Leita í fréttum mbl.is

Kremlarskýrslan gagnrýnd

í morgun í morgunfréttum Rúv kom fram gagnrýni á Kremlarskýrsluna svokölluð og að hún næði ekki til allra þátta í hagfræðilega séð .

   Rétt er að taka fram að í skýrslu Hagfræðistofnunar er ekki er fjallað um aukin viðskipti Alcan við birgja í Hafnarfirði, en í dag nema  um 1.400  milljónum króna. Áætlað er að þau muni aukast í eða yfir 3.600 milljónir króna á ári komi til stærra álver. Af ofansögðu má sjá að ávinningur Hafnfirðinga af stærra álveri er margfaldur á við mat Hagfræðistofnunar.

Beinar tekjur  (sjá skýrslu) Hafnarfjarðarbæjar af stækkuðu álveri og breyttu skattaumhverfi þess munu verða umtalsverðar. Samkvæmt útreikningum Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands verða beinar tekjur bæjarfélagsins vegna fasteignagjalda, hafnargjalda og vatnsgjalds rúmar 800 milljónir króna á ári.
Niðurstöður stofnunarinnar staðfesta það sem forsvarsmenn álversins hafa kynnt fyrir bæjarbúum á undanförnum mánuðum.

Hagfræðistofnun ráðgerir að fasteignagjöld álversins eftir stækkun verði um 650 milljónir króna á ári og hafnargjöld vegna notkunar á Straumsvíkurhöfn muni aukast um allta að 150 milljónum króna eða  800 milljónir  samtals.

Skýrsla Hagfræðistofnunar var kynnt á blaðamannafundi bæjaryfirvalda í Hafnarfirði en samkvæmt henni liggur tekjuauki Hafnfirðinga af stækkun álvers Alcan milli 3,4-4,7 milljörðum króna, að meðtöldum heildartekjum af Straumsvíkurhöfn, eða innan við 100 milljónir króna á ári að meðaltali. Hannes G. Sigurðsson, fjallaði um áhrif stækkunar álversins í Straumsvík á fundi í Hafnarborg þann 2. febrúar. Hannes benti á að ef álver Alcan starfaði í íslensku skattumhverfi, eins og samningur liggur fyrir um, þá væru tekjur bæjarins í dag um 490 milljónir króna, en eftir stækkun um 1.431 milljónir króna. Alls er þetta aukning um 941 milljón króna á ári.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband