Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Áfram Hafnarfjörður, við viljum ekki enda eins og eitthvað De Code fyrirtæki?

Komið þið sæl. Er nýkominn frá Danmörku og nýkomin  af 16 tíma vakt. Í litlum bæ sem bróðir minn býr í sem heitir Pindstraup er 100 ára gömul spónar verksmiðja í miðjum bænum.  Þessi verksmiðja spúir þykkum reyk allan sólarhringinn dag og nótt.  Í vissum vindáttum leggur brennifnyk yfir bæinn.  Samt eru allir bæjarbúar mjög hliðhollir þessari verksmiðju sem fæðir og klæðir þrjú þúsund íbúa samfélagsins. Hjá Alcan sjá bæjarbúar aldrei slíka mengun þar sem  verksmiðjan okkar spúir ekki eld og reyk dag og nótt.  Alcan hefur ákveðið að bjóða fólki að koma og sjá starfsemina með eigin augum og þá hátækni sem þrífst innan veggja fyrirtækisins. 

Að sjálfsögðu spurði ég bróður minn vissra spurninga þar sem ég eftir þessa sjón varð hneykslaður af  samfélaginu mínu í Hafnarfirði, þeirra sem hafa nýtt okkar góða fyrirtæki niður í skóinn. Á eitt hundrað afmæli fyrirtækisins í Pindstraup á síðasta ári gaf fyrirtækið öllum bæjarbúum stórar og  góðar gjafir.  Fólkið var þakklátt og enginn svívirti fyrirtækið og kallaði gjafirnar mútur eins og leiðbeinendur frá Sól í Straumi reyndu að telja okkur bæjarbúum um enda var aðeins um 20- 30 geisladiskum skilað af 8000 diskum.

 Kæru Hafnfirðingar.

 Ég vil sjá eitt mesta umhverfisvæna  fyrirtækið á Íslandi vaxa og dafna.  Ég vil sjá Alcan leggja mikinn pening í íþróttafélögin á næstu árum.  Ég vil að bæjarstjórnin hver sem hún verður hafi bolmagn til að létta á skattpínu sinni á okkur bæjarbúa. Ég vil sjá öflugt og kröftugt atvinnulíf.  

Að lokum kæru Hafnfirðingar? 

Þið verðið að skoða málin frá eigin hugsjón?  Hvort það sé gæfulegt fyrir okkur Hafnfirðinga að Vg og Sól í Straumi komi okkur þrjátíu ár aftur til anskotans. Svo væri gaman að fá að vita hvað fólk á við með orðinu sprotafyrirtæki en þetta orðalag  er mikið notað af meðlimum Sólar í Straumi um þessar mundir. Allir þeir sem tjá sig í athugasemdardálki undir fullu nafni verður svarað en öðrum dulnefningum ekki. 

 Kveðja. Árelíus Örn Þórðarson sem er að eflast eftir hina frábæru ferð.


mbl.is Tap deCODE eykst milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leggja til að iðnaður hverfi úr Hafnarfirði.

Nýjustu hugmyndir Sólarmanna er að leggja niður alla iðnaðarstarfsemi í Hafnarfirði og flytja hana í önnur byggðalög samkvæmt viðtali við Pétur Óskarsson talsmanns Sólar í Fréttablaðinu

  Ekki nægir lengur að stöðva uppbyggingu  þróunar og hugmyndar og nýsköpunarfyrirtækis eins og Alcan allur annar iðnaður í þessu hverfi skal fluttur burt úr Hafnarfirði á hverju eiga svo Hafnfirðingar  að lifa ferðaþjónustu sjoppurekstri og þeir sem ekki komast þar að tína grös, ef deiliskipulagið verðu fellt fara þá Sólarmenn og Vinstri grænir fram á það að kosið verði um aðra starfsemi í hraunin og hún verði flutt burt það virðist vera komið á stefnuskrá þeirra samkvæmt viðtalinu.

Kv, Sigurjón Vigfússon


Verður Hafnarfjörður gjaldþrota?

Við stækkun Alcan-ÍSALs munu tekjur ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar aukast sem nemur mörgum milljörðum þegar allt er tekið saman anstæðingar stækkunar verða að gera sér grein fyrir því að sá hagvöxtur síðustu ára er að mestu tekin sem lán erlendis og sen líður að skuldadögunum hvernig þeir ætlast til að þjóðin greiði þessi lán er hullinn ráðgáta nema þeir ætlist til að næstu kynslóðir greiði þessi lán, neyslan þjóðarinnar hefur verið að lifa um efnum fram og heimilin orðin meira og minna skuldsett með bílakaupum flatskjám og öðrum munaðavarningi og mesti  hlutinn tekin að láni.

Sé litið til nágrannaþjóðar okkar er viðhorfið að öðrum toga þær keppast við að laða til sín erlenda fjárfesta til að byggja upp þjóðfélög sín og styrkja innlend fyrirtæki og styrkja innviði sinar þjóða og búa þannig að að komandi kynslóðir geti notið þess, hér á landi eru viss öfl sem vinna markvisst að niður rifi á atvinnuvegum þjóðarinnar og tjalda öllu til svo að svo megi takast og halda upp markvissum áróðri gegn erlendum atvinnurekendum jafnt sem innlendu, hatur áróður hefur náð að mestu hámarki sínu i garðs Alcna-ÍSALs og starfsmönnum þess loka skal þessu fyrirtæki að sögn þessa hópa og skiptir þá engu máli þó starfsmenn missi lifibrauð sitt þeir segja að starfsmenn geta fengi vinnu annarstaðar en aldrei sagt hvar, aldri í sögu Íslenskuþjóðarinnar hefur önnur eins áróðursmaskina farið af stað merki rasisma er í hávegum háð með svona skoðunum og málflutningi.

Nú verða bæjarfulltrúar Samfylkinguna  Hafnarfjarðar að fara að gera upp hug sinn hvort þeir vilja meiri atvinnuuppbyggingu í Hafnarfjörð eða meira atvinnuleysi á komandi árum eða hvort þeir vilja setja Hafnarfjarðarbæ endanlega á hausinn á næstu árum þeim ber skylda til að taka ákvörðun í þessu mál til þess voru þeir kosnir, þeir geta ekki hagað sér eins og Vinstri grænir sem vilja allt af ríki og bæ og leggja ekkert til við að byggja upp atvinnu í Hafnarfjörð.

Skattamálin varðandi Alcan liggur nú þegar upp á borðinu og þær tekjur sem Hafnarfjörður mun fá af starfsemi Alcan er áætlaður yfir 1,4 milljarður eða 12 til 14% af tekjum bæjarins fyrir utan þau fyrirtæki sem koma til að vera til verði stækkað.

Rauða Ljónið kallar á ákvörðun í þessu máli Rauða Ljónið Skorar á bæjarfulltrúa Samfylkingarnar að sýna ábyrgð og hlúa að bænum sínum á sama hátt og starfsmenn Alcan og Verkalýðsfélöginn og Hagur Hafnarfjarðar takið þá ákvörðun með eða á móti.

Kv, Sigurjón Vigfússon


Samþykkja Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar Hafnarfjarðar stækkun Alcan?

Nást hefur samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar annarsvegar og Alcan hinsvegar og ríkisins um greiðslu á stjöttum til Hafnarfjarðar fasteignargjöld samkomulag þetta er háð samþykkt alþingis og mun vera borið undir atkvæðagreiðslu nú á næstum dögum eða fyrir þinglok.

Þetta er þungamiðja sem staðið hefur í vegi fyrir að  Bæjarfulltrúar Samfylkingin í Hafnarfirði mæli með stækkun eða hafni  eða taki afstöðu nú þegar þetta mál er komið í höfn er ekkert til fyrirstöðu að Bæjarfultrúar  Samfylkingi í Hafnarfirði samþykki stækkun eða geri upp hug sinn með eða á móti þar sem beðið eftir að mál þetta komi í höfn til að getað gefið út yfirlýsingu varðandi stækkun, Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar samþykkt stækkun.

 

Ferli í stækkun Alcan-ÍSALs sem staðið hefur yfir undanfarin ár er þessir og áfangar:

1999      Hugmyndir að stækkun álversins skýrast
2000      Vinna við mat á umhverfisáhrifum stækkunar hefst.

2002      Umhverfismat lagt fram og samþykkt án athugasemda sem er einstætt.
2003      Hafnarfjarðarbær selur álverinu land undir stækkun.

2005       Umhverfisstofnun gefur út starfsleyfi fyrir allt að 460 þús. tonna framleiðslu á ári.                                                                                                                                   
2006        Orkusamningur við Orkuveitu Reykjavíkur (undir forystu R-listans) og samkomulag  við  Landsvirkjun um orkukaup.
2007       Nú eftir átta ára undirbúning, þegar hyllir undir að hægt sé að hefja útboð og  framkvæmdir verður efnt til almennrar atkvæða
greiðslu um skipulag ,deiliskipulag" svæðisins og láta þar með í raun greiða atkvæði um það hvort stækka megi álverið.

Tekjur Hafnarfjarðarbæjar, sem tengjast starfsemi Alcan, munu stóraukast verði af stækkun álversins í Straumsvík.  að þær gætu numið ríflega 1.400 milljónum á ári í Gróflega má áætla að tekjur bæjarins af starfsemi álversins muni nema 12-13% af heildartekjum bæjarins  eða sem nemur 250.000 á hverja fjögra manna fjölskyldu.. Það eru ekki aðeins tekjur Hafnarfjarðarbæjar sem aukast mikið því að ríkið fær einnig mikið í sinn hlut ef af stækkun verður. Tekjur ríkisins af starfsemi fyrirtækinu á bilinu 2,6-3,1 milljarðar en verða á bilinu 4,2-5,2 milljarðar eftir stækkun. Þá eru auknar tekjur af raforkuframleiðslu og raforkuflutningi vegna stækkunnar álversins ekki teknar með í reikninginn en allir vita að þar er um verulegar fjárhæðir að ræða.

Reiknað er með að launagreiðslur fyrirtækisins aukist úr 2,9 milljörðum á ári í 4,8 milljarða og starfsmönnum fjölgi um ríflega 300-350. Reiknað er með að aðföng (vörur og þjónusta) sem álverið kaupir frá fyrirtækjum í Hafnarfirði aukist úr 2.0  milljörðum 2006 í 3,6 4,0 milljarða og þar verði til önnur 300 störf. Reiknað er með að utan Hafnarfjarðar verði til önnur 240 störf sem byggjast á sölu vöru og þjónustu til álversins og rúmlega 3 milljarða velta á ári. Við stækkun álversins í Straumsvík verða til um  1100-1200 ný og varanleg störf, þarf af um 300 - 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Heildarstarfsmannafjöldi hjá álverinu verður þá um 850. Afleidd störf vegna stækkunar bein störf og óbein störf eftir stækkun eru áætluð að verði 2100 til 2200 alls. Þetta er fyrir utan orkukaup frá Landsvirkjun.

Kv,Sigurjón Vigfússon 


Ályktun miðstjórnar RSÍ um stækkun álversins í Straumsvík.

Fundur miðstjórnar RSÍ þ. 2. marz 2007 mælir með fyrirhugaðri stækkun álversins í Straumsvík, enda verði þar settar upp bestu mengunarvarnir sem völ er á hverju sinni. Þrátt fyrir að álframleiðsla Alcan í Straumsvík meira en tvöfaldist eftir stækkunina er það yfirlýst að loftgæði verða undir öllum mörkum sem sett hafa verið innan sem utan lóðamarka álversins.

Íslendingar hafa í vaxandi mæli á undanförnum misserum upplifað að fjölmörg störf í iðnaði hafa verið flutt úr landi. Við stækkun álversins í Straumsvík verða til um 1200 ný og varanleg störf, þarf af um 350 bein störf hjá fyrirtækinu og ríflega tvöfalt fleiri afleidd störf vegna aukinna umsvifa. Heildarstarfsmannafjöldi hjá álverinu verður þá um 850.

 

Kv.Sigurjón Vigfússon 


Stækkun í Straumsvík, já takk!

Íbúar Hafnarfjarðar og aðrir landsmenn sem fylgst hafa með umræðunni um stækkun álversins í Straumsvík hafa eðlilega verið að velta því fyrir sér hverjar líkurnar séu á því að móðurfyrirtækið Alcan Inc. sem er eigandi álversins reki það áfram eftir árið 2014 en þá rennur núverandi raforkusamningur út við fyrirtækið. 

Sé tekið mið af þeim tækniframförum sem orðið hafa eru líkurnar á því nokkuð minni en meiri. Staðreyndin er sú að verið er að loka eða selja til minni álfyrirtækja  bæði austanhafs og vestan þau fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sambærilegri tækni og ISAL notar í dag. Ný tækni hefur gert rekstur þessara gömlu álvera óhagkvæman og nú er svo komið að gömlu álverin hellast úr lestinni eitt af öðru því þau eru hætt að standast samkeppni við þau nýju á öllum sviðum.

Markmið Alcan Inc. er að vera best og leiðandi á heimsvísu í rekstri álvera, þar með talið í umhverfis- og öryggismálum. Álver eru hátæknivinnustaðir og byggja á menntun og hugviti starfsmanna sinna. Álver sem vinnustaður býður uppá tækifæri fyrir fólk af báðum kynjum með ólíka menntun. Álverið í Straumsvík hefur ekki tækifæri til þess að standast metnaðarfull markmið Alcan Inc. til lengri tíma litið í óbreyttri mynd. Þar af leiðir er ekki ólíklegt að móðurfyrirtækið Alcan  setji álverið í Straumsvík á sölulista eða einfaldlega hætti rekstrinum og loki í Straumsvík árið 2014 ef það fær ekki tækifæri til að halda álverinu áfram í hópi bestreknu álvera í heiminum í dag.

Það má leiða að því líkum að álfyrirtæki með minni metnað en Alcan Inc. muni hugsanlega vilja kaupa ISAL náist ekki fram stækkun og þar með uppbygging með nýjustu tækni. Þá munu væntanlegir nýir eigendur eflaust reyna að ná samningum um raforku í 10 ár til viðbótar eins og núverandi samningar heimila til að mjólka út úr verksmiðjunni sem mestan arð á sem stystum tíma.  Það liggur í augum uppi að umhverfis- og öryggislegur metnaður fyrirtækja í slíkum rekstri er annar heldur en þeirra sem horfa til lengri framtíðar.

Til að gefa örlitla mynd af þeirri nýju tækni sem notast er við í álverum í dag þá eru þau 280 þúsund viðbótartonn af áli sem stækkunin byggir á framleidd í tveimur kerskálum sem samsvarar til 2/3 hluta af því húsnæði sem ISAL notar í dag til að framleiða 180 þúsund tonn af áli. Sama þróun er á öllum búnaði, þar með töldum hreinsibúnaði.  Alröng er sú fullyrðin forsvarsmanna “ Sólar í Straumi “ að leggja saman fyrirhugaða framleiðsluaukningu og halda því fram að losun efna sem  koma frá álverinu verði í sama hlutfalli og samsvarar fyrirhugaðri stækkun. Samanburðarmælingar í gróðri frá lóðamörkum ISAL og upp í Skorradal sem gerðar hafa verið með reglulegu millibili í tæp 40 ár sína enga aukningu efna frá ISAL í gróðri.  Sama má segja um lífríki sjávar umhverfis álverið í Straumsvík.  Öll starfsemin er í fullri sátt við náttúruna. Fyrirhuguð stækkun í Straumsvík er undirstaða hagsældar í Hafnarfirði og landsmanna allra. Allt tal um mengun byggir í besta falli á vanþekkingu og á stundum á hræðsluáróðri. Því miður er umræðan of oft á villigötum ásamt umræðunni um virkjun neðri Þjórsá.  Það er öllum ljóst sem vilja vita að virkjað verður í neðri Þjórsá hvort sem álverið verður stækkað eða ekki. Ef eitthvað ógnar því að mengun fari að berast frá Straumsvík þá gæti það helst og hugsanlega gerst ef Hafnfirðingar greiða atkvæði gegn stækkun og koma þannig í veg fyrir að nýjasta tækni og metnaðarfullir aðilar standi í framtíðinni áfram að rekstri álversins í Straumsvík.

 

28. janúar 2007

Halldór Halldórsson

Höfundur er starfsmaður

álversins í Straumsvík


Umhverfismálin er okkar mál Starfsmanna Alcan ÍSALs.

Umhverfismálin ráða hér mestu, vandinn er hnattrænn ekki íslenskur. Við stöndum þjóða best í umhverfismálum í Alcan fjölskyldunni og því eðlilega leitað til okkar. Þeir íslensku kostir sem eru upp á borðinu eru fráleitt allir jafn umhverfisvænir.  Stækkunin í Straumsvík felur í sér virkjun neðarlega í Þjórsá, (afturkræf framkvæmd) Bæði Steingrímur J. og Ómar Ragmarsson hafa tekið í sama streng, varðandi virkjun í neðrihluta Þjórsá.

Stækkunin skiptir gríðarlegu máli fyrir Hafnarfjörð og land og þjóð og atvinnu Hafnfirðinga bæði þá sem vinna hjá Alcan og þjónustuaðilja og þá 1500 manns er koma að þessum störfum. Alcan er hátækniiðnaður þekkingarfyrirtæki og þróunarfyrirtæki.

Kv.Sigurjón Vigfússon


Hagur okkar Hafnfirðinga er Stækkun Alcan ÍSALs.

Vissuð þið:

-að Alcan Ísals greiðir hærri skatta en önnur fyrirtæki á Íslandi (33% í stað 18%). Og var hæsti greiðandi 2005 á Reykjanesi með 960 milljónir í opinber gjöld sjá (RSK) sá næsti er með 300 milljónir.Verði stækkað hækkar upphæðin.

-að Hafnfirsk fyrirtæki sem þjónusta Alcan og að sum eru mjög sérhæfð og hafa beinlínis orðið til vegna starfsemi Alcan Ísals og eru eins ólík eins og þau eru mörg að 2006 voru þau á annað hundrað talsins, eða  104 virkir birgjar sem mest er veslað við.

-að Á árinu 2006 námu viðskipti Alcan Ísals við fyrirtæki í Hafnarfirði tæpum 2 milljörðum króna.Þessi tala kemur til með að geta náð 6 milljörðum ef stækkað verður.

Kv. Sigurjón Vigfússon Stækkum Alcan Ísal já Takk.


Stækkun Alcan ÍSALs er verkefni Íslendinga.

Undirbúningur stækkunarinnar í Straumsvík hófst 1999. Frumkvæðið  kom frá forráðamönnum fyrirtækisins hér og fyrirtækið enn í eigu Svisslendinga. Farið var alfarið að íslenskum leikreglum, tryggja sér land, fyrirhuguð stækkun sett í umhverfismat sem var samþykkt. Þá var farið í orkuleit, samningar náðust við Orkuveitu Reykjavíkur um 40% orkunnar í tíð R-listaflokkana Smfylkingunar og Vinstri Græna og síðar tókust samningar við Landsvirkjun um hin 60% orkunnar.

  Þau sem stóðu í þessum samningum voru ekki her útlendinga, heldur forstjóri og kerskálastjóri ÍSAL, þau Rannveig Rist og Gunnar Guðlaugsson og án beinar milligöngu ríkisstjórnar ólíkt hinum Álverum eins og Norðurál og Reyðarál. Í millitíðinni sameinast Alusuisse ,,Svisslendingarnir,, og Alcan ,,Kanadamennirnir,, og síðar Pecheynnay ,,Frakkarnir,, og fyrirtækið fær nafnið Alcan á Íslandi. Frumkvæðið að stækkuninni er því íslenskt enda hagsmunirnir íslenskir og Hafnfirskir. Alcan á fleiri möguleika, orkuverð er lægra í Kanada og Bahrein býður upp á "olíu knúin álver"og þar mun ódýrari orku.

Kv, Sigurjón Vigfússon    Stækkum Alcan Ísal Já Takk.


Staðreyndir um Alcan og Starfsfólk.

Vissuð þið:                                                

 - að flúor í gróðri kringum álverið í Straumsvík mælist jafnmikil núna í dag eins og áður en verksmiðjan hóf starfsemi.

- að svifryksmengun á Hvaleyrarholti hefur aldrei farið yfir heilsuverndarmörk í þau 40 ár sem álverið hefur starfað, en 29 yfir heilsuverndarmörk við Greinsársveg í RVK. 2005

- að ef álverið er stækkað, eykst framleiðslan um 150% en leyfileg mörk á losun flúors eingöngu um 25%

-að við stækkun eykst lóðarmörk aðeina um 56% að lóð Alcan er aðeins 20% af lóðum iðnarsvæðis í Kapellu og Helluhrauni  80% er undir annan iðnað.

- að Isal er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem var vottað með umhverfisstaðalinn ISO 14001

- að Isal er fyrsta fyrirtækið á Íslandi þar sem algjört launajafnræði er milli kynja.

-að meðmánaðarlaun verkafólks fyrir 37.5 tíma dagvinnu á viku er 283.933.00 og fyrir vaktarvinnu á þrískiptum vöktum 36.tíma vinnu á viku er 356.964.00 án yfirvinnu.

-að þetta eru allt STAÐREYNDIR.

Kv.Sigurjón Vigfússon


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband