Leita í fréttum mbl.is

Þróun atvinnuleysis á höfuðborgarsvæðið frá 1981 til dagsins í dag.

Á fjórða ársfjórðungi 2004 voru að meðaltali 4.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 2,5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 2,1% hjá körlum en 2,9% hjá konum. Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 6,9%
    

Á fjórða ársfjórðungi 2003 mældist atvinnuleysi 2,9%. Atvinnuleysi karla var þá 3,0% en 2,7% hjá konum. Atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 16-24 ára mældist 8,0% 

Líklegast munum við sjá svarta tíma á næstu árum þar sem mjög erfitt er að framfleyta sér á því að tína hundasúrur upp á hálendinu.  Einnig sé ég ekki íslendinga velja sér það hlutskipti að vera að þjóna ferðamönnum í stórum stíl með því að búa um rúminn  þeirra,klósett og skríða fyrir þeim.

 Ef við rýnum í atvinnuleysistölur frá árinu 1981 til dagsins í dag þá kemur margt athyglisvert í ljós. 

Frá árinu 1981 til 1988 var atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu mjög lítið og mældist meðal atvinnuleysið á bilinu 0,3 til 0,9%.  á ári

Á árunum 1989 til 1992 fór meðal atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu hægt vaxandi og mældist það þá á bilinu 1 til 2,9%. á ári.

Næstu ár á eftir voru mögur ár hjá launaflokki sem sumir vilja kalla síðustu kreppuna þar sem hagvaxtarvélin hætti að snúast og margir landsmenn lifðu þá af því að tína hundasúrur upp á fjöllum.  Krepputímabilið það síðasta milli áranna  1993-1997 var erfitt hjá mörgum heimilum og mældist meðalatvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu þá á bilinu 5,1% til 6,1%, oft var það meira eftir árstíðum.

Á árinu 1997 ákvað þáverandi forsætisráðherra Íslands að blása kreppuna af en þá var nýbúið að starta  nýjum skála hjá Ísal/ Alcan. Hagvaxtarvélin byrjaði að snúast þótt hægt gengi í fyrstu.

 

Strax árið 1998 hafði atvinnuleysið minnkað mjög mikið og var þá orðið 4,1% og fór lækkandi til ársins 2001 í 1,7%.  Á árunum 2002 til 2005 var meðal atvinnuleysið frá 2,7% til 4,1% .

Mjög lítið atvinnuleysi var á árinu 2006 og lítið það sem af er þessu ári.  En það er alveg klárt í mínum huga að við munum sjá hagvaxtarvélina hægja ferðina á næsta ári og síðan stöðvast ef engin vitræn umræða verður um hvernig okkur beri að nýta helstu orkulyndir okkar á sem skynsamlegasta hátt í sátt við náttúruna.

  

Stækkum Alcan í sátt við náttúruna til hagsældar og framtíðar Íslands.

 

Á. Örn.Þórðarson.

  
mbl.is Atvinnuleysi 1,3% í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll, Á. Örn Þórðarson !

Reit Halldóri Halldórssyni, starfsmanni ÍSAL (Alcan) bréfstúf, á dögunum, varðandi sjónarmið okkar Sunnlendinga, og svaraði Halldór mér, sem vænta mátti, á kurteislegum nótum.

Þótt ég sé, að hálfu Vestlendingur, tek ég upp þykkjuna fyrir hönd frænda minna, sunnlenzkra. Á. Örn ? Þykir þér hæfa, að þeir Landsvirkjunarmenn gangi, enn og aftur, á framtíðarorkuforða Suðurlands ? Það kann að skipta máli, hvað sem líður tali manna, um óþrjótandi hagvöxt og uppbyggingu stóriðju; að við, núlifandi kynslóðir Íslendinga gefum komandi kynslóðum, lengra inni á 21. öldinni kost á, að virkja vatnsföll og háhitasvæði, mögulega einnig til notkunar; í heimahéraði, eða er það ekki sanngjarnt sjónarmið ? Á fundinum, í Árnesi í gær var órofa samstaða heimamanna um, að stinga nú þegar við stafni, enda hagsmunir fjölda bújarða, og ábúenda sitt hvoru megin Þjórsár; í húfi ! 

Með beztu kveðjum, til Hafnfirzkra og nærsveitamanna, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 23:16

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll Óskar Helgi Helgason.

 Þú spyrð mig hvort mér þykir hæfa, að þeir Landsvirkjunarmenn gangi, enn og aftur, á framtíðarorkuforða Suðurlands? 

Svar?   Það eru mikil tilfinningarrök um þessar mundir um nýtingu landsins og hvar og hvernig á að virkja.  Ég veit ekki betur en að þeir Landsvirkjunarmenn hafi verið að vinna vinnuna sína og verið á óformlegum fundum við landeigendum allt síðasta ár. Síðan skilst mér að hafnar séu formlegar viðræður við landeigendur og ábúendur sem hófust í janúar.  Ég trúi ekki öðru en að vilji beggja aðila sé að ná niðurstöðu í málinu að virkja í sátt við náttúruna. Besta niðurstaðan fyrir alla er að ná samkomulagi.  Hróp og köll ýmissa gerir ekkert annað en að tvístra þjóðinni.  En hvað mig varðar þá tel ég að Alcan verði að stækka og fyrirtækið búið að semja við Landsvirkjun um orkuna.

 

Vona svo að rök skynseminar verði leiðandi hér á næstu árum og virkjað verði í sátt við náttúruna og hér verði öflugt atvinnulíf á komandi árum.

 

Að lokum þakka ég þér fyrir málefnalegt bréf.

 Á. Örn Þórðarson.

Rauða Ljónið, 13.2.2007 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband