Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vefurinn

Forsætisráðherra styður okkur framfarasinna um stækkun Alcans.

Geir H. Haarde forsætisráðherra lýsti því yfir í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag að hann styddi stækkun álversins í Straumsvík.

Forsætisráðherra tók með orðum sínum afdráttarlaust undir málflutning okkar framfarasinna og annara samtaka í Hafnarfirði þegar hann sagði að stækkun álversins væri góð fyrir Hafnarfjörð og íbúa sveitarfélagsins. Jafnframt tók Geir Haarde fram að stækkunin væri hagstæð fyrir allt þjóðfélagið.

 

Nú hafa öll hagsmuna og verkalíðsfélög ályktað um stækkunina á jákvæðan hátt fyrir okkur framfarasinna.

 

Baráttusamtökin Sól í Straumi munu þó berjast fyrir stopp stopp hagvaxtarvélinni til 31 mars með góðum stuðningi Vg en vonandi ekki stöðvar 2.

 

Kveðja  Árelíus Þórðarson.

Stækkum Alcan já takk.


Á stöð2 vantaði sannleikan.

Var að horfa á Kompánsþáttinn Ingi og Rannveig kom vel út, hinsvegar vantaða rætt væri um 1.000 milljónirnar til Hafnarfjarðar í breyttu skatt umhverfi en heildar tekjur eru áætlaðar um 1.450 milljónir þetta atriði átti að koma inn á.

 

 Pétur gat samt ekki sagt sannleika varðandi lóð Alcans sagið að hún væri jafn löng og hún væri breið eftir stækkun hann veit betur.

 Samkvæmt teikningum ARKÍS  15. 1.2007 er lóð Ísal eftir stækkun mælikvarði um 1520m á lengd og um  920m á breidd ekki jafn löng og breið skeikar um 600m. lóði stækkar um 56% stækkun á lóð já 56%. Lóð sögð  yfir 60% stærri en  hún mun verða.

Kv Sigurjón Vigfússon


Við erum líka fólk

Mikil umræða er í þjóðfélaginu um hugsanlega stækkun álversins í Straumsvík og uppbyggingu stóriðju á Íslandi. Menn hafa mjög misjafnar skoðanir á þessum málum og er öll málefnaleg umræða af hinu góða.  Mín skoðun er sú að hér ætti að hafa færri álver og styrkja þau sem fyrir eru og gera þau hagkvæm og arðbær.  Við þurfum einnig að spyrja okkur hvort við getum neitað fyrirtækjum að vaxa og dafna.  Hér er ekki verið að byggja nýtt álver heldur er verið að gera fyrirtæki með langa sögu kleift að vera samkeppnishæft á sínu sviði. Starfsöryggi stefnt í hættuMenn hafa deilt á ýmsa þætti eins og umhverfismál, sjónræn áhrif verksmiðjunar og fleira.  Það sem hefur gleymst í umræðunni er fólkið sem vinnur nú hjá álverinu í Straumsvík.  Hvernig snúa þessi mál að þeim.  Jú, það er verið að kjósa um störf þeirra hvort sem þeim líkar betur eða verr.   Við stöndum frammi fyrir því hvort störf okkar og lifibrauð síðustu 40 ára verði tryggð til frambúðar.  Getum við réttlætt að stefna starfsöryggi 450 starfmanna álversins og velferð fjölskyldna þeirra í hættu.  Þeir sem eru á móti stækkun segja að verksmiðjan verði áfram og starfsfólk þurfi ekki að óttast um störf sín.  Það er hins vegar staðreynd að verksmiðjan er orðinn 40 ára gömul og ekkert sjálfgefið að svo gömul verksmiðja án stækkunar gangi vel ár eftir ár.  Margar forsendur eru fyrir því að hún gengur vel núna eins og hátt álverð á heimsmarkaði.  En hvernig vitum við hvernig staðan verður eftir nokkur ár?  Það er einnig staðreynd að Isal er með háan framleiðslukostnað á hvert framleitt tonn innan Alcan samsteypunnar og þarf því að stækka til að verða samkeppnishæf.   Orkusamningar Isal renna út árið 2014, eftir 7 ár og engin veit hvað gerist eftir það.  Að óbreyttu gæti þá lokun verksmiðjunnar blasað við. Góður vinnustaðurMargir hafa mjög ranga sýn á starfsemi Isal.  Þeir halda að starfsfólkið starfi við óviðunandi mengun allan daginn og óþrifalegar aðstæður.  Þetta er á miklum misskilningi byggt.  Það segir sig sjálft að starfsfólk myndi ekki vinna hjá Isal í 30 til 35 ár ef aðbúnaður starfsmanna væri ekki góður.  Nei, það myndi enginn láta bjóða sér.  Ástæðan fyrir því að fólk vinnur í Isal er sú að mikið er lagt upp úr góðum aðbúnaði fyrir starfsfólk.  Starfsmenn hafa  glæsilega búningklefa og sturtur.  Starfsfólk hefur kost á rútuferðum í vinnu án endurgjalds, frábæru mötuneyti sem býður upp á mikinn fjölbreytileika og vinnufatnaði sem Isal útvegar og þvær einnig.  Aðsókn í vinnu hja Isal væri ekki svona mikil sem raun ber vitni ef þessir hlutir væru ekki í lagi.Hér er einnig mikil aðsókn í sumarstörf.    Hjá Isal fá um 130 skólanemar vinnu á sumrin og komast ekki nærri allir að sem vilja.  Þessir skólakrakkar koma aftur og aftur.  Myndu þessir krakkar gera það ef þau upplifa að hjá Isal væri aðbúnaður og umhverfismál í ólestri.  Nei, ég held ekki. Mikil þekking er innan fyrirtækisins sem tekur langan tíma að byggja upp.  Með löngum starfsaldri innan fyrirtækisins hefur hún byggst upp.  Isal rekur Stóriðjuskóla þar sem verkamenn og iðnaðarmenn hafa kost á að mennta sig.  Nú hafa um 160 manns útskrifast og því langstærsti hluti starfsmanna hjá Isal menntað fólk.  Þessi skóli hefur byggt um mikla sérþekkingu innan Isal og enn eitt dæmið um metnað Isal til að ná langt og auka þekkingu innan fyrirtækisins.   Frábær árangur í umhverfismálumIsal er vottað af umhverfisstaðlinum ISO 14001 eitt fárra fyrirtækja í þessu landi.  Hér er því mikið eftirlit með umhverfismálum bæði innan sem utan vinnusvæðis.  Þessi staðal krefst ekki eingöngu þess að við séum innan við ákveðin tilskilin mörk heldur krefst hann þess að við bætum okkur ár frá ári.   Upplýsingar um útblástur frá fyrirtækinu eru því staðreyndir en ekki tölur sem Isal getur búið til.  Margir hafa áhyggjur af mengun frá fyrirtækinu og umhverfismálin vega þungt þegar fólk myndar sér skoðanir.  Ég myndi skilja þessar áhyggjur ef þau væru í ólestri hjá fyrirtækinu sem þau eru alls ekki.  Einnig er verið að framleiða ál á eins vistvænan hátt og kostur er með orkugjöfunum sem við höfum hér á landi.  Ef við notun ekki orkuna hér, eykur það líkurnar á að álið verði framleitt með kolum og gasi sem orkugjöfum.  Það kallar á mun meiri losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. Líka kosið um störf okkarÞegar gengið verður að kjörborðinu þann 31.mars verður  ekki eingöngu kosið um stækkun Isal og fjölgun starfa og fleira.  Það er einnig verið að kjósa um  starfsöryggi okkar til frambúðar sem nú vinnum hjá Isal.  Setjið því ykkur í okkar spor þegar kosið verður um stækkun Isal.Við erum jú líka fólk. Sigurður Egill Þorvaldssonstarfsmaður Alcan á Íslandi 

 


Þúsund lýðræðissinnar kíktu inn á síðuna okkar um helgina. Ítarleg Kompás umfjöllun bíður betri tíma?

Síðustu tvo daga um helgina  hafa um þúsund manns kíkt inn á síðu okkar framfara sinna og enginn mælt andstöðu sinni við okkar gagnrýni á fréttaveitur stöðvar 2. 

Berjumst öll fyrir réttlætinu og  lýðræðinu, takk fyrir stuðning ykkar með þögninni.

Kveðja Árelíus Þórðarson sem erum rétt að byrja lokaslaginn fyrir því að gott fyrirtæki fái að dafna og þróast.

 


Kompásþátturinn í kvöld.

Kompás þátturinn kom ágætlega út fyrir álversinna og andstæðinga miðað við það sem undan er gengið á fréttaveitum stöðvar 2, enda aðrir fréttamenn en þeir sem áður hafa verið talsmenn Sólar í Straumi.

 

Eitt sem ég tók þó eftir í þættinum var bréfið frá doctor Roth til bæjaryfirvalda sem ég var áður búinn að lesa á vef Sólar í Straumi en það er önnur saga.  Ingvar fyrrverandi bæjarstjóri svaraði ágætlega fyrir það.

 

Átti erfitt með að skilja efnafræðinginn og fyrrverandi starfsmann Ísal fyrir tuttugu árum þar sem mér fannst hann tala út og suður, ekki alveg vera í takt við nútímalegan rekstur álvera?

 

Rannveig stóð sig vel að svara tíðum þráspurningum fréttamannsins. 

Vona svo að bæði sjónarmið fái að njóta sín á fréttaveitum stöðvar 2 hér eftir.

 

Meira um þáttinn síðar eftir nánari skoðun?

 

Kveðja Árelíus Þórðarson.


Stöð 2 þarf að gæta jafnræðis og sannleikans.

Stöð 2 hefur verið að leita að fyrrum starfsmönnum Alcan ÍSALs til að geta notað þá í áróðri og óhróðri eina markmiðin eru að koma höggstað á starfsmenn og fyrirtækið og grafa undan bæði starfsmönnum og svo fyrirtækinu Alcan, skiptir þá litlu máli hvar sannleikurinn liggur eða  hvort hið rétta komi í ljós óhróðurinn og árásir á starfsmenn og Alcan er eina markmiðið sem fréttamenn og stjórnendur Kompás leita að og er eitt hvað sem er fjarri sannleikanum.  

 Stöð 2 mun halda áfram að leggja Alcan í einelti svo og starfsmenn þess. Stöð 2  leitar uppi fyrrverandi starfsmenn sem hafa þurft að yfirgefa staðinn við lélegan orðstír viljugir eða óviljugir, þeirra á meðal er Pálmi Stefánsson en hann fékk ekki þann frama sem honum fannst að hæfileikar hans ættu skilið og hefur beðið eftir tækifæri til að ná sér niðri á Alcan. Því var það himnasending að Kompás skyldi hafa samband við hann og þá gat hann hellt úr skálum reiði sinnar, sem hann og mun gera á þann hátt búa til ímyndaðan eiturfrasa sem ekki mun standast nánari skoðunar. 

Þrír aðrir starfsmenn hafa þeir eining náð í sem vilja nú ná sér niður á fyrrverandi vaktarvinnufélögum sínum sem þó stóðu með þeim er þeir lent í þeirri ógæfu að missa vinnuna og veittu þeim stuðning á erfiðum tímum.

kv,Sigurjón Vigfússon


Jón Ásgeir Jóhannesson? Völd stjórnmálamanna og lýðræðis réttlæti landsmanna minnkar á kosnað eigenda fjölmiðlanna

Vald stjórnmálamanna minnkar með hverju árinu sem líður.Vald eigenda fjölmiðla eða þeirra sem stjórna þeim vex að sama skapi.  Þeir sem stjórna umræðunni hafa valdið.  Við hin erum vanmáttug en sum okkar reyna þó að berjast gegn ofurvaldi og hafa oft sigur að lokum.

Við almúginn fáum oft litlu áorkað.  Stundum finnst okkur við vera Davíð sem berjumst við Golíat ef við reynum að tala út frá hjartanu.  Stundum eru ummæli afbökuð gagnvart þeim sem hafa eitthvað að segja. Vald eigenda fjölmiðla og þeirra sem stjórna þeim verður að breytast.  Annars er lýðræðið í stórkostlegri hættu. 

 Ég vona að ný fjölmiðlalög taki á þessum hlutum þannig að öll sjónarmið verði látin ráða á kostnað einhlíts áróðurs. 

Að lokum. 

Jón Ásgeir?  Ég vil alls ekki hafa þetta svona?  Ég vil að fjölmiðlar og fréttamenn gæti hlutleysis.  Fréttamaðurinn sem tók hádegisdrottningarviðtalið á stöð þinni í gær hefur alls ekki gætt hlutleysis í umræðu um álverið í Straumsvík í rúmt ár. Nú þarf að taka í taumana eða setja á ströng fjölmiðlalög sem munu ekkert  gera annað en að auka lýðræðið.  Eins og þetta hefur verið á stöð 2 undanfarið rúmt ár gengur bara alls ekki lengur. 

Kveðja  Árelíus Þórðarson 


Ályktun - Málmur , stjórnarfundur 8.mars 2007

Stjórn MÁLMS – samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði vekur athygli á mikilvægi stækkunnar álversins í Straumsvík fyrir vöxt og viðgang íslensks málm- og véltækniiðnaðar.

Undanfarna áratugi hefur þjónusta við álverið verið meginverkefnastoð margra fyrirtækja í greininni. Hér er um sérhæfð og vandasöm verktæknistörf að tefla sem hingað til hafa einkum lotið að uppbyggingu álvera og hreinsivirkja svo og viðgerðum og viðhaldi eftir að þau hafa hafið rekstur. Síðustu ár hafa þessi störf einnig snúið að hönnun og framleiðslu véla og tækja fyrir álver en sú framleiðsla er nú orðin álitleg útflutningsgrein sem miklar vonir eru bundnar við í framtíðinni.

Þannig hafa kröfuhörð álver hér á landi veitt málm- og véltæknifyrirtækjum tækifæri til að bæta verk- og tæknigetu sína sem hefur lagt grunn að ögrandi möguleikum til nýsköpunar og verðmæts útflutnings. Því skiptir miklu að eytt verði öllum vafa um að álverið í Straumsvík eflist og styrkist í framtíðinni og verði áfram sterkur bakhjarl við þróun íslensk málm- og véltækniiðnaðar.
Kv.Sigurjón Vigfússon

Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti eigandi á stöð 2

Vona svo sannarlega að þú Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti eigandi 365 fréttamiðla lesir  þetta  og greinarnar á undan eða einhver bendi þér á þar sem fréttastofur eiga að mínu viti að gegna hlutleysis.

Og eigi ekki að misnota frétta frelsið eða lýðræðislegt jafnræði.Hvernig stæði frétta flutningur af Baugsmálinu ef stöð 2 flytti fréttirnar á sama hátt og hún gerir á stækkunar máli Alcan og þá um leið  á starfsmönnum þess. 

Kveðja um bætt vinnubrögð og aukið lýðræði. 

Kv.Svig 

 


Kæri Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti eigandi fréttamiðla á Stöð 2.

Kæri Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti hluthafi í 365 miðlum og stjórnarmaður þess fyrirtækis.  Í þeirri baráttu sem framundan er þá krefjumst við álverssinnar að hlutleysis sé gætt og að bæði sjónarmið hlutaðeiganda fái fram að  ganga.

 

Það vantar lítið upp á að fréttastofan ykkar og aðrir fréttaskýringarþættir verða rúin trausti hjá almenningi.  Það muna nefnilega margir hvernig fréttastofan ykkar fyrverandi “NFS” hélt utan um umræðuna á sínum tíma með áróðurs þáttum gegn fyrirtækinu okkar og starfsmönnum, Alcan í Straumsvík. Einn sá maður sem lengst gekk í áróðrinum  annálaður Allballi á sínum tíma flutti fréttina í kvöld.

 

Einnig vita margir að talsmenn Sólar í Straumi eiga greiða leið inn á fréttaveitur ykkar vegna tengsla.

 

Eina sem við krefjumst er að fréttaveitur ykkar séu hlutlausar og að öll sjónarmið njóti réttlætis.

 

Vona svo sannalega að þú Jón Ásgeir Jóhannesson stærsti eigandi 365 fréttamiðla lesir  þetta eða einhver bendi þér á þar sem fréttastofur eiga að mínu viti að gegna hlutleysis.

 

Kveðja um bætt vinnubrögð og aukið lýðræði.

 

Árelíus Þórðarson.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband