Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Steingrímur J. Sigfússon lýsti yfir stuðningi við orkufrekan iðnað.

VG og Steingrímur  J.   Lýsti yfir stuðniingi við orkufrekan iðnað. 

 

Á framboðsfundi lýstu VG eindregnum stuðningu við orkufrekan iðnað.

 Þar fór fyrir VG, Steingrímur J. Sigfússon lýsti yfir eindregnum stuðningi við orkufrekan iðnað. En eins og áður hefur komið fram hefur  Steingrímur J. sagt að .,, Virkjun við neðri hluta Þjórsá það er vænsti kosturinn.

Fundu þessi var haldinn í apríl. Sjá línk.

 

Kv,Sigurjón Vigfússon

 

Stækkum Alcan já takk.


Fjör í Bæjarbíó. Stækkum Alcan já takk.

Þar sem ég er húsbóndi og einnig húsmóðir um stundarsakir þá hef ég fylgst með fundarsyrpunum úr Bæjarbíó á netinu heima frá mér, þökk sé þessari þjónustu frá Hafnarfjarðabæ. 

Fundurinn í kvöld var mjög skemmtilegur og líflegur og fór Framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins á kostum og tel ég hann mann kvöldsins. 

Við þá ágætu framsögumenn Sólarmeginn, minn ágæta vin Sigurð Pétur og hina mælsku konu Kristínu vil ég segja?  Til þess að anda að sér,anda menn fyrst frá sér. Málfluttningur sem er að þrotum kominn á sér erfitt uppdráttar.  En þetta er meint í góðu þar sem mér finnst rök þeirra og niðurlæging gagnvart störfum okkar áliðnaðarmanna vera mikil.  Að skrumstæla sannleikann stanslaust er ekki affarasælast fyrir kosti þessara íbúakosninga en vonandi ganga allir íbúar í takt eftir þessar lýðræðislegu kosningar. 

Ingi Rútson hinn mælski talsmaður Hag Hafnarfjarðar virðist hafa nóg við að gera að leiðrétta hinar ýmsu rangfærslur og stendur hann sig feyki vel í þeim efnum.

 

Kæru Hafnfirðingar stöndum allir saman rúmri viku fyrir kosningar og segjum JÁ TAKK við stækkun Alcans.

Kveðja Árelíus Þórðarson


Verkfæðingur sem mígur upp í vindinn.

 Fræg er sú saga um verkfræðinga sem sagði eru míga upp í vindinn og fá svo gusuna beint framan á sálfan sig, þessi saga er sögð þegar þeir geta stór axarsköft og þá í gríni en öllu gríni fylgir nokkur alvara.

Einn þessara er Verkfræðingurinn Sigurður Oddsson ritar í MBL og er svo hlandblautur eftir greina skrifin að marga daga tekur að full þurrka.

Hnnn keyrir fram úr hófi í skrifum eins og fátt eitt  sé tekið, hann segir,, og eftir 15 -20 ár þegar samningur Alcan rennur út”. Samningurinn rennur út 2014 eftir sjö ár þarna vefjast tölunnar fyrir honum. Alcan verður inn í miðri íbúðarbyggð Alcan eftir 15 ár Alcan er staðsett í Kapelluhrauni, Kapelluhraun er iðnaðra svæði fyrir sunnan og nærst Alcan er gert ráð fyrir stórskipahöfn sjá á korti um skipulagsmál er Alcan  ekki inni í miðri íbúðarbyggð það er allrangt. Og ekki er framhaldið betra.

Ekki tekur svo betra við þegar hann fer að ræða um starfsmenn Alcan þar gætir  einhvers   fyrirlitningar á starfsmönnum Alcans  og áróðurs líkt og nasista gerðu gagnvart gyðingum, ég get ekki séð hvað starfsmenn Alcan hafa gert Sigurður Oddssyni til þess að hatist svona við okkur með niðrænum og niðurlægjandi  ummælum um starfsmenn Alcan og niðurlægja starfsmenn með þessum hætti eins og blaðagrein hans ber vott um. En menn skrifa ekki svona hvorki um þjóðarbrot starfstéttir né litarhátt manna eða þjóðir eins og hann skrifar um starfsmenn Aclan það ber einungis vott um einhvern veikleika.

.  Kv,Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk. 


Frumkvöðlar ÍSAL voru kallaðir landráðamenn!

Frumkvöðlar ÍSAL voru kallaðir landráðamenn! Hefur fyrirtækið valdið einhverjum þeim skaða að kalla megi landráð, 40 árum seinna?

Nei, en barn sem fjögurra ára að aldri heyrði að faðir hans væri landráðamaður gæti hafa skaðast af þeirri umræðu. Um það var ekki spurt á þeim tíma, tilgangurinn helgaði meðalið!  Fyrir tilviljun hóf þetta barn vinnu við álverið fyrir tíu árum síðan og réð sig til vinnu til framtíðar, landráðamanninum til mikillar skelfingar því jafnvel hann hélt að eitthvað betra væri í stöðunni. Staðreyndin er sú að ef þú ert verkamaður er ekkert betra í stöðunni. Sex vaktir á fimm dögum og fimm daga frí á milli,rútur til og frá vinnu,mötuneyti að nóttu og degi,allur vinnugalli skaffaður þar með talinn allur öryggisbúnaður sem hugsast getur!  Að ekki sé talað um sturturnar!!!

 

Er þetta eitthvað nýtt? Já, fyrir fjörutíu árum var þetta nýtt og ruddi brautina fyrir aðbúnaði og öryggi launafólks í öllum starfsgreinum !!! Hjá ÍSAL hafa þessir þættir aðeins færst til betri vegar og þá, eins og nú í fararbroddi hvað öryggismál og aðbúnað starfsmanna snertir!!  Maður sem réð sig til vinnu fyrir tíu árum gat verið viss um að hann væri að ráða sig til frambúðar,stækkun í gangi (3-skálinn)og frekari stækkun í farvatninu, að þeirri stækkun hefur verið unnið í sátt við menn og lög,ólíkt sumum framkvæmdum sem við þekkjum.

 

Kárahnjúkavirkjun stóðst ekki upprunalegt umhverfismat það gera hinsvegar fyrirhugaðar virkjanir sem tengjast ÍSAL. Ef ekki má virkja í neðri hluta Þjórsár er alveg ljóst að ekki verður virkjað frekar. Sama má segja um Hengilssvæðið, allir flokkar R-listans samþykktu virkjun þar og Sjálfstæðisflokkurinn var ekki á móti!!  Hvað er þá málið afhverju, er ekki bara stækkað? Jú,vegna þess að til er íbúalýðræði í Hafnarfirði, gott mál!! Kosið verður um málið 31.mars næstkomandi,  vonandi verður umræðan málefnalegri nú en fyrir fjörutíu árum. Starfsmenn ÍSAL fagna ströngum mengunarkröfum þær verða seint strangari en þeir gera sjálfir.  Við höfum undirgengist

Kyotosamninginn það hafa líka Kandamenn,Svisslendingar og Frakkar gert, eigendur Alcan á Íslandi, ólikt sumum eigendum álfyrirtækja sem við þekkjum. Það þýðir að ekki verður hægt að reisa álver í hverju kjördæmi eins og frystihús forðum, heldur stöndum við frammi fyrir vali!!  Stækkun í Straumsvík, nýtt álver í Helguvík, nýtt álver á Húsavík eða engin ný álver!!

Sonur landráðamannsins er ekki í vafa um valið, stækkum í Straumsvík og hann veit að landráðamaðurinn faðir hans er sammála!! .

  Stækkum Alcan Já Takk.Ykkar einlægur, L, H. 

Það er gott að vinna í álveri.

Álverið hjá Alcan mengaði margfalt meira á fyrstu árum starfseminnar sinnar en það gerir nú. Mjög mikið er lagt upp úr því að minnka mengun eins og kostur er, og stefnan er að með nútímatækni er reynt að útrýma menguninni eins og hægt er. Ég tel að mengun álvera verði lítið vandamál í nánustu framtíð.

Álver í dag miðað við mengun og starfsskilyrði er ekki sama og álver fortíðarinnar. Það er gott að vinna í álveri og flestum eða öllum líður þar vel.

Að tala um einhvera mengun í dag miðað við á fyrstu árum álvera er hlægilegt og hjákátlegt.

Fyrir 20 árum síðan keyrðu menn oft í gegnum mengunarský á Reykjanesbrautinni en í dag sjáið þið ekki þessa mengun sem sumir eru sífelt að tönglast á.

Fólkið sem vinnur þarna líður vel, hefur allt til alls og sáralítil hreyfing er á fólki í önnur störf þótt þenslu ástandið sé mikið. Á síðustu árum hefur fólk þurft að bíða í marga mánuði eða árum saman til að fá vinnu hjá Alcan.

Það er stundum  hrikalegt að þurfa að sitja undir þeirri ómálefnanlegri umræðu sem sköpuð eru af mönnum með þekkingarleysi hvað það sé slæmt að vinna í álveri og hafa álver. Neikvæð umræða sem oftast virðist byggð á fordómum en rökum hefur vissulega áhrif og setur illt blóð í okkur sem vinnum á mjög góðum vinnustað og líður vel, höfum mannsæmandi laun sem er ekki hægt að segja um allt þjóðfélagið.

Kveðja Árelíus Þórðarson.

 

 


Grein frá Sól í Straumi .

 Á meðal þess sem Sól í Straumi hefur not fært sér í umræðunni um stækkun eru ýmsar villur og blekkingar á staðreyndum sem snúið er á hvolf, eins og sjá má í kosningarbæklingi.

 

 Til dæmis svo kölluð  12. rök gegn stækkun.

 Eins og. ,,  Lóð eftir stækkun verður jafn breið og hún er löng í dag " . Ekki satt. Svar samkvæmt teikningum ARKÍS  15. 1.2007 er verksmiðjulóð Ísal eftir stækkun mælikvarði um 1520m á lengd og um  920m á breidd  ekki jafn löng og breið skeikar um 600m lóði stækkar um 56% stækkun á lóð já 56%. Lóð sögð  yfir 60% stærri en hún mun verða.

Byggingarland í Kapelluhrauni og Hellnahrauni eru skipulögð sem iðnaðarsvæði og er ekki ætlað undir íbúðarbyggð eins og Sól í Straumi heldur ítrekað fram það er  rangt, svæðið var sett í frumdrög laust eftir 1970 sem iðnaðarsvæði og komið á kortið um 1986. Land það sem Alcan svæðið er 20% af iðnaðarsvæðinu já 20% að halda öðru fram er hrein og beinn uppspunni  80% af svæðinu er ætlað undir iðnað og aðra starfsemi ,sjá kort Hafnarfjarðar. Hér fara Sólarmenn vísvitandi með rangfærslur  Ekki rétt hjá Sólarmönnum.

Íbúðarbyggð er ekki við eða á lóðarmörk Alcan á skipulaginu er tekið skýrt fram að um 1.500 metrar skulu vera í næstu íbúðarbyggð. Er hægt að bjóða Hafnfirðingum upp á svona vinnubrögð blekkingar og fals.?

Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk. 


Kremlarskýrslan gagnrýnd

í morgun í morgunfréttum Rúv kom fram gagnrýni á Kremlarskýrsluna svokölluð og að hún næði ekki til allra þátta í hagfræðilega séð .

   Rétt er að taka fram að í skýrslu Hagfræðistofnunar er ekki er fjallað um aukin viðskipti Alcan við birgja í Hafnarfirði, en í dag nema  um 1.400  milljónum króna. Áætlað er að þau muni aukast í eða yfir 3.600 milljónir króna á ári komi til stærra álver. Af ofansögðu má sjá að ávinningur Hafnfirðinga af stærra álveri er margfaldur á við mat Hagfræðistofnunar.

Beinar tekjur  (sjá skýrslu) Hafnarfjarðarbæjar af stækkuðu álveri og breyttu skattaumhverfi þess munu verða umtalsverðar. Samkvæmt útreikningum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands verða beinar tekjur bæjarfélagsins vegna fasteignagjalda, hafnargjalda og vatnsgjalds rúmar 800 milljónir króna á ári.
Niðurstöður stofnunarinnar staðfesta það sem forsvarsmenn álversins hafa kynnt fyrir bæjarbúum á undanförnum mánuðum.

Hagfræðistofnun ráðgerir að fasteignagjöld álversins eftir stækkun verði um 650 milljónir króna á ári og hafnargjöld vegna notkunar á Straumsvíkurhöfn muni aukast um allta að 150 milljónum króna eða  800 milljónir  samtals.

Skýrsla Hagfræðistofnunar var kynnt á blaðamannafundi bæjaryfirvalda í Hafnarfirði en samkvæmt henni liggur tekjuauki Hafnfirðinga af stækkun álvers Alcan milli 3,4-4,7 milljörðum króna, að meðtöldum heildartekjum af Straumsvíkurhöfn, eða innan við 100 milljónir króna á ári að meðaltali. Hannes G. Sigurðsson, fjallaði um áhrif stækkunar álversins í Straumsvík á fundi í Hafnarborg þann 2. febrúar. Hannes benti á að ef álver Alcan starfaði í íslensku skattumhverfi, eins og samningur liggur fyrir um, þá væru tekjur bæjarins í dag um 490 milljónir króna, en eftir stækkun um 1.431 milljónir króna. Alls er þetta aukning um 941 milljón króna á ári.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk. 


Stækkum Alcan í sátt við Hafnarfjörð og umhverfið.

Vopn í orðum eru upphaf ógæfu, hversu skrautleg sem þau eru. Þau vekja óbeit allra.  Þess vegna vill sanngjarn maður beita orðum af varúð eða reyna það?  Í friði og ólgu eru umhverfismálin til vinstri handar en í krafti lífskjarar í sátt við náttúruna til hægri. Ef beita þarf orðum hvasst vegna langvarandi baráttu ómálefnalegra andstæðinga  mun hann þurfa að beita þeim orðum sem nauðsyn ber til. 

Ég  þrái friðinn og hef enga löngun til að sigra samtökin Sól í Straumi. Í mínum huga ætti sá að vera hryggur sem skrumskælir sannleikann. Í mínum huga tapa allir ef þetta ómálefnalega orða stríð heldur áfram.

 

Á síðu Sólar í Straumi hef ég ekki tjáð mig neitt í um einn mánuð þar sem tilganglaust orðagjálfur hefur enga merkingu. Skrifbentar á síðu Sólar eru sanntrúaðir á sinn málstað og ég sanntrúaður á minn málstað.

 Kveðja Árelíus Þórðarson.


Uppvakningar Allaballa og Kommúnista.

Árið 1995 var afstaða fólks og stjórnmálaflokka fylgjandi stækkun , líka hið sósíalíska Alþýðubandalags nú VG. VG vinnur nú markvist gegn verkalýðsfélögum og starfsfólki Alcan.

Þá voru á áttunda þúsund manns án atvinnu á Íslandi. Þjóðin fagnaði stækkun enda gufaði atvinnuleysið upp eins og dögg fyrir sólu og sú velmegnum sem þjóðin býr en að hófst, nú eru komnir aðrir tímar VG vilja nú niður sveiflu og skal verkafólk  taka afleiðingunum og þá með komandi atvinnuleysi .

VG hafa tekið upp gamlar skruddur og ryk fallnar og berjast gegn starfmönnum og verkafólki í anda kaldastríðsins, skruddur þessar eru beint fram hald af ræðum þeirra og ritum frá 1960 og þar segir meðal annars.:Íslendingar yrðu ofurseldir arðráni og kúgun. Íslenskir verkamenn yrðu þrælar útlenda auðjöfa, Ísland yrði láglauna land.,, Ísland fyrir Íslendinga eina sagði”. Einar Olgeirsson leiðtogi sósalista og læriföður nú verandi leiðtoga í VG.

                                                                                                                                 

Og hélt baráttunni gegn hernum yrði smáræði miða við baráttunni gegn álinu og  uppbyggingu atvinnuvegana. Einar Olgeirsson fór fyrir sveit sósíalista til Kremlar og fékk Leoníd Brezhnev í lið með sér í baráttunni gegn landnámi útlendinga í Straumsvík. Sovéski leiðtoginn stóð þá í ströngu við að bylta Nikita Krúsjoff af valda stóli. Koma átti í veg fyrir að Ísland tengist vestrænu fjármagni og hagkerfi . Álverið var dregið inn í hið kalda stríð stórveldana. Barátta VG hefur verið sviklaus allt frá því að Einar Olgeirsson skar upp herör gegn álinu og heldur áfram ganvart verkamönnum og starfsmönnum Alcan Ísals látum ekki afturhaldið hafa neikvæð áhrif á framtíð Hafnarfjarðar og Íslands.

Starsfólk og verkafólk sem ekki vinna hjá Alcan hvenær kemur þessi flokkur og vilja láta kjósa um að ykkar vinnustaður verði lagður niður?

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk.

 


Útreikningum Hagfræðistofnunar 800 milljónir til Hafnarfjarðar.

Samkvæmt útreikningum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands verða beinar tekjur bæjarfélagsins vegna fasteignagjalda, hafnargjalda og vatnsgjalds rúmar 800 milljónir króna á ári.


Niðurstöður stofnunarinnar staðfesta það sem forsvarsmenn álversins hafa kynnt fyrir bæjarbúum á undanförnum mánuðum.Fulltrui Hafnarfjarðar tilkyndi
sömu niðurstöður og sömu tölur rynnu til bæjarins þetta er um sömu tölur og Hagur Hafnarfjarða og Alcan hafa bent á og Samtök Iðnaðarins fyrir utan tekjur af birgjum verktökum og útsvörum starfsmanna í þessum geira.

Það vakti athygli í Kastljósi í kvöld sem kom frá flulltrúa sólar að en fara þeir mjög frjálslega með umhverfismatið og gefa en í skin að þær stofnanir sem rannsakað hafa umhverfis þætti séu meira og minna að falsa niðurstöður og gera starfsmenn þessara stofnana tortryggilega munu þeir gera slíkt hið sama með niðurstöður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, og en fremur gera þeir skóna að því að þeir vilji Alcan burt hið bráðasta.

Kv,SIgurjón Vigfússon

Stækkum Alcan já Takk. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband