Leita í fréttum mbl.is

Upplýsingafulltrúi verkalýðsforingja og þingmanns hamast á fyrirtækinu Alcan.

Einn er sá maður sem hamast stanslaust á Alcan.  Sá maður er upplýsingafulltrúi BSRB og hægri hönd oddvita Vg í Suðvestur kjördæmi.

 

Ég er sammála færslunni hér að neðan.

 

Á vefritinu Deiglunni þann 20.11. 2006 er hægt að lesa eftirfarandi.

 

“Á heimasíðu BSRB má sjá að Sigurður Á Friðþjófsson er upplýsinga og fræðslufulltrúi BSRB. PR-maður eins og það heitir á silkijakkafatamáli. Hvernig stendur á því að starfsmaður BSRB er að vinna fyrir þingmanninn Ögmund Jónasson? Eru allir greiðendur nauðungargjalda BSRB sáttir með það að fé þeirra sé eytt í pólitískan áróður fyrir Ögmund og Vinstri Græna? Í nýjasta fréttabréfinu er deilt á Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra, bankanna, Ísrael og fleira. Ég efa það að allir félagsmenn BSRB séu sammála þessum sjónarmiðum. Fyrst Ögmundur notar PR mann BSRB án þess að skammast sín, hvar stoppar hann þá? Hversu mikið af vinnu BSRB og Vinstri Grænna má tengja saman að hans mati? Ögmundur er gjarn á að segja frá að hann taki ekki krónu fyrir störf sín fyrir BSRB. Það má vera og göfugt er það. Stundum er samt betra að fá annað en krónur og aura.”

 

Svo eru það sjónarmið hvers og eins hvort mönnum þyki þetta eðlilegt?

 

Á.Ö.Þ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.A.Ö.Þ

Sigurður Á Friðþjófsson upplýsinga og fræðslufulltrúi BSRB. misnotar aðstöðu sem starfsmaður BSRB og er skósveinn Vinstri Græna þetta er það sem má lesa á síðuni hans og Ögmundur segir honum fyrir ég held að þetta sé rétt hjá þér .

Jón Árnason

Jón Árnason (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 21:44

2 identicon

Sæll A.Ö.Þórðarson

Ég er hjartanlega sammála að Sigurður Á Friðþjólfsson upplýsinga og fræslufulltrúi BSRB sé málpípa afturhaldsinas Ögmundar og VG.  Verkalýðshreyfingin á að styðja kröftugt atvinnulíf en ekki að rífa allt níður eins og VG gerir.  Mér finnst það liggja í augum uppi að leyfa þekkingarfyritækinu Alcan að nútímavæðast og stækka. 

H.M.

Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband