Leita í fréttum mbl.is

Stækkun í Straumsvík, já takk!

Íbúar Hafnarfjarðar og aðrir landsmenn sem fylgst hafa með umræðunni um stækkun álversins í Straumsvík hafa eðlilega verið að velta því fyrir sér hverjar líkurnar séu á því að móðurfyrirtækið Alcan Inc. sem er eigandi álversins reki það áfram eftir árið 2014 en þá rennur núverandi raforkusamningur út við fyrirtækið. 

Sé tekið mið af þeim tækniframförum sem orðið hafa eru líkurnar á því nokkuð minni en meiri. Staðreyndin er sú að verið er að loka eða selja til minni álfyrirtækja  bæði austanhafs og vestan þau fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sambærilegri tækni og ISAL notar í dag. Ný tækni hefur gert rekstur þessara gömlu álvera óhagkvæman og nú er svo komið að gömlu álverin hellast úr lestinni eitt af öðru því þau eru hætt að standast samkeppni við þau nýju á öllum sviðum.

Markmið Alcan Inc. er að vera best og leiðandi á heimsvísu í rekstri álvera, þar með talið í umhverfis- og öryggismálum. Álver eru hátæknivinnustaðir og byggja á menntun og hugviti starfsmanna sinna. Álver sem vinnustaður býður uppá tækifæri fyrir fólk af báðum kynjum með ólíka menntun. Álverið í Straumsvík hefur ekki tækifæri til þess að standast metnaðarfull markmið Alcan Inc. til lengri tíma litið í óbreyttri mynd. Þar af leiðir er ekki ólíklegt að móðurfyrirtækið Alcan  setji álverið í Straumsvík á sölulista eða einfaldlega hætti rekstrinum og loki í Straumsvík árið 2014 ef það fær ekki tækifæri til að halda álverinu áfram í hópi bestreknu álvera í heiminum í dag.

Það má leiða að því líkum að álfyrirtæki með minni metnað en Alcan Inc. muni hugsanlega vilja kaupa ISAL náist ekki fram stækkun og þar með uppbygging með nýjustu tækni. Þá munu væntanlegir nýir eigendur eflaust reyna að ná samningum um raforku í 10 ár til viðbótar eins og núverandi samningar heimila til að mjólka út úr verksmiðjunni sem mestan arð á sem stystum tíma.  Það liggur í augum uppi að umhverfis- og öryggislegur metnaður fyrirtækja í slíkum rekstri er annar heldur en þeirra sem horfa til lengri framtíðar.

Til að gefa örlitla mynd af þeirri nýju tækni sem notast er við í álverum í dag þá eru þau 280 þúsund viðbótartonn af áli sem stækkunin byggir á framleidd í tveimur kerskálum sem samsvarar til 2/3 hluta af því húsnæði sem ISAL notar í dag til að framleiða 180 þúsund tonn af áli. Sama þróun er á öllum búnaði, þar með töldum hreinsibúnaði.  Alröng er sú fullyrðin forsvarsmanna “ Sólar í Straumi “ að leggja saman fyrirhugaða framleiðsluaukningu og halda því fram að losun efna sem  koma frá álverinu verði í sama hlutfalli og samsvarar fyrirhugaðri stækkun. Samanburðarmælingar í gróðri frá lóðamörkum ISAL og upp í Skorradal sem gerðar hafa verið með reglulegu millibili í tæp 40 ár sína enga aukningu efna frá ISAL í gróðri.  Sama má segja um lífríki sjávar umhverfis álverið í Straumsvík.  Öll starfsemin er í fullri sátt við náttúruna. Fyrirhuguð stækkun í Straumsvík er undirstaða hagsældar í Hafnarfirði og landsmanna allra. Allt tal um mengun byggir í besta falli á vanþekkingu og á stundum á hræðsluáróðri. Því miður er umræðan of oft á villigötum ásamt umræðunni um virkjun neðri Þjórsá.  Það er öllum ljóst sem vilja vita að virkjað verður í neðri Þjórsá hvort sem álverið verður stækkað eða ekki. Ef eitthvað ógnar því að mengun fari að berast frá Straumsvík þá gæti það helst og hugsanlega gerst ef Hafnfirðingar greiða atkvæði gegn stækkun og koma þannig í veg fyrir að nýjasta tækni og metnaðarfullir aðilar standi í framtíðinni áfram að rekstri álversins í Straumsvík.

 

28. janúar 2007

Halldór Halldórsson

Höfundur er starfsmaður

álversins í Straumsvík


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, Halldór !

Eru þetta hortugheit nokkurra Hafnfirðinga, og nærsveitamanna þeirra Halldór,eða .................... skipta sjónarmið okkar, hér á Suðurlandi, um gagnsemi virkjunarmöguleika í okkar heimahéraði, síðar á 21. öldinni, eða enn síðar engu máli ?

Kynni að vera, Halldór; að við, sem byggjum Vestur- Skaftafells, Rangár og Árnessýslur vildum hafa með málefni okkar orkuauðlinda að véla, í þágu heimahéraðs okkar, á komandi tímum. Höfum hingað til verið veitendur orkugnægðar, til ýmissa landshluta, og ekki notið neinna sérkjara, umfram aðra landsmenn, enda ekki farið fram á þau, sérstaklega.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum 

  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.2.2007 kl. 22:43

2 identicon

Sæll Óskar Helgi, ég skil vel hvað þú ert að fara og skil þítt sjónarmið mjög vel.  Það sem ég á við er að Landsvirkjun  stjórnar því hvar það fyrirtæki virkjar ásamt stjórnvöldum. Það er búið á þeim vettvangi að undirbúa virkjun neðri Þjórsár.  Ef ISAL kaupir ekki orkuna munu einfaldlega einhverjir aðrir gera það, hugsanlega heimamenn, önnur álver eða strengur lagður til Færeyja svo einhver dæmi séu nefnd.   Bestu kveðjur Halldór

Halldór (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband