8.3.2007 | 03:33
Er ljósvakamiðill gegn stækkun Alcan?
Fyrir rúmu ári síðan var mér mjög misboðið þegar stuðningsmenn Vg gerðu hverja árásina á fætur annari á störf okkar áliðnaðarstarfsmanna. Þá byrjaði ég viðvaningurinn að reyna við pennann og beita honum enda nýskriðinn úr framhaldsnámi Stóriðjuskólans sem fyrirtækið veitti mér ókeypis. Það er ólýsanleg tilfinning að komast í hóp þeirra sem getur tekið þátt í umræðu þjóðfélagsins. það er líka ólýsanleg tilfinning að finna það hvað við höfum fundið marga framfarasinna á síðustu vikum sem sýna okkur starfsmönnum stuðning fyrir því að gott fyrirtæki hafi möguleika á að dafna og þróast.
Það er mín skoðun eftir mína reynslu af vinnu í álveri að þjóðin eigi að fagna þessum tækifærum. Hjá okkur í Alcan fá ekki allir vinnu sem vilja vinna hjá okkur þar sem lítil hreyfing er á starfsfólki og verkamannalaunin góð allt upp í 500.000 á mánuði hjá duglegu fólki.
Árelíus þórðarson
------------------------------------------------------
Auðvitað ætlum við starfsmenn ekki að láta afturhaldið vaða yfir okkur heldur ætlum við að berjast til 31 mars dag og nótt. Sigra þessa bjánalegu óígrunduðu íbúakosningu og taka slaginn.
Fyrir rúmu ári síðan skrifaði ég þingmanni bréf eftir að einn ljósvakamiðill og fjölmiðlar gengu svo langt í sínum umfjöllunum að mér varð mjög misboðið. Ólýginn sagði mér að vænta megi óhróðurs á fyrirtækið og jafnvel starfsmenn þess næstkomandi Sunnudag frá sama fjölmiðli þar sem neikvæðin á að vera í fyrirrúmi. Hafa eigendur þess fyrirtækis einhver annarleg sjónarmið gagnvart vinnandi fólki og láta það átölulaust að starfsmenn þess sinni sínum annalegu sjónamiðum og skoðunum?
Opinbera bréfið fyrir ári síðan til Þingmannsins
Sæll.
Það verður að segjast eins og er að umræður stjórnarandstöðunnar hafa sjaldan verið málefnalegar og tel ég að fólk sé orðið þreytt að hlusta á andstöðuna vera á móti öllu og góðu málunum líka.
Að mínu viti er rekstur álvera hátækniiðnaður og þekki ég starfshætti þar vel enda búinn að vinna þar í 9 ár en þar áður 18 ár á sjó. Vegna nútíma tækni þá er mengun frá Alcan í dag, 180.000 tonna álver langtum minni en í byrjun reksturs með 60.000 tonna álver.
Það er mín skoðun eftir mína reynslu af vinnu í álveri að þjóðin eigi að fagna þessum tækifærum. Hjá okkur í Alcan fá ekki allir vinnu sem vilja vinna hjá okkur þar sem lítil hreyfing er á starfsfólki og verkamannalaunin góð allt upp í 500.000 á mánuði hjá duglegu fólki.
Ég veit um þó nokkra sem ekki komast að hjá okkur vegna fárra mannabreytinga sem eru í startholunum að flytja austur þegar álverið þar verður starfrækt, samt er þensla og góðæri. Fólk sækist eftir öryggi og góðum launum sem það getur lifað af. Karfist er hæfni og getu þar sem það tekur þó nokkurn tíma að komast inn í keðju til að búa til ál.
Hvað mig varðar þá hef ég verið sendur á óteljandi námskeið og þriggja ára nám til að sérhæfa mig í að búa til ál. Þetta nám er að mestu sérhæfing. Að henda þessari kunnáttu frá sér er glapræði fyrir þjóðina og marga tugi ára aftur til fornalda.
Ég skora á þig og aðra sem eru efins um stóriðju á Íslandi að kynna þér málin og koma í heimsókn til okkar.
Sjálfur hef ég ekki séð þig ennþá.
Baráttukveðja
Árelíus þórðarson
Sent af Árelíus Þórðarson kl. 11.02.06 23:07
------------------------------------------------------
Eins og einhverjir hafa sjálfsagt tekið eftir þá verður Alcan með heimsóknartíma fyrir þá sem vilja kynna sér starfsemina hjá fyrirtækinu og sjón er sögu ríkari.
Kveðja Árelíus Þórðarson.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Ferðalög, Lífstíll, Vefurinn, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:52 | Facebook
Nýjustu færslur
- 21.10.2020 HEIMILDIR UM ELDGOS Á REYKJANESSKAGA
- 12.9.2019 Ugglaust koma fleiri þættir til sem valda þessum erfiðleikum ...
- 1.3.2018 Svæsnustu spillingarbælin.
- 19.8.2016 Ég missti barnabarnið hana Karen Björgu fyrir þrem mánuðum.
- 4.3.2014 Menntakerfið okkar er úrelt og hentar alls ekki öllum.
- 21.2.2014 Vigdís Hauksdóttir var höfð að háði og spotti út af Evrópumál...
Eldri færslur
2020
2019
2018
2016
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Vinir og vandamenn
Tenglar á síður vina og vandamanna
-
Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Gamla. -
Við erum Ljónabræður, afabörnin
Bjarki Leó -
Við erum Ljónabræður,afabörnin
Benjamín Leó
Athugasemdir
Þú verður nú eiginlega að upplýsa okkur um hvaða fjölmiðill þetta er.
Sigurður J. (IP-tala skráð) 8.3.2007 kl. 03:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.