Leita í fréttum mbl.is

Grein frá Sól í Straumi .

 Á meðal þess sem Sól í Straumi hefur not fært sér í umræðunni um stækkun eru ýmsar villur og blekkingar á staðreyndum sem snúið er á hvolf, eins og sjá má í kosningarbæklingi.

 

 Til dæmis svo kölluð  12. rök gegn stækkun.

 Eins og. ,,  Lóð eftir stækkun verður jafn breið og hún er löng í dag " . Ekki satt. Svar samkvæmt teikningum ARKÍS  15. 1.2007 er verksmiðjulóð Ísal eftir stækkun mælikvarði um 1520m á lengd og um  920m á breidd  ekki jafn löng og breið skeikar um 600m lóði stækkar um 56% stækkun á lóð já 56%. Lóð sögð  yfir 60% stærri en hún mun verða.

Byggingarland í Kapelluhrauni og Hellnahrauni eru skipulögð sem iðnaðarsvæði og er ekki ætlað undir íbúðarbyggð eins og Sól í Straumi heldur ítrekað fram það er  rangt, svæðið var sett í frumdrög laust eftir 1970 sem iðnaðarsvæði og komið á kortið um 1986. Land það sem Alcan svæðið er 20% af iðnaðarsvæðinu já 20% að halda öðru fram er hrein og beinn uppspunni  80% af svæðinu er ætlað undir iðnað og aðra starfsemi ,sjá kort Hafnarfjarðar. Hér fara Sólarmenn vísvitandi með rangfærslur  Ekki rétt hjá Sólarmönnum.

Íbúðarbyggð er ekki við eða á lóðarmörk Alcan á skipulaginu er tekið skýrt fram að um 1.500 metrar skulu vera í næstu íbúðarbyggð. Er hægt að bjóða Hafnfirðingum upp á svona vinnubrögð blekkingar og fals.?

Sigurjón Vigfússon

Stækkum Alcan Já Takk. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ágætu starfsmenn álversins í Straumsvík.

Mig langar að velta því upp hér á vef ykkar, hvort þið hafið skoðað hvernig þróun starfsmannafjölda hefur verið innan álversins í samanburði við framleiðslu í tonnum talið til dagsins í dag?

Ég fór í að skoða þessi mál og viðaði að mér opinberum upplýsingum aftur til ársins 1988, en þá voru um 600 manns starfandi hjá álverinu í Straumsvík. Framleidd áltonn á þessum tíma voru um 88.000 tonn, sem svarar til um og innan við 150 tonn pr. starfsmann.

Í dag er starfsmannafjöldinn um 450 til 480 manns eftir því hverjir eru taldir með eða hver tjáir sig. Framleidd áltonn eru hins vegar tæp 180.000 tonn, en það svarar til um 400 tonn pr. starfsmann, eða um 250 tonnum meira pr. starfsmann en árið 1988. 

Eftir stækkun er áætlaður starfsmannafjöldi um 800 manns og framleiðsla um 460.000 tonn, en það svarar til um 575 tonn pr. starfsmann, eða um 175 tonnum meira pr. starfsmann samanborið við í dag, og heilum 425 tonnum meira pr. starfsmann, samanborið við árið 1988. Þetta er frábær framleiðniaukning sem gefur gríðalega fjármuni í aðra hönd. Auðvitað krefst þessi framleiðniaukning fjárfestingar, það gerði stækkunin 1995, og það mun stækkunin gera nú ef af henni verður. Fjárfesting í lóð, húsnæði, búnaði, tækni og  meiri sjálfvirkni. En ekki í mannafla pr. áltonn gefið að starfsmenn vinni á sömu/svipuðum launum og í dag.!

Miðað við framleiðni í dag mun stækkað álver framleiða um 175 tonnum meira pr. starfsmann, án viðbótar í launakostnaði!  

Ég læt starfsmönnum sem unnið hafa lengur en 10 til 15 ár það eftir að hugsa til baka og sjá hvað þeir hafa fengið í aðra hönd við þessa miklu framleiðniaukningu frá 1988, og jafnframt hvet ég alla starfsmenn að íhuga hver fær lang-lang-langstærsta ávinninginn af stækkuðu álveri í Straumsvík; starfsmenn, Hafnfirðingar eða Alcan?

1.000 til 1.500 milljónir er lítil tala í þeim samanburði!

Með vinsemd og virðingu fyrir hinni vinnandi stétt í álverinu í Straumsvík.

Þorsteinn Gunnlaugsson, framleiðslutæknifræðingur,  rekstrarverkfræðingur og atvinnurekandi.

Þorsteinn (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 23:41

2 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll Þorsteinn.

Þetta er eðlileg þróun eins og í öllum geira þjóðfélagsins.  T.d eru mun færri starfsmenn sem draga fiska upp úr sjó miðað við á árum áður.

Við verðum að vera samkvæmir sjálfum okkur í þessum málum.  T.d ef ég man rétt munu 350 starfsmenn vinna við Fjarðarál sem á að framleiða 300.000 tonn.  Svona er þetta víða í þjóðfélaginu og ekki nýjar fréttir

Það er gott að vinna í álveri og mun ég setja inn grein núna.

Kveðja Árelíus Þórðarson.

Rauða Ljónið, 22.3.2007 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband