Færsluflokkur: Vefurinn
10.3.2007 | 00:15
Svívirðileg vinnubrögð á Stöð2
Blaðið í morgun kynnti niðurstöður úr skoðanakönnun um stækkun álversins í Straumsvík þar sem útkoman var nánast 50/50 með/móti. Stöð 2 grípur þessa frétt og sýnir í kvöldfréttunum og hvað gera þeir? Tala eingöngu við Pétur Óskarsson talsmann Sólar í Straumi og hann fær að rakka allt og alla niður eins og hann listir. Vælir yfir því að þeim finnist þau vera send með vasahníf í orustu á móti fullkominni herfylkingu. Slá link.
Kv, Sigurjón Vigfússon
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2007 | 14:17
Við erum venjulegir Íslendingar.
Í fréttum i gær ræðir Björgólfur Thor að þrengt sé verði að starfsumhverfi Straumur-Burðarás og nefnir þar heimildir til færslu bókhalds og samninga ársreiknings í erlendum gjaldmiðli í því sjónarmiði að viðskipti Straumur-Burðarás séu alþjóðleg og verði þessu ekki breytt að þá komi til greina að flytja starfsemina erlendis svo að Straumur-Burðarás fái að dafna í réttu alþjóðlegu starfsumhverfi og myntkerfi.
Actavís sagði það sama fyrir nokkrum mánuðum varðandi samheitalyf ef þrengt yrði að þeirri framleiðslu yrðu þeir að flytja þá starfsemina út.
Þessi fyrirtæki þurfa að geta starfað í alþjóðlegu starfsumhverfi ásamt fleiri fyrirtækjum hér á Íslandi sem einnig hafa bent á frjálsræði til að geta vaxið og dafna.
Stjórnmálamenn og almenningur hafa haft skilin að þessu þáttum og tekið undir þessi sjónarmið.
Nú er eitt fyrirtæki á Íslandi sem ekki nýtur sammælis þegar það vil vaxa og dafna í réttu starfsumhverfi og þróast á alþjóðlega vísu og vera samkeppnishæft og þá um leið lengt lífstíma sinn.
Á það hefur verið ráðist úr öllum áttum þingmönnum formönnun þingflokka og samtökum en fremur hafa fjölmiðlar tekið þar undir og hafa fyrir fram myndar sér skoðanir um málið.
Mikil málefnaleg fátækt hefur stýrt umræðinu menn hafa gólað upp í loftið og látið í það skína að þeir vissum allt um málið til að ná sjálfum sér til handa vinsældum í komandi kosningum og afla sínum þingflokki atkvæða á kostnað starfsmann Alcans á sama hátt hafa fjölmiðlar látið til að ná athygli. Þegar svo er beðið er um skíringar og röksemdarfærslu á þessu góli er fátt um greina góð svör, Pétur og Páll söguð þetta síðan apar hver eftir hverjum öðrum vitleiðsluna og allt er komið í hnút, í ör fáum tilfellu hefur málið verið reifað málefnalega.
Þessi umræða hefur fylgt afar neikvæð og oft á tíðum niðrandi ummæli og fordómum um verkafólk og starfsmenn Alcans ,, þið getið fengið vinnu annar staðar þið verði bara atvinnulaus í skamman tíma ef lokað verður Alcan og eins og ,,að byggja sé verið álver fyrir Pólverja og erlent verkafólk sem bærinn sé fullur af þarna koma fram ofstæki á hendur þjóðum og starfstéttum í níðrænum tón og þar hafa VG verið eina fremstir í flokki, sem á sér engan líkan helst verður að leita aftur á síðustu öld þar sem ofsóknir náðu hámarki og eftir þann ljóta leik voru orðið frægu ,, nei aldrei aldrei aftur
Menn verða að gera sér grein fyrir því að það er fólk sem starfar hjá Alcan við starfsmenn erum ekki dauðir hlutir við erum líka fólk og fyrst og fremst venjulegir Íslendingar.
Kv,Sigurjón Vigfússon
Vefurinn | Breytt 10.3.2007 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.3.2007 | 05:15
Alcan hefur lágmarkað gróðurhúsalofttegundir frá fyrirtækinu um 70% síðan árið 1990
Samkvæmt fréttavef BBC munu leiðtogar landa innan ESB skuldbindi sig til að draga úr gróðurhúsalofttegundum um 20% fyrir 2020 miðað við losunina 1990. Fyrir liggur einnig tillaga um skuldbindingu þess eðlis að 20% af orkuneyslu ESB komi frá umhverfisvænum orkuverum um 2020.
Frá árinu 1990 hefur losun gróðurhúsalofttegunda frá álverinu í Straumsvík minnkað um 70% á hvert framleitt tonn. Þessi árangur hefur vakið mikla athygli í "álheiminum" enda er losun þessara lofttegunda mun minni í Straumsvík en í flestum öðrum álverum.
Við Straumsvíkurmenn erum bestir til að lágmarka gróðurhúsalofttegundir og ferlið okkar mun halda áfram.
Kveðja Árelíus Þórðarson.
![]() |
Bindandi samkomulag ESB í mótun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2007 | 02:07
Kraftur Hafnarfjarðar er stækkun Alcans og áframhaldandi kraftur íþróttafélaganna og annara samfélagsmála.
Hafnarfjörður er mikill íþróttabær og mikill metnaður hjá þeim sem búa í bænum. Það sem hefur einkennt Hafnfirðinga er mikill kraftur og það að standa uppi sem sigurvegari. Sjálfur er ég gamall íþróttamaður og áður fyrr 30 kg léttari fékk ég stundum að finna fyrir þeirri tilfinningu að standa uppi sem sigurvegari eftir hörð átök á vellinum og mótum. Nú læt ég mér nægja að horfa á börnin mín lifa þessa tilfinningu í okkar bæ Mekka íþróttanna. Hjá Alcan starfa margir slíkir menn sem ætla sér að sigra þessa fáránlegu óígrunduðu íbúakosningu.
Í Hafnarfirði þekkir fólkið þá tilfinningu að sigra og að leggja sig fram. Íþróttafélögin í bænum hafa gert það í öllum aldursflokkum og við starfsmenn höfum gert það hjá okkar fyrirtæki í eitt það besta innan álgeirans.
Þróun íþróttafélaganna í bænum hefur verið einstök í öllum aldursflokkum og áttum við Hafnfirðingar hundruði íslandsmeistara í fjölmörgum íþróttagreinum á síðasta ári. Við hjá Alcan teljum okkur heimsmeistara í þróun á okkar gömlu verksmiðju en við viljum svo sannalega fá að þróast meir og fá að sýna okkar yfirburði ef Hafnfirðingar segja já takk við stækkun Alcans. Annars förum við í niðurgírinn og okkar frábæra verksmiðja með græna málminum verður lokað eftir nokkur ár.
Kæru Hafnfirðingar.
Ef Alcan verður stækkað þá trúi ég ekki öðru en að það verði mikill kraftur í öllum stoðum bæjarlífsins vegna vaxandi samfélagsábyrgðar fyrirtækisins. Ef Alcan verður ekki stækkað þá er það víst í mínum huga að dauði og drungi mun svífa yfir bænum okkar og krafturinn síðustu ára mun þverra út. Það er ekki nóg að benda á einhver sprotafyrirtæki eins og talsmenn Sólar í Straumi tala um og tönglast á um þessar mundir. Þeir verða að skilgreina hvað þeir eru að meina því sjálfur veit ég ekki hvað þetta sprotafyrirtæki þýðir.
Segjum JÁ TAKK við stækkun Alcans.
Kveðja Árelíus Þórðarson.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2007 | 03:33
Er ljósvakamiðill gegn stækkun Alcan?
Auðvitað ætlum við starfsmenn ekki að láta afturhaldið vaða yfir okkur heldur ætlum við að berjast til 31 mars dag og nótt. Sigra þessa bjánalegu óígrunduðu íbúakosningu og taka slaginn.
Fyrir rúmu ári síðan skrifaði ég þingmanni bréf eftir að einn ljósvakamiðill og fjölmiðlar gengu svo langt í sínum umfjöllunum að mér varð mjög misboðið. Ólýginn sagði mér að vænta megi óhróðurs á fyrirtækið og jafnvel starfsmenn þess næstkomandi Sunnudag frá sama fjölmiðli þar sem neikvæðin á að vera í fyrirrúmi. Hafa eigendur þess fyrirtækis einhver annarleg sjónarmið gagnvart vinnandi fólki og láta það átölulaust að starfsmenn þess sinni sínum annalegu sjónamiðum og skoðunum?
Opinbera bréfið fyrir ári síðan til Þingmannsins
Sæll.
Það verður að segjast eins og er að umræður stjórnarandstöðunnar hafa sjaldan verið málefnalegar og tel ég að fólk sé orðið þreytt að hlusta á andstöðuna vera á móti öllu og góðu málunum líka.
Að mínu viti er rekstur álvera hátækniiðnaður og þekki ég starfshætti þar vel enda búinn að vinna þar í 9 ár en þar áður 18 ár á sjó. Vegna nútíma tækni þá er mengun frá Alcan í dag, 180.000 tonna álver langtum minni en í byrjun reksturs með 60.000 tonna álver.
Það er mín skoðun eftir mína reynslu af vinnu í álveri að þjóðin eigi að fagna þessum tækifærum. Hjá okkur í Alcan fá ekki allir vinnu sem vilja vinna hjá okkur þar sem lítil hreyfing er á starfsfólki og verkamannalaunin góð allt upp í 500.000 á mánuði hjá duglegu fólki.
Ég veit um þó nokkra sem ekki komast að hjá okkur vegna fárra mannabreytinga sem eru í startholunum að flytja austur þegar álverið þar verður starfrækt, samt er þensla og góðæri. Fólk sækist eftir öryggi og góðum launum sem það getur lifað af. Karfist er hæfni og getu þar sem það tekur þó nokkurn tíma að komast inn í keðju til að búa til ál.
Hvað mig varðar þá hef ég verið sendur á óteljandi námskeið og þriggja ára nám til að sérhæfa mig í að búa til ál. Þetta nám er að mestu sérhæfing. Að henda þessari kunnáttu frá sér er glapræði fyrir þjóðina og marga tugi ára aftur til fornalda.
Ég skora á þig og aðra sem eru efins um stóriðju á Íslandi að kynna þér málin og koma í heimsókn til okkar.
Sjálfur hef ég ekki séð þig ennþá.
Baráttukveðja
Árelíus þórðarson
Sent af Árelíus Þórðarson kl. 11.02.06 23:07
------------------------------------------------------
Eins og einhverjir hafa sjálfsagt tekið eftir þá verður Alcan með heimsóknartíma fyrir þá sem vilja kynna sér starfsemina hjá fyrirtækinu og sjón er sögu ríkari.
Kveðja Árelíus Þórðarson.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2007 | 14:13
Nýtt örorkumat bætir hag öryrkja.
Nýtt örorkumat bætir hag þeirra sem eru með skerta starfsorku og gefur fólki kost á því að fara út á vinnumarkaðinn þetta eru ánægjulegar fréttir að þessu fólki skuli nú fá þau réttmætu mannréttindi sem þessi hópur hefur þurft að berjast fyrir um langt skeið til að vera nýtir þegana í þjóðfélaginu að nýju.
Í samningum SA/Alcan og stéttafelagana komu þessi mannréttindi fyrir nær 20 árum síðan. Hjá Alcan er starfrækt ,,Smiðja" þar sem starfsmönnum með skerta starfsorku hafa vinnu og er Alcan-ÍSAL eina fyrirtækin sem hefur samið um þessa starfsemi í stað þess að starfólk missi réttindi til vinnu vegna skertra starfsorku heldur það fullum launum og starfi, Nú tæpum tuttugu árum síðar er samið um það að aðrir þjóðfélagshópar njóti sömu réttinda og starfsfólk Alcan hefur notið um langt árabil hjá Alcan-ÍSAL og fagna starfsmenn Alcan því.
Kv,Sigurjón Vigfússon
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Komið þið sæl. Er nýkominn frá Danmörku og nýkomin af 16 tíma vakt. Í litlum bæ sem bróðir minn býr í sem heitir Pindstraup er 100 ára gömul spónar verksmiðja í miðjum bænum. Þessi verksmiðja spúir þykkum reyk allan sólarhringinn dag og nótt. Í vissum vindáttum leggur brennifnyk yfir bæinn. Samt eru allir bæjarbúar mjög hliðhollir þessari verksmiðju sem fæðir og klæðir þrjú þúsund íbúa samfélagsins. Hjá Alcan sjá bæjarbúar aldrei slíka mengun þar sem verksmiðjan okkar spúir ekki eld og reyk dag og nótt. Alcan hefur ákveðið að bjóða fólki að koma og sjá starfsemina með eigin augum og þá hátækni sem þrífst innan veggja fyrirtækisins.
Að sjálfsögðu spurði ég bróður minn vissra spurninga þar sem ég eftir þessa sjón varð hneykslaður af samfélaginu mínu í Hafnarfirði, þeirra sem hafa nýtt okkar góða fyrirtæki niður í skóinn. Á eitt hundrað afmæli fyrirtækisins í Pindstraup á síðasta ári gaf fyrirtækið öllum bæjarbúum stórar og góðar gjafir. Fólkið var þakklátt og enginn svívirti fyrirtækið og kallaði gjafirnar mútur eins og leiðbeinendur frá Sól í Straumi reyndu að telja okkur bæjarbúum um enda var aðeins um 20- 30 geisladiskum skilað af 8000 diskum.
Kæru Hafnfirðingar.
Ég vil sjá eitt mesta umhverfisvæna fyrirtækið á Íslandi vaxa og dafna. Ég vil sjá Alcan leggja mikinn pening í íþróttafélögin á næstu árum. Ég vil að bæjarstjórnin hver sem hún verður hafi bolmagn til að létta á skattpínu sinni á okkur bæjarbúa. Ég vil sjá öflugt og kröftugt atvinnulíf.
Að lokum kæru Hafnfirðingar?
Þið verðið að skoða málin frá eigin hugsjón? Hvort það sé gæfulegt fyrir okkur Hafnfirðinga að Vg og Sól í Straumi komi okkur þrjátíu ár aftur til anskotans. Svo væri gaman að fá að vita hvað fólk á við með orðinu sprotafyrirtæki en þetta orðalag er mikið notað af meðlimum Sólar í Straumi um þessar mundir. Allir þeir sem tjá sig í athugasemdardálki undir fullu nafni verður svarað en öðrum dulnefningum ekki.
Kveðja. Árelíus Örn Þórðarson sem er að eflast eftir hina frábæru ferð.
![]() |
Tap deCODE eykst milli ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 02:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2007 | 17:08
Leggja til að iðnaður hverfi úr Hafnarfirði.
Nýjustu hugmyndir Sólarmanna er að leggja niður alla iðnaðarstarfsemi í Hafnarfirði og flytja hana í önnur byggðalög samkvæmt viðtali við Pétur Óskarsson talsmanns Sólar í Fréttablaðinu
Ekki nægir lengur að stöðva uppbyggingu þróunar og hugmyndar og nýsköpunarfyrirtækis eins og Alcan allur annar iðnaður í þessu hverfi skal fluttur burt úr Hafnarfirði á hverju eiga svo Hafnfirðingar að lifa ferðaþjónustu sjoppurekstri og þeir sem ekki komast þar að tína grös, ef deiliskipulagið verðu fellt fara þá Sólarmenn og Vinstri grænir fram á það að kosið verði um aðra starfsemi í hraunin og hún verði flutt burt það virðist vera komið á stefnuskrá þeirra samkvæmt viðtalinu.
Kv, Sigurjón Vigfússon
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nást hefur samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar annarsvegar og Alcan hinsvegar og ríkisins um greiðslu á stjöttum til Hafnarfjarðar fasteignargjöld samkomulag þetta er háð samþykkt alþingis og mun vera borið undir atkvæðagreiðslu nú á næstum dögum eða fyrir þinglok.
Þetta er þungamiðja sem staðið hefur í vegi fyrir að Bæjarfulltrúar Samfylkingin í Hafnarfirði mæli með stækkun eða hafni eða taki afstöðu nú þegar þetta mál er komið í höfn er ekkert til fyrirstöðu að Bæjarfultrúar Samfylkingi í Hafnarfirði samþykki stækkun eða geri upp hug sinn með eða á móti þar sem beðið eftir að mál þetta komi í höfn til að getað gefið út yfirlýsingu varðandi stækkun, Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar samþykkt stækkun.
Ferli í stækkun Alcan-ÍSALs sem staðið hefur yfir undanfarin ár er þessir og áfangar:
1999 Hugmyndir að stækkun álversins skýrast
2000 Vinna við mat á umhverfisáhrifum stækkunar hefst.
2002 Umhverfismat lagt fram og samþykkt án athugasemda sem er einstætt.
2003 Hafnarfjarðarbær selur álverinu land undir stækkun.
2005 Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi fyrir allt að 460 þús. tonna framleiðslu á ári.
2006 Orkusamningur við Orkuveitu Reykjavíkur (undir forystu R-listans) og samkomulag við Landsvirkjun um orkukaup.
2007 Nú eftir átta ára undirbúning, þegar hyllir undir að hægt sé að hefja útboð og framkvæmdir verður efnt til almennrar atkvæða greiðslu um skipulag ,deiliskipulag" svæðisins og láta þar með í raun greiða atkvæði um það hvort stækka megi álverið.
Tekjur Hafnarfjarðarbæjar, sem tengjast starfsemi Alcan, munu stóraukast verði af stækkun álversins í Straumsvík. að þær gætu numið ríflega 1.400 milljónum á ári í Gróflega má áætla að tekjur bæjarins af starfsemi álversins muni nema 12-13% af heildartekjum bæjarins eða sem nemur 250.000 á hverja fjögra manna fjölskyldu.. Það eru ekki aðeins tekjur Hafnarfjarðarbæjar sem aukast mikið því að ríkið fær einnig mikið í sinn hlut ef af stækkun verður. Tekjur ríkisins af starfsemi fyrirtækinu á bilinu 2,6-3,1 milljarðar en verða á bilinu 4,2-5,2 milljarðar eftir stækkun. Þá eru auknar tekjur af raforkuframleiðslu og raforkuflutningi vegna stækkunnar álversins ekki teknar með í reikninginn en allir vita að þar er um verulegar fjárhæðir að ræða.
Reiknað er með að launagreiðslur fyrirtækisins aukist úr 2,9 milljörðum á ári í 4,8 milljarða og starfsmönnum fjölgi um ríflega 300-350. Reiknað er með að aðföng (vörur og þjónusta) sem álverið kaupir frá fyrirtækjum í Hafnarfirði aukist úr 2.0 milljörðum 2006 í 3,6 4,0 milljarða og þar verði til önnur 300 störf. Reiknað er með að utan Hafnarfjarðar verði til önnur 240 störf sem byggjast á sölu vöru og þjónustu til álversins og rúmlega 3 milljarða velta á ári. Við stækkun álversins í Straumsvík verða til um 1100-1200 ný og varanleg störf, þarf af um 300 - 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Heildarstarfsmannafjöldi hjá álverinu verður þá um 850. Afleidd störf vegna stækkunar bein störf og óbein störf eftir stækkun eru áætluð að verði 2100 til 2200 alls. Þetta er fyrir utan orkukaup frá Landsvirkjun.
Kv,Sigurjón Vigfússon
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2007 | 08:58
Ályktun miðstjórnar RSÍ um stækkun álversins í Straumsvík.
Fundur miðstjórnar RSÍ þ. 2. marz 2007 mælir með fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík, enda verði þar settar upp bestu mengunarvarnir sem völ er á hverju sinni. Þrátt fyrir að álframleiðsla Alcan í Straumsvík meira en tvöfaldist eftir stækkunina er það yfirlýst að loftgæði verða undir öllum mörkum sem sett hafa verið innan sem utan lóðamarka álversins. Íslendingar hafa í vaxandi mæli á undanförnum misserum upplifað að fjölmörg störf í iðnaði hafa verið flutt úr landi. Við stækkun álversins í Straumsvík verða til um 1200 ný og varanleg störf, þarf af um 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Heildarstarfsmannafjöldi hjá álverinu verður þá um 850.
Kv.Sigurjón Vigfússon |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó