Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Stækkum Alcan í sátt við Hafnarfjörð og umhverfið.

Vopn í orðum eru upphaf ógæfu, hversu skrautleg sem þau eru. Þau vekja óbeit allra.  Þess vegna vill sanngjarn maður beita orðum af varúð eða reyna það?  Í friði og ólgu eru umhverfismálin til vinstri handar en í krafti lífskjarar í sátt við náttúruna til hægri. Ef beita þarf orðum hvasst vegna langvarandi baráttu ómálefnalegra andstæðinga  mun hann þurfa að beita þeim orðum sem nauðsyn ber til. 

Ég  þrái friðinn og hef enga löngun til að sigra samtökin Sól í Straumi. Í mínum huga ætti sá að vera hryggur sem skrumskælir sannleikann. Í mínum huga tapa allir ef þetta ómálefnalega orða stríð heldur áfram.

 

Á síðu Sólar í Straumi hef ég ekki tjáð mig neitt í um einn mánuð þar sem tilganglaust orðagjálfur hefur enga merkingu. Skrifbentar á síðu Sólar eru sanntrúaðir á sinn málstað og ég sanntrúaður á minn málstað.

 Kveðja Árelíus Þórðarson.


Uppvakningar Allaballa og Kommúnista.

Árið 1995 var afstaða fólks og stjórnmálaflokka fylgjandi stækkun , líka hið sósíalíska Alþýðubandalags nú VG. VG vinnur nú markvist gegn verkalýðsfélögum og starfsfólki Alcan.

Þá voru á áttunda þúsund manns án atvinnu á Íslandi. Þjóðin fagnaði stækkun enda gufaði atvinnuleysið upp eins og dögg fyrir sólu og sú velmegnum sem þjóðin býr en að hófst, nú eru komnir aðrir tímar VG vilja nú niður sveiflu og skal verkafólk  taka afleiðingunum og þá með komandi atvinnuleysi .

VG hafa tekið upp gamlar skruddur og ryk fallnar og berjast gegn starfmönnum og verkafólki í anda kaldastríðsins, skruddur þessar eru beint fram hald af ræðum þeirra og ritum frá 1960 og þar segir meðal annars.:Íslendingar yrðu ofurseldir arðráni og kúgun. Íslenskir verkamenn yrðu þrælar útlenda auðjöfa, Ísland yrði láglauna land.,, Ísland fyrir Íslendinga eina sagði”. Einar Olgeirsson leiðtogi sósalista og læriföður nú verandi leiðtoga í VG.

                                                                                                                                 

Og hélt baráttunni gegn hernum yrði smáræði miða við baráttunni gegn álinu og  uppbyggingu atvinnuvegana. Einar Olgeirsson fór fyrir sveit sósíalista til Kremlar og fékk Leoníd Brezhnev í lið með sér í baráttunni gegn landnámi útlendinga í Straumsvík. Sovéski leiðtoginn stóð þá í ströngu við að bylta Nikita Krúsjoff af valda stóli. Koma átti í veg fyrir að Ísland tengist vestrænu fjármagni og hagkerfi . Álverið var dregið inn í hið kalda stríð stórveldana. Barátta VG hefur verið sviklaus allt frá því að Einar Olgeirsson skar upp herör gegn álinu og heldur áfram ganvart verkamönnum og starfsmönnum Alcan Ísals látum ekki afturhaldið hafa neikvæð áhrif á framtíð Hafnarfjarðar og Íslands.

Starsfólk og verkafólk sem ekki vinna hjá Alcan hvenær kemur þessi flokkur og vilja láta kjósa um að ykkar vinnustaður verði lagður niður?

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk.

 


Stækkum Alcan, Já takk.

Í heimspeki má lesast ?  Bæjarstjórn sem virðist duglaus, er oft affarasælust fyrir bæjarbúa.  Ströng bæjarstjórn sem skiptir sér af öllu veldur bæjarbúum ófarnaði.  Eymd er alltaf á hælum góðærisins og hamingjan hvílir á bágindunum.

 

Eigum við að hverfa frá réttlætinu þótt fyrirtækið Alcan hafi farið alla þá lýðræðislegu leið til að fá að nútímavæðast?  Ef við hverfum frá réttlætinu?  Þá fer allt aflaga.   Vinstri-grænir og afturhaldssinnar hafa svo sannalega vaðið í villu og svima.

 

Þess vegna vaki ég dag og nótt yfir réttlætinu þannig að gott fyrirtæki fái að vaxa og dafna. Ég er fastur fyrir ef ég vil það, alltof hreinskilinn þannig að vinum mínum ofbýður stundum. Reyni að vera ekki ónærgætinn.  Reyni að túlka ljósið þó Vinstri- grænir og félagar þeirra í Sóli í Straumi vilji sjá eitthvað annað.

 

Affærasælast fyrir Hafnarfjörð og allt Ísland er að Alcan stækki og fari eftir öllum þeim leikreglum sem settar eru.  Allar tölur sýna að álver mengar alltaf minna og minna með hverju árinu sem líður.  Mesti mengunarvaldurinn á næstu árum mun líklegast verða ferðamanna iðnaðurinn að mínu viti þar sem hver einasta manneskja mengar eitthvað.

 

Þarf kannski 10% atvinnuleysi til að fólk sjái ljósið.

 

Stækkun Alcans, JÁ TAKK.

 

Árelíus Þórðarson


Útreikningum Hagfræðistofnunar 800 milljónir til Hafnarfjarðar.

Samkvæmt útreikningum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands verða beinar tekjur bæjarfélagsins vegna fasteignagjalda, hafnargjalda og vatnsgjalds rúmar 800 milljónir króna á ári.


Niðurstöður stofnunarinnar staðfesta það sem forsvarsmenn álversins hafa kynnt fyrir bæjarbúum á undanförnum mánuðum.Fulltrui Hafnarfjarðar tilkyndi
sömu niðurstöður og sömu tölur rynnu til bæjarins þetta er um sömu tölur og Hagur Hafnarfjarða og Alcan hafa bent á og Samtök Iðnaðarins fyrir utan tekjur af birgjum verktökum og útsvörum starfsmanna í þessum geira.

Það vakti athygli í Kastljósi í kvöld sem kom frá flulltrúa sólar að en fara þeir mjög frjálslega með umhverfismatið og gefa en í skin að þær stofnanir sem rannsakað hafa umhverfis þætti séu meira og minna að falsa niðurstöður og gera starfsmenn þessara stofnana tortryggilega munu þeir gera slíkt hið sama með niðurstöður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og en fremur gera þeir skóna að því að þeir vilji Alcan burt hið bráðasta.

Kv,SIgurjón Vigfússon

Stækkum Alcan já Takk. 


Hvor lýgur Davíð Þór Jónsson eða ég?

Davíð Þór Jónson fer víða í gein sinni í Fréttablaðinu á sunnudag hann geysist þar um ritvöllinn og þyrlar upp ryki og óhreinindum yfir starfsmenn Alcan, ljóst er af skrifum hans fyrirlitning hans á verkafólk og starfsmönnum Alcan og ásakar okkur um lygar án þess að geta vitnað í staðreyndi máli sínu til stuðnings.

Gróðurhúsaloftegundir segir hann að muni meir en tvöfaldast hið rétta er sem marg oft hefur komið fram er að aukningin er 150% samkvæmt starfsleyfi hér fer sannleikströllið viljandi með rangt nál.

Hann kallar okkur  íslenskt leiguþýði sem demba lygum yfir Hafnfirðinga ég verð að biðja Davíð Þór að sannað það að ég sé leiguþýði og krefst þess að hann geri svo til að fram komi hvor segi satt ég eða hann og hvor okkar sé minni maður hann eða ég.

Hann getur ekki haft það sem rétt er um línumanvirkin þar fer hann aftur með rangt mál 30 metrar orðnir að 64 metrum.

Hann talar um lítið álver og kallar það lambaspað í Noregi sem myndir eru sýndar af hið sanna er að áverið í Sunndal er 360.000 tonn álver og tali stórt á mælikvarða andstæðinga stækkunar já risastórt með íbúðarbyggð í innan við 100 metra fjarlægi. Hér er aftur farið rangt með að það sé lítið.

Hann telur það vera ekkert mál þó starfsmenn Alcan missi vinnuna ásamt beinum og óbeinum störfum og fimmta hvert fyrirtæki í Hafnarfirði ýmis loki eða hafi skerta starfsemi það er sem sagt hið besta mál að hátt í 2000 manns verði atvinnulausir í Hafnarfirði þetta sýnir ótrúlega fyrirlitningu fyrir verkafólki í Hafnarfirði hann telur kannski að við séum best geymd í gasklefum, það virðist allavegana koma fram í skrifum hans.

Hann endar greinina látum ekki ljúga að okkur, Hver er það sem er að ljúga? Að því sem framan er komið er það ljóst hver er það sem fer með rangt mál.

Davíð Þór, reyndu bara að vera málefnalegur í andstöðu þinni og slepptu því að saka heiðvirt verkafólk og starfsmenn Alcan fólk um lygar.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan já takk. 


Samþykkja Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar Hafnarfjarðar stækkun Alcan?

Nást hefur samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar annarsvegar og Alcan hinsvegar og ríkisins um greiðslu á stjöttum til Hafnarfjarðar fasteignargjöld samkomulag þetta er háð samþykkt alþingis og mun vera borið undir atkvæðagreiðslu nú á næstum dögum eða fyrir þinglok.

Þetta er þungamiðja sem staðið hefur í vegi fyrir að  Bæjarfulltrúar Samfylkingin í Hafnarfirði mæli með stækkun eða hafni  eða taki afstöðu nú þegar þetta mál er komið í höfn er ekkert til fyrirstöðu að Bæjarfultrúar  Samfylkingi í Hafnarfirði samþykki stækkun eða geri upp hug sinn með eða á móti þar sem beðið eftir að mál þetta komi í höfn til að getað gefið út yfirlýsingu varðandi stækkun, Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar samþykkt stækkun.

 

Ferli í stækkun Alcan-ÍSALs sem staðið hefur yfir undanfarin ár er þessir og áfangar:

1999      Hugmyndir að stækkun álversins skýrast
2000      Vinna við mat á umhverfisáhrifum stækkunar hefst.

2002      Umhverfismat lagt fram og samþykkt án athugasemda sem er einstætt.
2003      Hafnarfjarðarbær selur álverinu land undir stækkun.

2005       Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi fyrir allt að 460 þús. tonna framleiðslu á ári.                                                                                                                                   
2006        Orkusamningur við Orkuveitu Reykjavíkur (undir forystu R-listans) og samkomulag  við  Landsvirkjun um orkukaup.
2007       Nú eftir átta ára undirbúning, þegar hyllir undir að hægt sé að hefja útboð og  framkvæmdir verður efnt til almennrar atkvæða greiðslu um skipulag ,deiliskipulag" svæðisins og láta þar með í raun greiða atkvæði um það hvort stækka megi álverið.

Tekjur Hafnarfjarðarbæjar, sem tengjast starfsemi Alcan, munu stóraukast verði af stækkun álversins í Straumsvík.  að þær gætu numið ríflega 1.400 milljónum á ári í Gróflega má áætla að tekjur bæjarins af starfsemi álversins muni nema 12-13% af heildartekjum bæjarins  eða sem nemur 250.000 á hverja fjögra manna fjölskyldu.. Það eru ekki aðeins tekjur Hafnarfjarðarbæjar sem aukast mikið því að ríkið fær einnig mikið í sinn hlut ef af stækkun verður. Tekjur ríkisins af starfsemi fyrirtækinu á bilinu 2,6-3,1 milljarðar en verða á bilinu 4,2-5,2 milljarðar eftir stækkun. Þá eru auknar tekjur af raforkuframleiðslu og raforkuflutningi vegna stækkunnar álversins ekki teknar með í reikninginn en allir vita að þar er um verulegar fjárhæðir að ræða.

Reiknað er með að launagreiðslur fyrirtækisins aukist úr 2,9 milljörðum á ári í 4,8 milljarða og starfsmönnum fjölgi um ríflega 300-350. Reiknað er með að aðföng (vörur og þjónusta) sem álverið kaupir frá fyrirtækjum í Hafnarfirði aukist úr 2.0  milljörðum 2006 í 3,6 4,0 milljarða og þar verði til önnur 300 störf. Reiknað er með að utan Hafnarfjarðar verði til önnur 240 störf sem byggjast á sölu vöru og þjónustu til álversins og rúmlega 3 milljarða velta á ári. Við stækkun álversins í Straumsvík verða til um  1100-1200 ný og varanleg störf, þarf af um 300 - 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Heildarstarfsmannafjöldi hjá álverinu verður þá um 850. Afleidd störf vegna stækkunar bein störf og óbein störf eftir stækkun eru áætluð að verði 2100 til 2200 alls. Þetta er fyrir utan orkukaup frá Landsvirkjun.

Kv,Sigurjón Vigfússon 


Verður Hafnarfjörður gjaldþrota?

Við stækkun Alcan-ÍSALs munu tekjur ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar aukast sem nemur mörgum milljörðum þegar allt er tekið saman anstæðingar stækkunar verða að gera sér grein fyrir því að sá hagvöxtur síðustu ára er að mestu tekin sem lán erlendis og sen líður að skuldadögunum hvernig þeir ætlast til að þjóðin greiði þessi lán er hullinn ráðgáta nema þeir ætlist til að næstu kynslóðir greiði þessi lán, neyslan þjóðarinnar hefur verið að lifa um efnum fram og heimilin orðin meira og minna skuldsett með bílakaupum flatskjám og öðrum munaðavarningi og mesti  hlutinn tekin að láni.

Sé litið til nágrannaþjóðar okkar er viðhorfið að öðrum toga þær keppast við að laða til sín erlenda fjárfesta til að byggja upp þjóðfélög sín og styrkja innlend fyrirtæki og styrkja innviði sinar þjóða og búa þannig að að komandi kynslóðir geti notið þess, hér á landi eru viss öfl sem vinna markvisst að niður rifi á atvinnuvegum þjóðarinnar og tjalda öllu til svo að svo megi takast og halda upp markvissum áróðri gegn erlendum atvinnurekendum jafnt sem innlendu, hatur áróður hefur náð að mestu hámarki sínu i garðs Alcna-ÍSALs og starfsmönnum þess loka skal þessu fyrirtæki að sögn þessa hópa og skiptir þá engu máli þó starfsmenn missi lifibrauð sitt þeir segja að starfsmenn geta fengi vinnu annarstaðar en aldrei sagt hvar, aldri í sögu Íslenskuþjóðarinnar hefur önnur eins áróðursmaskina farið af stað merki rasisma er í hávegum háð með svona skoðunum og málflutningi.

Nú verða bæjarfulltrúar Samfylkinguna  Hafnarfjarðar að fara að gera upp hug sinn hvort þeir vilja meiri atvinnuuppbyggingu í Hafnarfjörð eða meira atvinnuleysi á komandi árum eða hvort þeir vilja setja Hafnarfjarðarbæ endanlega á hausinn á næstu árum þeim ber skylda til að taka ákvörðun í þessu mál til þess voru þeir kosnir, þeir geta ekki hagað sér eins og Vinstri grænir sem vilja allt af ríki og bæ og leggja ekkert til við að byggja upp atvinnu í Hafnarfjörð.

Skattamálin varðandi Alcan liggur nú þegar upp á borðinu og þær tekjur sem Hafnarfjörður mun fá af starfsemi Alcan er áætlaður yfir 1,4 milljarður eða 12 til 14% af tekjum bæjarins fyrir utan þau fyrirtæki sem koma til að vera til verði stækkað.

Rauða Ljónið kallar á ákvörðun í þessu máli Rauða Ljónið Skorar á bæjarfulltrúa Samfylkingarnar að sýna ábyrgð og hlúa að bænum sínum á sama hátt og starfsmenn Alcan og Verkalýðsfélöginn og Hagur Hafnarfjarðar og Hagur Starfsmanna Alcan takið þá ákvörðun með eða á móti.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan já Takk.


Alcan-Ísal er gott fyrirtæki.

Alcan- Ísal er gott fyrirtæki.

Sælir landsmenn.

Nú fer að líða að því hvort Alcan hafi áhuga á að stækka álver sitt á Íslandi eða ekki.
Ef áhugi verður á stækkuninni þá mun sú ákvörðun þurfa að fara fyrir íbúa Hafnarfjarðar vegna ákvarðanna bæjaryfirvalda um íbúakosningu í stærri málum. Íbúakosning er mjög vandmeðfarin og enn ef ég ekki séð neinar leikreglur um hvernig unnt sé að framkvæma slíka kosningu. Í sjálfu sér er íbúakosning ekki ólýðræðisleg í hlutverki sínu heldur þvert á móti lýðræðisleg og mun hún örugglega verða fordæmi í öðrum stærri málum þjóðarinnar.

Íbúarkosning ef hún verður að veruleika hlýtur að mínu viti að þróast yfir í þjóðarkosningar. Þar sem valdið færist frá Alþingi og fyrirtækjum yfir til landsmanna. Slíkar kosningar hljóta að verða í kjölfarið og ég tala ekki um ef einhverjar reglur væru um það hvað mörg prósent þjóðarinnar þyrftu til að krefjast slíkra kosninga.

En eru margir Hafnfirðingar sem karfist hafa íbúakosninga vegna þess að þeir hafa sett sig svo vel inn í stækkun álversins? Það hefur algjörlega farið fram hjá mér nema á einum fundi um stækkunina á síðastliðnu hausti þar sem örfáir stuðningsmanna Vinstri-Grænna kröfðu bæjarstjórann um íbúakosningu enda áróðursmenn þar á ferð. En ég er hugsi hvort Alþingi þurfi ekki að taka upp þessi mál og breyta stjórnarskránni ef þetta fordæmi verður að veruleika. Það vita allir að fólk er kosið í bæjarstjórnir og til Alþingis til að taka á erfiðum málum. Þeir setja sig inn í hlutina og skoða þá frá A til Ö. Við Almenningur höfum ekki allan þann tíma til að lesa 1000 blaðsíðna greinagerðir um allt það sem okkar ágætu lögkjörnu menn eru kosnir til að gera.

Á fundi sem ungir jafnaðarmenn héldu Sunnudaginn 19 nóv. kom fram að 50 manns hafi sótt um starf hjá fyrirtækinu í síðastliðnum mánuði. Mjög erfitt er að fá starf hjá fyrirtækinu þar sem starfsmannavelta er mjög lítil enda borgar fyrirtækið sambærileg laun sem vissulega þarf að berjast fyrir vegna samkeppni ódýrs vinnuafls frá öðrum þjóðum. Er það ekki hugsunarefni fyrir verkalíðshreyfinguna að semja ár eftir ár um lág laun og sitja síðan hjá þegar menn veitast að fyrirtækjum sem borga samkeppnisfær laun? Hvar er verkalíðshreyfingin í þessu máli?

Vissulega eru ruðnings áhrif frá ómanneskjulegum láglaunum í betri laun? Þetta ættu menn eins og Ögmundur ásamt fleirum að vita. Það er unnið mjög gott starf hjá Alcan og starfsumhverfið til fyrirmyndar. umhverfisþáttunum og öryggisþáttum er mjög vel sinnt enda árangurinn við að lágmarka gróðurhúsalofttegundir á heimsmælikvarða síðasta áratug miðað við í upphafi starfsseminnar.

Að lokum.

Peningakassi Hafnarfjarðar mun bólgna út um 800 milljónir ef af stækkun yrði. þá fyrst væri hægt að tala um að létta á skattpíndasta útsvari bæjarfélags Hafnarfjarðar hvað samfeldur árafjölda varðar. í nánustu framtíð mun þjónusta við bæjarbúa aukast mikið enda margt hægt að gera fyrir 800 milljónir. Enda er Alcan burðarás atvinnulífs í okkar bæ og mun vonandi verða það áfram.
Sjálfur er ég hlynntur stækkun enda búinn að vinna hjá góðu fyrirtæki í um 10 ár. Engin veit ævi sína fyrr en öll er en í upphafi átti þessi vinna aðeins að verða stökkpallur hjá mér.

Höfundur er Árelíus Þórðarson.  Þessi grein var í Morgunblaðinu þann 22 nóvember.

Álskútan Græni Svanurinn

 

Einn greinarhöfundur í Fréttablaðinu í dag býður sjálfum sér upp á dekki á Álskútunni Græna Svaninum sem siglir þöndum vistvænum seglum um víðáttu hafsins og aflar þjóðinni björg í bú landar vistvænum afla sínum í Hafnarfirði og styrkir máttar stoðir  efnahagslífs Hafnfirðinga. Framfarasinnið áhöfn býður hann velkominn í hópinn enda hefur nýji áhafnar meðlimurinn margt gott til málana að leggja varðandi vistvæna siglingu Græna Svansins og vistvæn aflabrögð.

Hann ræðir um vistvæna vatnsvirkjunar framkvæmdi sem nota má til að skútan nái meira skriði en stækka á skútuna til að hún geti aflað meiri vistvæna afla og fært björg í bú. Hann tekur í sama streng um virkjun í neðri hluta Þjórsá eins og Steingrímur J. og Ómar Ragnarson hafa áður gert sem er besti kosturinn í virkjunar málum.

Hann vitnar í vísinagreinar um áliðnað og hvað Áliðnaður með vistvænum orkugjöfum eins og á Íslandi sparar mikið hnattrænt losun af CO2 tölur þær sem áður hafa komið fram og hann nefnir eru 1.182 þúsund tonn  ein miljón eitthundrað áttatíu og tvöþúsund tonn á árinu 2004 og 3.474 þúsund tonn þrjár milljónir fjögurhundruð sjötiu og fjögurþúsund tonn sparnað af CO2 vegna léttleika Græna málmsins  ef stækkað verður í Straumsvík.

Það er hinsvegar sorglegt hvað VG er mikið á móti minkunn hnattræni losun á CO2 en þeir vilja auka hana hnattrænt með því að koma í veg fyrir stækkun Alcans í þeim eina tilgangi að auka við sig fylgi í komandi kosningum þá skipta umhverfis málin eigu máli þegar málið er skoðað í samhengi.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan já Takk.

 


Horfum á framtíðina og látum aldrei afturhaldsöflin byrgja okkur sýn.

Komið þið sæl.  Að skrifa um það sem er rétt og satt í rúma tvo mánuði um sama málefnið getur stundum tekið á.  Undirritaður sem hér heldur á penna kann í sjálfu sér ekkert á þetta blog nema að skrifa eitthvað strax frá því sem honum liggur á hjarta og senda það.  Undirritaður hefur fengið kvörtun yfir því hvers vegna hann skrifar svona harðort í garð Vg og tengir Sól í Straumi við þann stjórnmálaflokk.  Undirritaður ætlar að reyna að lýsa sinni skoðun á því hvers vegna hann hefur verið með öll þessi skot á Vg. 

Fyrir rúmu ári síðan var stofnuð síða sem heitir “Staðreyndir og umræður um stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík”   Á sama tíma komu mjög ósvífin skrif í fjölmiðlum frá mörgum skrifbendum sem kölluðu okkur starfsmenn mörgum illum nöfnum sem ég treysti mér  ekki er að hafa eftir hér.  Öll þessi skrif gegn okkur starfsmönnum í álveri áttu það sameiginleg að þær voru undirritaðar af stuðningsmönnum Vg. Ef þið hafið aðgang að net-Mogganum þá  getið þið örugglega nálgast þessar greinar.  Við framfarasinnar létum margan óhróðurinn yfir okkur ganga og létum litlu svarað enda vann Vg  góðan sigur í sveitastjórnarkosningunum síðastliðnum, mikið til út á  kostnað starfsmanna Alcans með Ögmund í broddi fylkingar. 

Nú er nóg komið og skora ég á Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Frjálslynda flokkinn að koma sterkir til  og blása niður þennan sósíalíska afturhaldsama málflutning Vg og stuðningsmanna úr Sól í Straumi niður því ég man eftir drunganum hér í Hafnarfirði árið 1993 þegar 10% Hafnfirðinga gengu hér um atvinnulausir eftir Vinsri stjórnina 1988. 

Málflutningur afturhaldsinnana í Vg er stór hættulegur og margra áratuga afturfarar til fortíðar.  Hafnfirðingar munu sjá svarta Sól í Straumi ef kjósendur Íslands vilja láta Steingrím fá lyklavöldin í Stjórnarráðinu.  Ef tekin er græna ímyndin af flokknum þá er ekkert eftir nema hinn argasti niðurrifs afturhalds sósialískur flokkur sem var vinnsæll hjá niðurrifs öflunum um miðja síðustu öld.  Alþýðubandalagið sáluga barðist þó með hagsmuni verkafólks að leiðarljósi 

Læt þennan fyrsta kafla af mörgum um umfjöllun minni á Vg nægja að sinni.  Ég þekki margt gott fólk sem aðhyllist grænu stefnu Vg en það er mín skoðun að stefna flokksins er stórhættuleg fyrir framtíð landsins og barnanna  okkar. 

Sjáum ljósið kæru Hafnfirðingar og stækkum Alcan.   

Kveðja Árelíus Þórðarson.

Stækkum Alcan já Takk.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband