Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ritskoðun MBL.IS eða 24stunda.

Ritskoðun hjá MBL.is og eða 24stundir ?

Mér er ekki ljóst hvað eða hver eða hverjir ritskoðar hjá MBL.is eða 24stundum en linkur sem ég benti á  var fjarlægður af netinu þar sem fjallað var um frétt Persónuverdar, gott væri að fá svar frá ritstjóra 24stunda Ólafi Þ. Stephensen  og ritstjóra MBL.is Styrmir Gunnarsyni þá hvort beita eigi Rússneskri aðferðinni á þessum miðlum og hvort það sé stefna 24stunda og MBL.is að stunda þá iðju áfram, Mér er heldur ekki  ljóst hvaða tengsli eru á milli Þórður Snær Júlíussonar og Þórðar Sveinsonar varðandi fréttina í gær þegar útskurður Persónuverdar lá ekki fyrir fyri en eftir hádegi.     


mbl.is Persónuvernd til skammar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósannindi 24stunda.

Í blaðinu 24stundir ritar Þórður Snær Júlíusson undir
fyrirsögninni “Alcan braut gegn lögum,,

Síðan rekur hann málavexti og segir meðal annars ,, Persónuvernd barst
símtal um miðjan mars frá mönnum sem sögðust vera starfamenn Alcan.

Mennirnir skýrðu frá því að þeir hefðu fengið tilmæli um að safna
upplýsingum um a.m.k. tíu vini sína eða nágranna og skoðanir þeirra á
fyrirhugari stækkun álversinns í Straumsvík. Fyrst og fremst hafi verið
að ræða um meðlimi Sólar í Straumi”.

Það sanna í þessu máli er að engir starfsmenn Alcan hringdu í
Persónuvermd vegna þess að starfsmenn Alcan fengu ekki þessi tilmæli
sem að framan greinir það er tilbúningur Þórðar Snærs, sjálfs  eða Persónuverdar það sanna
í þessu er að margir starfsmenn sjálfir buðust til að ljá þessu máli lið
enda vísar hann ekki í neina tilgreinda starfsmenn og til hvers ættu
starfsmenn Alcan að fara með ósannindi á sjálfa sig og vinufélaga sína. Ekki þurfti heldur að kanna skoðanir meðlima Sólar í straumi, hún hafi legið ljós fyrir.

Skrif hans um starfsmenn Alcan í þessum málaflokki hafa verið sífeldar
árásir og einelti á starfsmenn Alcans þar sem frjálslega hefur veri
farið með staðreyndir.



Hverjir eru það sem fella dóminn ? Eru það ekki starfmenn Persónuvendar sem
sjálfir röðuðu sér í raðir gegn stækkun Alcans. Þessum spurningum verður að svara málefnalega af hálfu persónuverndar. Ástæðan fyrir því er einföld, þar starfar fólk sem ekki gætir hlutleysis. Auðvelt er að munnhöggvast við fólk en það er oft fátt um svör þegar þarf að leggja fram sannanir fyrir rógburðinum og dylgjunum.

Ég skora á Persónuvernd að koma hreint til dyrana og vísa á þá starfsmenn sem að framan greinir til að sannleikurin komi upp á borðið sé svo ekki verður að líta á sem þetta sé tilbúningur starfsmanna  sjálfa. 

 

Kv, Sigurjón Vigfússon
mbl.is Alcan braut gegn lögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósannindi 24stunda.


Í blaðinu 24stundir ritar Þórður Snær Júlíusson undir
fyrirsögninni “Alcan braut gegn lögum,,

Síðan rekur hann málavexti og segir meðal annars ,, Persónuvernd barst
símtal um miðjan mars frá mönnum sem sögðust vera starfamenn Alcan.

Mennirnir skýrðu frá því að þeir hefðu fengið tilmæli um að safna
upplýsingum um a.m.k. tíu vini sína eða nágranna og skoðanir þeirra á
fyrirhugari stækkun álversinns í Straumsvík. Fyrst og fremst hafi verið
að ræða um meðlimi Sólar í Straumi”.

Það sanna í þessu máli er að engir starfsmenn Alcan hringdu í
Persónuvermd vegna þess að starfsmenn Alcan fengu ekki þessi tilmæli
sem að framan greinir það er tilbúningur Þórðar Snærs, sjálfs  eða Persónuverdar það sanna
í þessu er að margir starfsmenn sjálfir buðust til að ljá þessu máli lið
enda vísar hann ekki í neina tilgreinda starfsmenn og til hvers ættu
starfsmenn Alcan að fara með ósannindi á sjálfa sig og vinufélaga sína. Ekki þurfti heldur að kanna skoðanir meðlima Sólar í straumi, hún hafi legið ljós fyrir.

Skrif hans um starfsmenn Alcan í þessum málaflokki hafa verið sífeldar
árásir og einelti á starfsmenn Alcans þar sem frjálslega hefur veri
farið með staðreyndir.



Hverjir eru það sem fella dóminn ? Eru það ekki starfmenn Persónuvendar sem
sjálfir röðuðu sér í raðir gegn stækkun Alcans. Þessum spurningum verður að svara málefnalega af hálfu persónuverndar. Ástæðan fyrir því er einföld, þar starfar fólk sem ekki gætir hlutleysis. Auðvelt er að munnhöggvast við fólk en það er oft fátt um svör þegar þarf að leggja fram sannanir fyrir rógburðinum og dylgjunum.

Ég skora á Persónuvernd að koma hreint til dyrana og vísa á þá starfsmenn sem að framan greini til að sannleikurin komi upp á borðið sé svo ekki verður að líta á sem þetta sé tilbúningur starfsmanna sjálfa. 

 

Kv, Sigurjón Vigfússon

Kapphlaup um orkuna Alcoa, Alcan, Hydro.

Norski álframleiðandinn Hydro gefur ekkert eftir í álverskapphlaupinu og vill hefja framkvæmdir sem fyrst í Þorlákshöfn, á Keilinesi eða á öðrum hentugum stað á landinu. Sendinefnd frá Hydro fundaði í gær með Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur. Það vakti athygli í fyrra þegar Hydro opnaði sérstaka skrifstofu á Íslandi, að Smiðshöfða eitt í Reykjavík. Við það tækifæri héldu forystumenn álframleiðslu fyrirtæksins blaðamannafund þar sem þeir lýstu áhuga sínum á fjárfestingum hérlendis. Og enn minna Norðmennirnir á sig. Fimm manna sendinefnd Hydro fundaði í gær bæði með fulltrúum Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur. Með heimsókn sendinefndarinnar sendir norska fyrirtæki skýr skilaboð um að það ætli að taka þátt í samkeppninni um íslensku orkuna.

Bjarne Reinholdt, starfsmaður Hydro á Íslandi, segir að þótt Hydro-menn vilji gjarnan hefjast handa sem fyrst líti þeir á þetta sem langtímaverkefni og þeir séu þolinmóðir. Spurður um staðsetningu nefnir hann að Hydro hafi verið að skoða Þorlákshöfn og Keilisnes en einnig fleiri staði.

 

Kv, SV 


Hafnfirðingar flytja atvinnuna til Þorlákshafnar

Álversáhugi í Ölfusi

Bæjaryfirvöld Þorlákshafnar eru mjög jákvæð gagnvart því að fá til sín nýtt álver Alcan. Fulltrúar Alcan voru í Þorlákshöfn í gær og ræddu möguleika þess að reisa 280 þúsund tonna álver á staðnum. Forgangur Alcan að orku hjá Landsvirkjun, sem tryggð var vegna stækkunarhugmynda í Straumsvík, rennur úr gildi eftir mánuð.

Eftir að íbúar í Hafnarfirði höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík hefur eigandinn, Alcan, skoðað nýjar leiðir til að auka umsvif sín hér á landi. Í gær var fundað með sveitarstjórnarmönnum í sveitarfélaginu Ölfusi og skoðuð möguleg lóð undir nýtt álver steinsnar frá Þorlákshöfn. Þar eru menn afar áhugasamir um þessa framkvæmd. Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri í Ölfusi segir að menn séu jákvæðir gagnvart þessari framkvæmd. Hann bendir á að Ölfus sé stórt sveitarfélag og gott rými til að setja niður álver. Sveitarfélagið hefur þegar bent á lóð sem er um tvo kílómetra frá höfninni. Þarf nú að kanna hvort heppilegt er að flytja súrál þessa leið.

Alcan var búið að tryggja sér orku frá Landsvirkjun til stækkunar í Straumsvík og lágu samningar fyrir óundirritaðir, á gundvelli viljayfirlýsingar. Sú viljayfirlýsing rennur úr gildi, að óbreyttu, eftir mánuð. Sigurður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Alcan sagði við Stöð 2 í dag að til greina kæmi að fá forganginn framlengdan í samningum við Landsvirkjun ef viðræður við Ölfus væru komnar á góðan rekspöl. Ólafur Áki benti á að frumviðræður þyrftu ekki að taka nema fáar vikur.

Forsenda þess að álver rísi við Þorlákshöfn er að hafnaraðstaðan þar verði stórbætt. Þetta kallar á talsverðar framkvæmdir sem kosta 5 til 6 milljarða. En Ólafur Áki bendir á að slík stórskipahöfn myndi fela í sér mikla möguleika gagnavrt skipaflutningum.




Alcan til Þorlálshafnar og atvinna úr Hafnarfirði.

 Fulltrúar Alcan í Straumsvík áttu fund með sveitarstjónarmönnum í Þorlákshöfn í gær til að kanna möguleikann á því að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver þar. Viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart álveri er allt annað en Hafnfirðinga - segir talsmaður Alcan.

Þegar íbúar í Hafnarfirði höfnuðu stækkun álversins í Straumsvík í kosningu lá fyrir samningur Alcan og Landsvirkjun um orkusölu vegna stækkunarinnar. Hann var óundirritaður en byggður á viljayfirlýsingu um forgang Alcan að orku í stækkun álversins. Þessi viljayfirlýsing rennur úr gildi eftir sléttan mánuð eða í lok júní.

Alcan leitar nú nýrra leiða til að stækka og nýta sér forgang að orkunni, á skömmum tíma. Í gær voru aðstæður skoðaðar í Þorlákshöfn á fundi með sveitarstjórnarmönnum. Siguður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Alcan segir að meðal annars hafi verið athugað hvaða staðir kæmu til greina undir nýtt álver. Það væri ein leið sem Alcan væri að skoða til að geta stækkað eftir niðurstöðuna í íbúakosningunni. Þá er rætt um að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver.

Sigurður segir það varla raunhæft að ætla að mál væru komin svo langt á næsta mánuði þannig að flötur væri á því að ganga til orkusölusamninga á grundvelli viljayfirlýsingarinnar. Aftur á móti væri möguleiki að reyna að fá Landsvirkjun til að framlengja viljayfirlýsinguna ef raunhæfir kostir um nýtingu orkunnar væru í sjónmáli.

Sigurður segir að ákveðið hafi verið að halda áfram skoðun á Þorlákshafnarálveri í undirnefnd. Sveitarstjórnarmenn hefðu sýnt málinu mikinn áhuga og væri viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart Alcan allt annað og betra en hefði mætt þeim í Hafnarfriði undanfarið.

Ál á bílinn, Græni málmurinn.

Bandarískir vísindamenn hafa fundið nýja leið til þess að framleiða vetni. Smákúlur búnar til úr áli og gallium framleiða hreint vetni þegar vatni er hellt á þær.

Litið er á vetni sem einn besta kostinn af hreinum eldsneytum, sérstaklega fyrir bíla, vegna þess að vatnsgufa er það eina sem myndast við bruna á því. Bush Bandaríkjaforseti hefur sagt vetni vera eldsneyti framtíðarinnar, en rannsakendur hafa enn ekki komist að niðurstöðu um hver sé hagkvæmasta leiðin til þess að framleiða og geyma það.

Í rannsókninni sem gerð var við Purdue Háskólann í Indiana er "Vetnið framleitt eftir þörfum, svo þú framleiðir aðeins eins mikið og þig vantar, þegar þig vantar það" sagði Jerry Woodwall, prófessor í verkfræði, en hann uppgötvaði nýja kerfið. Woodwall sagði í tilkynningu að vetnið þyrfti hvorki að geyma né flytja, og þar með væri tveimur erfiðleikum við framleiðsluna eytt.

Vísindamenn við Purdue háskólann sjá fyrir sér að hægt væri að nota vetnið fljótlega á minni vélar eins og sláttuvélar og keðjusagir. Þeir telja að einnig væri hægt að nota það á bíla, annaðhvort sem staðgengil fyrir bensín eða til að keyra áfram vetnisrafal.

Eitt og sér bregst ál ekki við vatni, vegna þess að húð myndast yfir álið þegar það kemst í snertingu við súrefni. En gallium kemur í veg fyrir að þessi húð myndist, og leyfir álinu að bregðast við súrefni í vatninu sem leysir þá úr læðingi vetni og áloxíð, einnig þekkt sem súrál. Það sem eftir stendur er áloxíð og gallium. Það eina sem vélin skilar frá sér við brunan á vetninu er vatnsgufa.

"Engar eiturgufur verða til" sagði Woodland.

Framleiðslukostnaðurinn við þetta er um það bil þrír dollarar á gallonið, sem er svipað verð og gallonið af bensíni kostar í Bandaríkjunum.

Prófessor Woodland sagði að ef súrálið sem eftir væri yrði endurunnið og gert væri gæðaminna gallium væri hægt að minnka framleiðslukostnaðinn enn frekar, og gera kerfið á viðráðanlegra verði.

Ríkisstjórn Íslands 2010.??

Ingibjörg Sólrún, félagsmálaráðherra, hefur lýst yfir þungum áhyggjum yfir gríðarlegri aukningu gjaldþrota íslenskra heimila, sem var óhjákvæmilegur fylgifiskur hins mikla atvinnuleysis í kjölfar brotthvarfs stóru íslensku fyrirtækjanna.  Fyrir 3 árum síðan var rétt um 2% atvinnuleysi, en tölur fyrir desembermánuð sýna að nú er atvinnuleysi orðið 9.2%, fyrst og fremst vegna brotthvarfs stóru fyrirtækjanna, og gríðarlega erfiðs rekstrarumhverfis þeirra fyrirtækja sem eftir voru.  Eftir að skattar voru hækkaðir á fyrirtækin hefur hagnaður þeirra þurrkast út, og löggjöf sem sett var 2009 um jafna skiptingu í störf eftir kynjum hefur leitt til mikilla rekstrarörðugleika í kjölfar stjórnvaldssekta sem lagðar hafa verið á fyrirtæki.   Ingibjörg sagði að ef við gengjum í ESB myndi allt þetta lagast, en forsætisráðherrann hefur lagst gegn því, enda Steingrímur J. á móti slíkum þreifingum.Ríkisbankinn sem VG stofnaði virðist ekki standa sig sem skildi, niðurgreiðsla á vöxtum er að sliga hann, og fólk fer með sparifé sitt erlendis því vaxtastigið á sparnað er ekki í takt við neitt, afskriftir lána eru svakalegar, og við hin fáum reikninginn í gegnum skattprósentuna. Reyndar hafa launin lækkað mikið, sérstaklega hjá ríkinu, en líka í einkageiranum, en fólk segir svo sem ekki mikið því þeir sem hafa vinnu eru þakklátir fyrir það eitt.  Skoðanakannanir sýna að Sjálfstæðisflokkurinn er með um 60% fylgi og Framsókn með 25%, en hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur samt sagt að það taki líklegast um 10-15 ár að koma okkur á sama stað efnahagslega og við vorum árið 2007, sem þýðir að við höfum upplifað mjög dýra 20 ára tilraun í kommúnisma.Svona verður framtíðin með VG og Samfylkinguna við stjórn, forðumst glapræðið og setjum Xið eða  X-D OG X-B

Framsókn sækir á

     Skoðanakönnun Gallups í dag staðfestir að
fylgi Framsóknar er í verulegri uppsveiflu 13.6% er niður-
staðan í dag
.  Ljóst er að herslumininn vantar og þeir tveir
dagar sem eru til kosninga verða Framsóknarmenn  að nota vel ef takast á að fá ásættanleg
úrsít 12 maí n.k.
   Mikilvægt er að þau Jón, Siv og Jónína fái
góða kosningu á höfuðborgarsvæðinu. Þar
munu úrslitin ráðast. - Ástæða er til bjartsýni
í þeim efnum, því margir eru að koma til liðs
við flokkinn á ný, eftir að Jón Sigurðsson tók
við flokknum.  -  


Sigurjón Vigfússon

Glæpurinn í Straumsvík.

VG og Samfylkingin unnu markvíst að því að kippa fótunum unda starfsöryggi  starfsmönnum Alcan í Straumsvík og verktökum sem hafa vinnu hjá Alcan í kosningunum um stækkun með áróðri og lygum um starfsemi Alcans starfsmenn og verktaka í þeim tilgangi að afla  sér fylgi í komandi kosningum, eineltið átti sér enga líka í Íslandsögunin leita verður aftur á fyrri hluta 20. aldar þegar nasistar réðust með sama hætti á gyðinga í Þyskalandi til að finna samanburð.

Þeir flokkar sem skilgreinir sig lengst til vinstri og hafa lagt ríkari áherslu en aðrir á félagshyggju, jafnrétti kynjanna og réttindi vinnandi fólks, lagði starfsmenn og verktaka í einelti .

VG og Samfylkingin hafa gleymt uppruna sínum enda er svo komið að vinnandi fólk á ekki samleið með þeim.  
Það eru mikil vonbrigði að vinstri flokkarnir skuli vinna gegn hagsmunum þeirra sem treyst hafa flokkunum til góðra verka. Verkamenn og iðnaðarmenn eiga enga samleið með þessum flokkum lengur það sannaði sig í kosningunum  í mars.

En nú biðja þeir okkur um atkvæði í komandi kosningum, ég bið kjósendur í Kraganum að minnast þess hvernig þeir komu fram við starfsmenn Alcans og verktaka og þann stór hóp sem sagt hefur sig úr þessum flokkum eftir kosningarnar í mars þegar þeir áttuðu hvað innviðir þessa flokka höfðu inn að geyma gagnvart launþegum í Kraganum og starfsmönnum Alcans og verktökum .

Að beina atkvæðum sínum á þá flokka sem vilja byggja upp atvinnu í kjördæminu og tryggja áfram góðæri í kjördæminu.

Setjum því X við X-B eða X-D ekki til niðurrifs flokkana.

Sigurjón Vigfússon


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband