24.1.2007 | 02:26
Tillaga? Kosið um stækkun Alcans 31 mars og samþykktt að veita styrki/fundargerð bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði var samþykkt í gær eftirfarandi tillaga um styrki til hinna ýmsu samtaka um stækkun Alcans sem vilja kynna skoðanir sínar. Einnig kom fram tillaga um að kjósa skuli um stækkun Alcans 31 mars.
3. 0701299 - Kjördagur og undirbúningur íbúakosningar vegna deiliskipulags á Alcan-svæðinu. Lögð var fram eftirfarandi tillaga til næsta fundar?
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að heimila bæjarráði að styrkja samtök/lögaðila sem leita eftir fjárhagslegum stuðningi vegna kynningar á sjónarmiðum og viðhorfum í tengslum við kosningarnar. Í því sambandi verði miðað við þær styrktargreiðslur sem veittar hafa verið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
"Vísað til afgreiðslu á næsta fundi. "
Ég fann það hvergi hvað bæjarsjóður Hafnarfjarðar hefur veitt mikla styrki til pólitískra athafna eða hvað slík upphæð er stór á síðustu árum.
Ef einhver veit meira um fordæmi á pólitískum styrkjum Hafnarfjarðabæjar, þá væri gott að fá innskot í athugasemdardálkinn. Það er mín skoðun að bæjarsjóður á ekki að ausa peningum úr tómum peningakassa í slík verkefni heldur eiga samtök að leita til fyrirtækja eða annara velunnara sem styðja þeirra mál. Nú er svo komið að bæjarkassinn verður líklegast að afgreiða tugi umsókna til hinna ýmsu samtaka sem vilja kynna mál sitt um stækkun Alcans.
Stækkum Alcan, JÁ TAKK.
ÁÞ
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:30 | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Athugasemdir
Ég kýs með stækkun álversins ef Vinstri grænir ætla að eigna sér andstöðuna á móti stækkuninni. Heldur er ég hallur undir að leyfa ekki stækkun en myndi aldrei gera neitt sem litið yrði á sem stuðning við sjónarmið VG, sem ég tel vera samtök svartasta afturhalds landsins. Bæjarfulltrúi VG ætti því að koma fram í þessu máli sem einstaklingur en ekki sem fulltrúi VG vilji hún ekki fæla frá þá sem eru sama sinnis og ég.
GÓ
Guðmundur Óskarsson (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 13:56
Sæll, Guðmundur Óskarsson.
Kynningar varðandi stækkun munu verða bitar í miðlum nú á komandi dögum þar munu málin skírastra mun betur en hingað til, geta menn þá tekið afstöðu í ljósi upplýsinga hvað það er mikilvægt fyrir Hafnarfjörð að stækkum megi ná að fram að ganga.
Kv.Svig.
Rauða Ljónið, 25.1.2007 kl. 15:31
Andstaðan við stækkun erlenda auðhringsins Alcan er þverpólitísk eins og þeir vita sem vilja. Að sumu leyti get ég skilið afstöðu þeirra starfsmanna Alcan sem vilja að fyrirtækið fái möguleika að stækka þ.e. að þeir vilji tryggja störf sín. Hins vegar finnst mér þetta eigingjörn afstaða og þeir sem á þessa síðu skrifa ekki gera tilraun til að setja sig í spor þeirra sem eru á móti þessum stækkunaráformum. Ég á bágt með að trúa því að vel upplýst fólk sjái ekki önnur atvinnutækifæri í Hafnarfirði en fjölgun starfa hjá Alcan. Ég á líka bágt með að trúa því að fólk hafi þá framtíðarsýn að í miðjum bænum eftir u.þ.b. 20 ár verði risaálver.
Flestir stækkunarsinnar sem skrifa hér tala í messutón. Alli vinur minn bætir svo gjarnan við.. Já takk.. sem er úr gamalli herferð: ,,Veljum Íslenskt - já takk." Ég sé ekki betur en hann sé nú að prédika fyrir okkur að velja útlenskt, velja útlenskan auðhring sem hefur það eina markmið að hámarka gróða sinn.
Sigurður Pétur, (IP-tala skráð) 25.1.2007 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.