun algjört launajafnrétti. Einnig er hér engin
launaleynd, starfsmennn taka laun eftir kjarasamningi og er þar allt á upp á borðinu.
Jafn margir kvenmenn og karlmenn eru í stjórn Alcan .
Menntun Alcan er fyrst fyrirtækja sem rekur skóla Stóriðjuskóla sem samið var um fyrir meira en 10 árum.
Starfsmenn fá fríar ferðir til og frá vinnu sem er bæði orkusparndi og umhverfisvænt, einnig eru margir sem
hjóla og þó nokkrir ganga til og frá vinnu því búið er að leggja göngu og hjólreiðastíg frá áverinu.
Svo ef þið haldið að þið hafið fundið upp umverfismál þá vaðið þið í villu, þið ættuð þið að koma í
heimsókn til okkar og læra því við höfum reynslu þekkingu og færni
Samkvæmt fréttum kom einn á hjóli á landsfundin ykkar hinir allir á bílum.
Ég hvet V.G. eindregið til að vera samstiga starfsmönnum Alcans og Alcan í raun í hnattrænum
umhverfismálum., það voru við sem fyrstir ruddum brautina í þeim málaflokki.
Við eigum samleið í álinu. Með grænan málm framleiddan með grænni orku.
Hver er grænn?
Steingrímur J. Sigfússon sagði, ,, þetta er einhver magnaðasta samkoma sem ég hef verið á .
Það er alveg rétt hjá Steingrími og er ég sammál honum um það að ná inn í stjórnmálaályktun
hluta af stefnu verkalýðsfelagana og stefnu Alcans er að hinu góða fyrir landsmenn.
,, Það er magnað,
Kv, Sigurjón Vigfússon Stækkum Alcan já takk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.2.2007 | 03:58
Jafnrétti kynjanna í launum er hjá Alcan. Nú verða allir framfarasinnar að standa saman.
Vegna þess hvað Alcan er góður vinnustaður með 100% umgjörð hvatti ég dóttur mína að sækja um sumarstarf hjá fyrirtækinu sem hún gerði enda séð það í tíu ár á andliti föður síns hvað hann er ánægður. Samt er aldeilis óvíst hvort hún fær vinnu hjá fyrirtækinu þar sem 500 til 2000 umsóknir berast um sumarstörf á hverju ári. Sumarfólk sem kemur fyrsta sumarið biður um að fá að koma aftur og aftur. Ef það stendur sig vel í vinnu og mætir vel þá er það með öruggar tekjur sem fleytir því áfram allt skólaárið og þarf ekki að biðja mömmu og pabba um pening næstu árin.
Launamisrétti kynjanna hefur verið mikið til umræðu í þjóðfélaginu en hjá Alcan þekkist það ekki þar sem bæði kynin eru með sömu laun miðað við starfsaldur.
Þetta verður líklegast mín síðasta færsla í vikutíma þar sem ég fer af landi brott að heimsækja litla bróður sem er orðinn meiri dani en íslendingur. Að sjálfsögðu mun ég reyna að rita eitthvað á hans danska lyklaborð. Að vikutíma liðnum, endurnærður mun ég koma tvíefldur til leiks með lyklaborð í hendi og taka lokaslaginn þannig að gott fyrirtæki fái að vaxa og dafna.
Fylkjum liði? Allir þeir sem vilja Hafnarfirði allt hið besta? Sigrum þessa fáránlegu íbúakosningu sem er vissulega óígrunduð þar sem ég á einn bróður sem er listamaður og stuðningsmaður Vg. Á milli okkar fer yfirleitt allt í háaloft ef við ræðum okkar skoðanir, annars erum við bestu vinir og þykjum vænt um hvorn annan.
Eitt ljóð að lokum.
Rauður hnefi, sindrandi sprengja.
Leggur Hafnarfjörð í rúst.
Rauður hnefi, ræðst að starfsmönnum Alcans.
Vil horfa þrjátíu ár til fortíðar.
Rauður hnefi, lætur reiða til höggs.
Varnarlausu starfsfólki.
Rauður hnefi er ekki miskunnarlaus.
Hann slítur sundrar og myrðir.
Nú lætur fósturjörð fagurt í eyrum.
Rauður hnefi er tákn rauðsokkuástar?
Kveðja.
Á Örn Þórðarson.
![]() |
Hvetja Hafnfirðinga til að samþykkja stækkun álvers |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.2.2007 | 01:49
Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar kastar skít yfir forstjóra og starfsmenn Alcan? Er þetta eðlilegt af manni í hans stöðu?
Mikið hatur virðist hinn ómálefnalegi framkvæmdastjóri hafa á hinum ágæta forstjóra fyrirtækisins Alcan á Íslandi. Ég hef aldrei heyrt annað eins orðaflum frá nokkrum framkvæmdastjóra þingflokks stjórnmálaflokka fyrr og síðar gegn fyrirtæki,starfsmönnum og stjórnendum. Eins og þessi einstaklingur hefur gubbað út úr sér á síðustu vikum. Finnst Ingibjörgu Sólrúnu þessi málflutningur framkvæmdastjóra síns eðlilegur og eru þetta línunar sem við landsmenn megum vænta frá SF í kosningabaráttunni framundan?Það er alveg á hreinu að við Alcan starfsmenn ætlum ekki að sitja þegjandi yfir þessum ósköpum og munum berjast fyrir tilverurétti fyrirtækis sem borgar þó lífsvæn laun þótt vissulega vilji allir meira.
Hér fer brot úr reiði framkvæmdastjórans.
..Álkan að það var ekki snjallt að kaupa atkvæðin alveg blygðunarlaust. Það þyrfti greinilega að fara fínna í þetta.Og það hefur Álkan greinilega ákveðið að gera því núna er herferðin orðin "maður á mann" herferð þar sem hver kjaftur er nýttur til hins ýtrasta. Álkan hefur líka borið víurnar í fyrrverandi starfsmenn, það á að ræsa alla út sem vettlingi geta valdið. Álkan er staðráðin í að fá JÁ frá Hafnfirðingum. Álkan er búin að setja niður fyrir sér nokkrar leiðir að settu marki - þær eru mis áberandi og kosta mis mikið af peningum og vinnu. Þetta er spurning um verðmiðann á Hafnfirðingum og aðferð við að ganga frá kaupunum.Álkan á nóg af peningum og ræður eins marga og þarf til að þjarma að kreista Já út úr bæjarbúum. Þessi áróðursdeild - þetta er auðvitað viðbót við öll hin fjölmörgu afleiddu störf!?
Á.Ö.Þ
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.2.2007 | 18:18
Mikill bílafloti Vinstri Græna veldur mengun
Landsfundi Vinstrihreyfingarinnar á Grand Hóteli
Magnús Bergsson gat þess að mikill bílafloti hefði verið fyrir utan hótelið og í framhaldi spurði hann hvað margir hefðu komið gangandi á fundinn. Varð fátt um svör. Þá spurði hann hve margir hefðu tekið strætisvagn og fékk sömu viðbrögð. Í ljós kom að hann var sá eini sem hafði komið hjólandi á fundinn en nánast allir réttu upp hönd þegar hann spurði hve margir hefðu komið á bíl.Ég held að við ættum nú að líta okkur aðeins nær og ekki aðeins tala um hlutina heldur líka framkvæma þá,
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.2.2007 | 13:41
Golíat ber á Hafnfirskuverkafólki.
Hluti Samfylkingarinnar og Vinstri Grænir hafa flétta saman strengi ásamt sértrúarsöfnuðum Sól í Straumi markmiðið þeirra er að koma höggstað á verkafólk sem vinnur hjá Alcan með allri þeirri áróðurs velum sem þeir hafa komist yfir leikurinn er afar ójafn og í óhag verkafólks og starfsmanna Alcan þessir aðiljar hafa haft greiðan aðgang að öllum fjölmiðlum til að koma óhróðri sínum á framfæri þar sem Golíat ber sífelt á Davíð litla starfsmönnum Alcan.
Fyrir nokkrum dögum komu þeir saman í húsnæði sem Hafnfiskverkafólk byggði á sínum tíma og fjármagnaði með sínum sköttum og striti til að geta barið á verkafólki sem starfar hjá Alcan.
Þar var aðalræðumaður kvöldsins Jón Baldvin og flutti hann Sovétskaræðu í anda kaldastríðsins þar vitnaði hann í ýmsar tölur sem gjarna voru notaðar í fimmára áætlunin,, segir meðal annars að auðhringurinn hafi þegar eytt 80-100 milljónir í kynningar Jón virðst vera með bókhald Alcan við hendina hversu undarlegt sem það er.
Og svo segir ,,hér verða til fleiri störf á ári en sem samsvarar starfmönnum álvarsins. Starfsmenn Alcan eru um 500 sé þetta rétt hjá Jón er hér um að ræða, álvarið er fjörutíu ára þetta eru því samkvæmt fimmár áætlunin rúm 20.000 þús. störf íbúar Hafnarfjarðar eru nú 23.000 þús. undarlegur talnaleikur .
Og ekki tekur betra við ,, hótanir Álversins Alcan hefur ekki hótað einu né neinu hér eru ósannindi á ferð í anda Sovéskan áróður .
Á sama tíma sem Sovéskaræðan var flutt var verið að segja um 25 störfum hjá Marels í hagræðingarskini að sögn Marels það eru slæmar fréttir, en hvað með Engeyina hún var flutt úr landi þar tapast störf einig og hverju svaraði Actavis um framleiðslu á lyfum fyrir Íslenskan markað við förum með störfin út þessi dæmi eru um það þegar fyrirtæki þurfa að hagræða hjá sér til að vera betur búin undir samkeppni það virðist vera í lagi hjá þessum flokkum ekkert mál heyrist ekki ops!! þegar fólk missir vinnuna.
Alcan vill hinsvegar hagræða hjá sér auka þar með starfsmanna fjöldann og þar skapast störf það fordæma þessir flokkar þá er allt ómögulegt, störf sem verða til eru áætluð 346, óbein og afleidd 830 samtals 1.176 þetta er það sem Golíat er á móti hann vill berja á Davíð litla starfsmönnum Alcan áfram.
Það fer sumum betur að kljúfa við í Selárdal.
Kv. Sigurjón Vigfússon
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Einn er sá maður sem hamast stanslaust á Alcan. Sá maður er upplýsingafulltrúi BSRB og hægri hönd oddvita Vg í Suðvestur kjördæmi.
Ég er sammála færslunni hér að neðan.
Á vefritinu Deiglunni þann 20.11. 2006 er hægt að lesa eftirfarandi.
Á heimasíðu BSRB má sjá að Sigurður Á Friðþjófsson er upplýsinga og fræðslufulltrúi BSRB. PR-maður eins og það heitir á silkijakkafatamáli. Hvernig stendur á því að starfsmaður BSRB er að vinna fyrir þingmanninn Ögmund Jónasson? Eru allir greiðendur nauðungargjalda BSRB sáttir með það að fé þeirra sé eytt í pólitískan áróður fyrir Ögmund og Vinstri Græna? Í nýjasta fréttabréfinu er deilt á Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra, bankanna, Ísrael og fleira. Ég efa það að allir félagsmenn BSRB séu sammála þessum sjónarmiðum. Fyrst Ögmundur notar PR mann BSRB án þess að skammast sín, hvar stoppar hann þá? Hversu mikið af vinnu BSRB og Vinstri Grænna má tengja saman að hans mati? Ögmundur er gjarn á að segja frá að hann taki ekki krónu fyrir störf sín fyrir BSRB. Það má vera og göfugt er það. Stundum er samt betra að fá annað en krónur og aura.
Svo eru það sjónarmið hvers og eins hvort mönnum þyki þetta eðlilegt?
Á.Ö.Þ
Bloggar | Breytt 24.2.2007 kl. 19:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2007 | 15:39
Stétt gegn Stétt.
Umræðan um stækkun Alcan tekur á sig ýmsar myndir í fjölmiðlum nú á þessum dögum en það sem undarlegast er í þessari umræðu er sannleikurinn og að fara rétt með staðreyndir í þessu máli það fer að mestu neðangarðs í málflutningi anstæðinga stækkunar flestar þær tölur sem notaðar er í teknar úr samhengi og einungis notað þar er helga meðalið hverju sinni án tillits til málefnislegs málflutnings né ígildis talna eins og dæmin sann, Pabba drengurinn af vestan gat ekki farið með réttar tölur á fámennum fundi í Bæjarbíó einu sinnu, síðan er honum hælt fyrir þetta bæði af Ómari Ragnarssyni sem fyrir nokkrum dögum sagði ekkert sjá að fyrirstaða væri fyrir að virkja í neðri hluta Þjórsá í sama streng tekur Sigurður Á. Friðþjófsson, hjá BSRB.
Nú er svo komið að hluti Samfylkingarinnar og Vinstri Grænir hafa slegið saman strengi eða sá hluti Vinstri græna sem eru æviráðnir hjá ríki og bæ þessir tveir hópar, sem vita ekki hvað atvinnuleysi er eða það að missa vinnuna er, eða þau mannréttindi eru að eiga rétt á vinnu er. Þegar atvinnifyrirtæki mega ekki þróast í eðlulegu starfsumhverfi er orði bannorð þá verður hnignun hjá þessum fyrirtækjum og að lokum daga þau uppi og fólk missir vinnuna, hjá þessum flokkum virðist það vera hið besta mál en það kemur fram í málflutningi þeirra sí og æ.
Með þessu er verið að ráðast sífellt á starfsmenn og verkafólk hjá Alcan með slíku ofstæki að annað eins hefur aldrei gerst í Íslandssögunni, síðan hneykslast þessir sömu flokkar á Frjálslindaflokkinum þegar hann ræddi um erlent farandverkafólk og ásakaði flokkinn um rasistma en stunda þá sömu iðju gagnvart starfsfólki og verkafólki hjá Alcan.
Kv.Sigurjón Vigfússon
Bloggar | Breytt 24.2.2007 kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.2.2007 | 11:14
Hlíf skorar á Hafnfirðinga
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Hlíf mælir með stækkun álversins í Straumsvík og skorar á Hafnfirðinga að greiða stækkun álversins í Straumsvík atkvæði sitt í væntanlegri skoðanakönnun og renna með því styrkari stoðum undir atvinnulífið í bænum.
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Hlíf mælir með stækkun álversins í Straumsvík og skorar á Hafnfirðinga að greiða stækkun álversins í Straumsvík atkvæði sitt í væntanlegri skoðanakönnun og renna með því styrkari stoðum undir atvinnulífið í bænum. Á fundi sem haldinn var í Verkalýðsfélaginu Hlíf síðastliðinn miðvikudag var samþykkt ályktun um málið. Þar segir að Hlíf mæli "með fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík í allt að 460.000 tonna framleiðslugetu á ári, enda verði þar settar upp bestu mengunarvarnir sem völ er á hverju sinni". Þrátt fyrir að álframleiðsla Alcan í Straumsvík meira en tvöfaldist eftir stækkunina verða loftgæði, með tilliti til heilsu fólks og mengunar gróðurs og jarðvegs, undir öllum mörkum sem sett hafa verið innan sem utan lóðarmarka álversins. "Fundurinn skorar á Hafnfirðinga að greiða stækkuninni atkvæði sitt í væntanlegri skoðanakönnun og renna með því styrkari stoðum undir atvinnulífið í bænum."
Kv,Sigurjón Vigfússon
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.2.2007 | 01:26
Nútíma álver er ekki sama og álver fortíðarinnar?
Eins og ég hef áður sagt þá mengaði álverið hjá Alcan margfalt meira á fyrstu árum starfseminnar en það gerir nú. Mjög mikið er lagt upp úr því að minnka mengun eins og kostur er, og stefnan er með nútímatækni að reyna að útrýma henni eins og hægt er. Ég tel að mengun álvera verði lítið vandamál í nánustu framtíð. Sjá blogið fyrir neðan.
Álver í dag miðað við mengun og starfsskilyrði er ekki sama og álver fortíðarinnar. Það er gott að vinna í álveri og flestum eða öllum líður þar vel.
Að tala um einhvera mengun í dag miðað við á fyrstu árum álvera er hlægilegt og hjákátlegt.
Fyrir 20 árum keyrðu menn oft í gegnum mengunarský en í dag sjáið þið ekki þessa mengun sem þið eruð sífelt að tönglast á.
Fólkið sem vinnur þarna líður vel, hefur allt til alls og sáralítil hreyfing er á fólki í önnur störf þótt þenslu ástandið sé mikið. Á síðustu árum hefur fólk þurft að bíða í marga mánuði eða árum saman til að fá vinnu hjá Alcan.
Það er hrikalegt að þurfa að sitja undir þeirri umræðu sem nokkur þúsund manna, starfsmanna,birgja,fjölskylda og allra þeirra sem hafa allt undir að þessi starfsemi fái að blómstra. Neikvæð umræða sem oftast virðist byggð á fordómum en rökum hefur vissulega áhrif og setur illt blóð í okkur sem vinnum á mjög góðum vinnustað og líður vel, höfum mannsæmandi laun sem er ekki hægt að segja um allt þjóðfélagið.
Ég segi! Guð hjálpi Hafnarfirði og öllum þeim sem berjast fyrir því að fyrirtækið fái ekki að nútímavæðast og dafna.
Stækkum Alcan fyrir hagsæld Hafnarfjarðar.
Á. Ö. þ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2007 | 14:26
Nagladekk menga meira en 400 þúsund tonna álver?
Athuganir í Evrópu leiða í ljós að svifryksmengun hvers konar spillir heilsu meira en önnur loftmengun. Þetta segir Þór Tómasson, efnaverkfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Slík loftmengun komi helst frá umferð og nagladekkjum sem fræsa upp malbik. Þór segir að svifrykið geti valdið kvillum í öndunarvegi óháð innihaldi en menn beini einnig sjónum að samsetningu þess.
Þór segir að heilsuspillandi loftmengun frá álverum sé hverfandi og verulegar framfarir hafi orðið við þróun þurrhreinsibúnaðar síðustu tíu til fimmtán árin. Þannig sé flúorsmengun 400 þúsund tonna álvers minni nú en frá 30 þúsund tonna álveri fyrir 30 til 40 árumViðtal á útvarp Sögu.
Kveðja Á.Ö.Þ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 87223
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó