8.2.2007 | 09:23
Stækkun í Straumsvík, já takk!
Íbúar Hafnarfjarðar og aðrir landsmenn sem fylgst hafa með umræðunni um stækkun álversins í Straumsvík hafa eðlilega verið að velta því fyrir sér hverjar líkurnar séu á því að móðurfyrirtækið Alcan Inc. sem er eigandi álversins reki það áfram eftir árið 2014 en þá rennur núverandi raforkusamningur út við fyrirtækið.
Sé tekið mið af þeim tækniframförum sem orðið hafa eru líkurnar á því nokkuð minni en meiri. Staðreyndin er sú að verið er að loka eða selja til minni álfyrirtækja bæði austanhafs og vestan þau fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sambærilegri tækni og ISAL notar í dag. Ný tækni hefur gert rekstur þessara gömlu álvera óhagkvæman og nú er svo komið að gömlu álverin hellast úr lestinni eitt af öðru því þau eru hætt að standast samkeppni við þau nýju á öllum sviðum.
Markmið Alcan Inc. er að vera best og leiðandi á heimsvísu í rekstri álvera, þar með talið í umhverfis- og öryggismálum. Álver eru hátæknivinnustaðir og byggja á menntun og hugviti starfsmanna sinna. Álver sem vinnustaður býður uppá tækifæri fyrir fólk af báðum kynjum með ólíka menntun. Álverið í Straumsvík hefur ekki tækifæri til þess að standast metnaðarfull markmið Alcan Inc. til lengri tíma litið í óbreyttri mynd. Þar af leiðir er ekki ólíklegt að móðurfyrirtækið Alcan setji álverið í Straumsvík á sölulista eða einfaldlega hætti rekstrinum og loki í Straumsvík árið 2014 ef það fær ekki tækifæri til að halda álverinu áfram í hópi bestreknu álvera í heiminum í dag.
Það má leiða að því líkum að álfyrirtæki með minni metnað en Alcan Inc. muni hugsanlega vilja kaupa ISAL náist ekki fram stækkun og þar með uppbygging með nýjustu tækni. Þá munu væntanlegir nýir eigendur eflaust reyna að ná samningum um raforku í 10 ár til viðbótar eins og núverandi samningar heimila til að mjólka út úr verksmiðjunni sem mestan arð á sem stystum tíma. Það liggur í augum uppi að umhverfis- og öryggislegur metnaður fyrirtækja í slíkum rekstri er annar heldur en þeirra sem horfa til lengri framtíðar.
Til að gefa örlitla mynd af þeirri nýju tækni sem notast er við í álverum í dag þá eru þau 280 þúsund viðbótartonn af áli sem stækkunin byggir á framleidd í tveimur kerskálum sem samsvarar til 2/3 hluta af því húsnæði sem ISAL notar í dag til að framleiða 180 þúsund tonn af áli. Sama þróun er á öllum búnaði, þar með töldum hreinsibúnaði. Alröng er sú fullyrðin forsvarsmanna Sólar í Straumi að leggja saman fyrirhugaða framleiðsluaukningu og halda því fram að losun efna sem koma frá álverinu verði í sama hlutfalli og samsvarar fyrirhugaðri stækkun. Samanburðarmælingar í gróðri frá lóðamörkum ISAL og upp í Skorradal sem gerðar hafa verið með reglulegu millibili í tæp 40 ár sína enga aukningu efna frá ISAL í gróðri. Sama má segja um lífríki sjávar umhverfis álverið í Straumsvík. Öll starfsemin er í fullri sátt við náttúruna. Fyrirhuguð stækkun í Straumsvík er undirstaða hagsældar í Hafnarfirði og landsmanna allra. Allt tal um mengun byggir í besta falli á vanþekkingu og á stundum á hræðsluáróðri. Því miður er umræðan of oft á villigötum ásamt umræðunni um virkjun neðri Þjórsá. Það er öllum ljóst sem vilja vita að virkjað verður í neðri Þjórsá hvort sem álverið verður stækkað eða ekki. Ef eitthvað ógnar því að mengun fari að berast frá Straumsvík þá gæti það helst og hugsanlega gerst ef Hafnfirðingar greiða atkvæði gegn stækkun og koma þannig í veg fyrir að nýjasta tækni og metnaðarfullir aðilar standi í framtíðinni áfram að rekstri álversins í Straumsvík.
28. janúar 2007
Halldór Halldórsson
Höfundur er starfsmaður
álversins í Straumsvík
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 14:44 | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Athugasemdir
Sæll, Halldór !
Eru þetta hortugheit nokkurra Hafnfirðinga, og nærsveitamanna þeirra Halldór,eða .................... skipta sjónarmið okkar, hér á Suðurlandi, um gagnsemi virkjunarmöguleika í okkar heimahéraði, síðar á 21. öldinni, eða enn síðar engu máli ?
Kynni að vera, Halldór; að við, sem byggjum Vestur- Skaftafells, Rangár og Árnessýslur vildum hafa með málefni okkar orkuauðlinda að véla, í þágu heimahéraðs okkar, á komandi tímum. Höfum hingað til verið veitendur orkugnægðar, til ýmissa landshluta, og ekki notið neinna sérkjara, umfram aðra landsmenn, enda ekki farið fram á þau, sérstaklega.
Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.2.2007 kl. 22:43
Sæll Óskar Helgi, ég skil vel hvað þú ert að fara og skil þítt sjónarmið mjög vel. Það sem ég á við er að Landsvirkjun stjórnar því hvar það fyrirtæki virkjar ásamt stjórnvöldum. Það er búið á þeim vettvangi að undirbúa virkjun neðri Þjórsár. Ef ISAL kaupir ekki orkuna munu einfaldlega einhverjir aðrir gera það, hugsanlega heimamenn, önnur álver eða strengur lagður til Færeyja svo einhver dæmi séu nefnd. Bestu kveðjur Halldór
Halldór (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.