Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Rangfærslur og ósannindi anstæðinga.

Erla Sigurlaug Sigurðardóti ritar grein þar sem hún fullyrðir að Alcan sé hættulegri vinnustaður en margir aðrir hér á landi, nú sýna hinsvegar tölur frá Vinnueftirlitinu að svo sé ekki heldur þvert á móti .þessi fullyrðing Erlu eru því ekki samkvæmt sannleikanum hún á að vita betur.

Einig kemur fram hjá henni að hún sé mót fallin þeim er styðja stækkun þá má sem sagt enginn styðja stækkun bara vera á móti.

Enn fremur er sagt að sem staðreynd að tekjur af Alcan sé 1-2% heildar tekjur eru yfir 400 milljónir af starfsemi Alcan sem er á milli 5-6% af tekjum Hafnarfjarðar fyrir stækkun.

Að mengun muni aukast um 250% sem heldur er ekki satt,  losunarheimildin er 150%

Það er rangt hjá henni að Alcan sé inn í miðjum bæ Alcan er stað sett í framtíðar iðnaðarhverfi Hafnarfjarðar og er lóð þess 20% af því svæði iðnaðarsvæðið er ekki íbúðarbyggð sem einig er rangt hjá henni.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan já Takk. 

 

 

 


Lýðræðisleg réttindi á skoðunar og tjáningarfrelsi fótum troðið.

Hag Hafnarfjarðar er meinuð þátttaka á almennum fundi, á vegum ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkana í Hafnarfirði, sem halda á í Flensborgarskóla í kvöld.
Upphaflega var  Hag Hafnarfjarðar boðin þátttaka í fundinum en það boð hefur nú verið dregið til baka vegna mótmæla frá öðrum þátttakendum. Þetta eru ólýðræðisleg og afar ósanngjörn vinnubrögð. Stjórnmálaflokkar senda sína fulltrúa til fundarins og er fulltrúi Sólar í Straumi boðinn velkominn á fundinn. Rödd Hag Hafnarfjarðar  fær ekki að heyrast.  Er þetta það lýðræði sem Hafnfirðingum er boðið upp á?

Kv,Sigurjón Vigfússon 

Stækkum Alcan já takk.


mbl.is Fulltrúum Hags í Hafnarfirði meinuð þátttaka á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður VG og sólarmanna nær nú hámarki sínu

 Áróður VG og sólarmann nær nú hámarki sínu í Hafnfirskumfjölmiðlum þar viðra þeir skoðanir sínar rétta andlit þeirra kemur berlega í ljós varpað er frá sér gömlu afturhalda kommagrímunni og komma krypplingurinn kemur þar í ljós  sannleikurinn er látin víkja fyrir óheiðarleikanum og ósannindanum og sannleikurinn hann bókstaflega drepinn, Hafnfirðingum bókstaflega talin trúum ýmsa þætti er ósannir eru reyt er að slá ryki í augu Hafnfirðinga með ritræpu af verstu gerð eins og dæmin sanna.

Einn af þessum mönnum er Jón Ólafsson kennari, hann talar um álbræðslubæ þó svo að hann viti að það er engin álbræðsla í Straumsvík álbræðsla er allt annar iðnaður en Álver kommar og sólarmenn verða að fara að gera greina mun á Álbræðslu og Álveri þetta setja þeir fram í einum tilgangi einu sem er að hnekkja á starfsmönnum Alcan þeir vita muninn á þessum iðnaði samt sem áður er sí og á talað í niðrænum tón til starfsmanna Alcan.

,, Viljum við að álbræðslafyrirtæki”  hér fer hann aftur viljandi rangt með, ,, gangi kaupum og sölum” fyrirtæki á Íslandi hafa og ganga sölum og munu gera svo áfram þarna er verið að taka eitt fyrirtæki úr öðrum til að tortryggja Alcan, framsetningin einungis sett fram til að skaða starfsfólk Alcan ÍSAL.

Viljum við bæ þar sem  börn sofa út í vögnum sem eru næst álbræðslunni þarna fer hann aftur rangt með börnum er mun hættari við umferð um Reykjanesbraut vegna svifmengunar frá bíla umferð en Alcan sem er í 1.5 km frá næstu byggð sjá kort, sjá frétt, um mengun frá Reykjanesbraut. Sjá  frétt .sjá myndband frá Stöð 2

Siðan óskar hann eftir auknum mengandi ferðariðnaði sem mengar hnattrænt í farþegaflugi til Íslands og innanlands flug um yfir 14. milljónin tonn af CO2 sem jafngildir losun um 50 álverum eins og Alcan.

Menn sem skrifa greinar um þessi mál verða að hafa menntun á þessu sviði, til eð vera marktækir og skoða hlutina út frá fleiri sjónar hornum.

 

Stækkum Alcan já takk.

 Kv, Sigurjón Vigfússon 


Vinnum að því að lágmarka svifryk og stækkum Alcan

Stuðningsmenn öfgaumhverfisstefnu verða að vera samkvæmir sjálfum sér og henda bílgörmum sínum og fá sér reiðhjól í staðinn .Í fréttum Stöðvar 2 um daginn var loks talað við hlutlausan aðila um málefni Alcans um mengun. 

Svifryk er hættulegasta mengunin sem mannfólkið býr við.                                            

Þór Tómasson, efnaverkfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir afskaplega ólíklegt að brennisteinsdíoxíð frá álverinu geti étið lungu íbúa að innan en þessi frétt kom frá fyrverandi starfsmanni Ísals í  Kompás þætti síðasta Sunnudag  - ekki nema menn stæðu með höfuðið í reyknum ofan í skorsteinum álversins. Enda sé styrkur efnisins í umhverfinu hér langt undir settum mörkum.sjá myndband frá Stöð 2

Þór hefur ekki trú á því að börn sem sofa úti í vagni, kannski allt að fjóra tíma á dag, í Vallarhverfinu og öðrum hverfum nærri álverinu verði fyrir heilsutjóni af völdum brennisteinsdíoxíðs eða annarrar mengunar. Sú loftmengun sem samkvæmt Evrópusambandinu er talin langskaðlegust heilsu manna í dag, segir Þór, er fínt svifryk og næst á eftir var köfnunarefnisoxíð. "Hvoru tveggja þessara efna koma náttúrlega mest frá umferð á Íslandi." 

Miðað við ummæli sumra þá mætti halda að sumir dreymdu dagdrauma með höfuðið ofan í reyk.  

Ég treysti sérfræðingum sem hafa farið yfir öll þessi mál og gefið Alcan leyfi fyrir stækkun.  Nútímaverksmiðja á góðum vinnustað er draumur verkamannsins. 

Kveðja Árelíus Þórðarson sem er umhverfissinni en vil hafa kröftugt atvinnulíf í sátt við náttúruna.

 

Stækkum Alcan já takk.

 

 


Hræðslu áróður VG og sólarmanna nær hámarki sínu.

Hræðslu áróður VG og sólarmann nær nú hámarki sínu í Hafnfirskumfjölmiðlum þar viðra þeir skoðanir sínar rétta andlit þeirra kemur berlega í ljós varpað er frá sér gömlu afturhalda kommagrímunni og komma krypplingurinn kemur þar í ljós  sannleikurinn er látin víkja fyrir óheiðarleikanum og ósannindanum og sannleikurinn hann bókstaflega drepinn, Hafnfirðingum bókstaflega talin trú um ýmsa þætti er ósannir eru og reynt er að slá ryki í augu Hafnfirðinga með ritræpu af verstu gerð eins og dæmin sanna.

Dæmi: Raforkusamningurinn er til næstu 24 ára raforku samningurinn rennur út 2014 eftir sjö ár ekki 24 ár hér er vísvitandi farið með rangt mál sjá link Alcan og SA og Landavirkjunar.

Það er enginn ,,héraðbrestur ef Hafnfirðingar hafna stækkun” síðan er vitnað í brott hvarfs hersinns menn horfi á nýjar leiðir í jan 2006 var atvinnu leysið á Suðurnesum 219 manns en 2007 er það 317 aukning upp á 44% atvinnuleysið er 3,2% er þetta sem greinarhöfundur vill verkalýðnum í Hafnarfirði? 3 til 4% atvinnuleysi.

Kv, SIgurjón Vigfússon 

Stækkum Alcan já takk.


Ályktun frá Hag Starfsmanna Alcan ÍSALs

Hagur Starfsmanna Alcan ÍSALs ályktar og mælir með stækkun Alcan Ísals í Straumsvík og eflingu atvinnulífsins í Hafnarfirði.

 Stækkun Alcan Ísals hefur jákvæð áhrif  á efnahags og atvinnulíf Hafnarfjarðar og öllu höfuðborgarsvæðinu til framtíðar og stuðlar að framþróun iðnaðar og þjónustu á öllu höfuð borgarsvæðinu Alcan Ísal er jafnframt að vera áliðjuver þróunar hugbúnaðar og nýsköpunar fyrirtæki og flytur út jafnt út ál í hæðsta gæðaflokki sem og þekkingu hugbúnað og nýsköpun og til þess er litið í Álheiminum sem eina fremsta fyrirtæki í þessum geira.


 Stækkun Alcan ÍSALs er í sátti við umhverfissjónarmið og fullnægir öllum skilyrðum um umhverfi .

Hnattræn áhrif stækkunarinnar verða jákvæð í umhverfismálum, Alcan hefur vottun af umhverfisstaðlinum ISO 14001 þar sem reglulega eru úttektir á fyritækinu og því vel fylgst með umhverfinu.

Þjónustufyrirtæki eru ríflega 800 á öllu landinu og yfir hundrað í Hafnarfirði.

Fimmta hvert fyrirtæki í Hafnarfirði hefur lifibrauð sitt alfarið eða að hluta til við Alcan Ísal.

 Hjá Alcan starfa nú rúmlega 460 manns í heilsársstörfum en eftir stækkunina mun þeim fjölga í 850 til 885 og árlegar tekjur Hafnarfjarðar aukast úr 490 milljónum króna í yfir 1,5 milljarð og þá er ótalið önnur gjöld sem ganga til ríkissins.
Bein og óbein störf í Hafnarfirði mun fjölga um 500 alls munu því störfum beinum og óbeinum fjölga í um 1.186.

 Þar við bætast óbein áhrif vegna aukinna viðskipta og neyslu í Hafnarfirði sem ekki verður lagt mat á.

 Margfeldisáhrifin yrðu veruleg og myndi heildarstarfsemi Alcan á Íslandi standa á bak við u.þ.b. 2.800-3.400 ársverk á höfuðborgarsvæðinu og allt að 5.600-6.800 manns hafa framfæri sitt af starfsemi álversins með beinum, óbeinum og afleiddum með einhverfum hætti.

 Sigurjón Vigfússon  

Árelíus Örn Þórðarson

Stækkum Alcan já takk.

  



 


Tilgangur Kompásar um umfjöllun um álverið í Straumsvík

Margar spurningar sitja eftir í höfði manns eftir að hafa horft á þátt Kompásar með yfirskriftinni "Um stækkun álversins".  Í kynningu kom fram að það ætti að fjalla um stækkun álversins frá báðum hliðum.  Fljótlega kom í ljós að það var ekki tilgangurinn.  Meiri hluti þáttarins fór í að ræða um starfsmannastefnu fyrirtækisins og umhverfismál með rangfærslum.  Sem hlutlaus áhorfandi hefði maður ekki orðið mikið fróðari um kosti og galla fyrirhugaðar stækkunar álversins.  Maður sat uppi með einhliða umræðu um hvernig fyrirtækinu er stjórnað og starfsmannastefnu þess.  Tekin eru viðtöl við starfsmenn sem hafa yfirgefið fyrirtækið ósáttir og virðast eiga eitthvað óuppgert við það.  Hvað með alla hina sem hafa starfað þarna í langan tíma og líkar vel.  Af hverju fáum við ekki þeirra hlið málsins.  Nei, heldur fá fullyrðingar eins og að Isal "falsi" upplýsingar um umhverfismál til að líta sem best út.  Hvernig dettur mönnum í hug að birta svona án þess að grafast fyrir um málið.  Isal mun aldrei geta "falsað" þessar upplýsingar.  Umhverfisstofnun fer yfir allar mælingar hjá Isal ásamt því að kvarða tæki sem notuð er til mælinga.  Isal er vottað af umhverfisstaðlinum ISO 14001 þar sem reglulega eru úttektir á fyritækinu og því vel fylgst með.  

Annað dæmi er um fréttaflutningin því einu myndirnar af fyrirtækinu voru birtar þegar kerleki var.  Mengunin sem var þá sýnd gefur ekki rétta mynd af álverinu.  Af hverju er það ekki sýnt eins og það lítur vanalega út.  

Fréttamaður Kompásar notaði svo allan sinn tíma til að drita sömu spurningum á Rannveigu þar sem spurt var um starfsmannastefnuna og vothreinsun.  Hversu oft þurfti hún að svara þessu svo fréttamaðurinn myndi ná þessu.   Nei það var eingöngu einn tilgangur og það var að ná höggstaði á fyrirtækið. 

Svona fréttaflutningur er til háborinnar skammar og gefur áhorfendum stöðvar 2 kolranga mynd af álverinu.  Á fólk ekki skilið að sjá hlutina eins og þeir eru.  Að lágmarki skal gæta jafnræðis og forðast einhliða umræður.  

Hafnfirðingar eru að fara að taka stóra ákvörðun eftir rúmar tvær vikur og þeir eiga ekki skilið svona fréttaflutning.  Þeir eiga skilið að taka ákvörðun út frá kostum og göllum fyrirhugaðar stækkunar og út frá staðreyndum og réttum upplýsingum.

 Það er alveg ljóst að ekki fengu þeir neinar upplýsingar um fyrirhugaða stækkun frá Kompási.


Máttar stoðir Hafnarfjarðar er stækkun Alcan

Vinstri Grænir og Sólarmenn kirja á því stöðugt að stöðva skuli framkvæmdum við stækkun Alcans ástæðan er sú að hagkerfið skuli kæla niður til að ná jafnvægi,

Þessi ástæða stenst hins vegar ekki og er að vísu út í hött.

 Ef hagstjórnaleiðin á að vera sú að stöðva eina atvinnugrein og taka hana út úr öðrum greinum til að koma á jafnvægi er náttúrlega arfa vitlaust nálgun að rífa eitt segl af mörgum á skútunni og láta hin seglin þenja skútuna fyrir fullum seglum segir bara eitt þeir skilja ekki hagstjórn þeir skilja ekki uppbyggingu atvinnuvegana.

Nálgun þeirra í þessu efni byggist einungis á heift og vissu hatursjónar miðum út í Alcan og starfsmenn þess.

Ef þeir ætla að verða máefnalegir ættu þeir að nálgast þessa umræðu og benda  á aðra atvinnu þætti líka, eins og að draga úr þorskveiðum loðnuveiðum draga úr byggingar framkvæmdum setja hömlur á bankakerfið og svo fram vegis, reyna að fækka ferðamönnum um 10% sem jafngildir 1,4 milljóna tonna sparnaði á hnattrænum losun á CO2 en það jafn gildir losun á 5 álverum eins og Alcan ef þeir beyta sér fyrir þessu eru þeir sannir umhverfisinnar ef ekki, eru þeir það ekki. Hér er ég að vitna í því sem þeir hafa haldið á lofti síðan verður hver og einn að meta það hvort þeir eru trúverðugrir og meini það sem þeir segja eða ekki ég trúi og treysti þeim ekki gerið þið það?

Hinsvegar er ábyrg efnahagsstjórnun að beita ríkisfjármálum og penningarstefnuni til að ná þessum markmiðum það stuðlar að efnahagslegum stöðuleika, en ekki svona pólitísk niðurrif úti í einar atvinugrein.

Kv, Sigurjón Vigfússon


Forsætisráðherra styður okkur framfarasinna um stækkun Alcans.

Geir H. Haarde forsætisráðherra lýsti því yfir í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag að hann styddi stækkun álversins í Straumsvík.

Forsætisráðherra tók með orðum sínum afdráttarlaust undir málflutning okkar framfarasinna og annara samtaka í Hafnarfirði þegar hann sagði að stækkun álversins væri góð fyrir Hafnarfjörð og íbúa sveitarfélagsins. Jafnframt tók Geir Haarde fram að stækkunin væri hagstæð fyrir allt þjóðfélagið.

 

Nú hafa öll hagsmuna og verkalíðsfélög ályktað um stækkunina á jákvæðan hátt fyrir okkur framfarasinna.

 

Baráttusamtökin Sól í Straumi munu þó berjast fyrir stopp stopp hagvaxtarvélinni til 31 mars með góðum stuðningi Vg en vonandi ekki stöðvar 2.

 

Kveðja  Árelíus Þórðarson.

Stækkum Alcan já takk.


Á stöð2 vantaði sannleikan.

Var að horfa á Kompánsþáttinn Ingi og Rannveig kom vel út, hinsvegar vantaða rætt væri um 1.000 milljónirnar til Hafnarfjarðar í breyttu skatt umhverfi en heildar tekjur eru áætlaðar um 1.450 milljónir þetta atriði átti að koma inn á.

 

 Pétur gat samt ekki sagt sannleika varðandi lóð Alcans sagið að hún væri jafn löng og hún væri breið eftir stækkun hann veit betur.

 Samkvæmt teikningum ARKÍS  15. 1.2007 er lóð Ísal eftir stækkun mælikvarði um 1520m á lengd og um  920m á breidd ekki jafn löng og breið skeikar um 600m. lóði stækkar um 56% stækkun á lóð já 56%. Lóð sögð  yfir 60% stærri en  hún mun verða.

Kv Sigurjón Vigfússon


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband