Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Kjaramál

Svíar handrukkarar Breta og Hollendinga

 Ögmundur Jónasson, er harðorður í garð Svía eftir viðtal Reuters við forsætisráðherra Svía, Fredrik Reinfeldt.

Ögmundur er einn fárra þingmanna VG sem stendur í lappirnar.

Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, segir að Svíar muni ekki lána Íslendingum fyrr en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) gefi grænt ljós:„Við viljum að Ísland haldi sig við þessar alþjóðlegu skuldbindingar og í kjölfarið munum við standa við okkar loforð."

Strauss Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að hann gefi ekki grænt ljós fyrr en aðstandendur sjóðsins ( les: hinn kapítalíski heimur ) gefi grænt ljós. Og aftur er talað um skuldbindingar Íslands undir sömu formmerkjum.

Skyldu Svíar sklija að "skuldbindingarnar" eru skilyrðin sem Bretar og Hollendingar hafa þröngvað upp á okkur undir hótunum?

 

Skyldu Svíar skilja að Íslendingar véfengja greiðsluskyldu sína? Skyldu Svíar sklija að greiðsluskilmálarnir eru ósvífin þvingunarúrræði?

Skyldu Svíar skilja að þeir eru orðnir handrukkarar Breta og Hollendinga?

Kannski finnst Reinfeldt forsætisráðherra það vera í góðu lagi að gerast handrukkari. En hvað skyldi sænsku þjóðinni finnast um þetta nýja hlutverk sitt? Hvað skyldi þjóðinni sem átti Olov Palme finnast um að vera komin í fótgöngulið fjármagnsins gegn fólkinu? Skyldu menn almennt átta sig á því að viðhorfsbreytingin í Evrópu á meðal almennings er vegna þess að fólk er farið að stilla dæminu svona upp: Annars vegar hinir eignalausu. Hins vegar þeir sem töpuðu innistæðum sínum. Almennt finnst fólki ekki sjálfgefið að hinir eignalausu, eða þeir sem eru lasburða og þurfa á velferðarþjónustu að halda, verði látnir blæða til að hinir missi ekki spón úr aski.

Þannig er almenningur í Evrópu að byrja að líta á málin. Hann þarf hins vegar að sannfærast um að séð verði til þess að fjárglæfrabófar skili hverri krónu; skili ránsfengnum. Um ásetning Íslendinga hvað þetta varðar má ekki leika nokkur vafi. Tiltrúin má ekki bara byggja á orðstír Evu Jolý. Hún hefur gert meira fyrir Ísland en flestir aðrir. Hún staðfestir nefnilega gagnvart umheiminum með nærveru sinni og verkum sínum að Íslendingar vilja réttlæti.

Þetta þurfum við að segja Svíum milliliðalaust, Líka Norðmönnum, Dönum og Finnum og öllum öðrum,  alþýðu manna í Bretlandi, þeirri sömu alþýðu og kýs Brown og Miliband á þing, og í Hollandi. Í þessum löndum öllum þekkja menn frekjuna í fjármagninu og almennt halda menn meira með fólki en fjármagni.

Sjá grein Ögmundar.

hells-angels-2_1152580433.gif

Myndin sýnir Svía á ferð eins og sjá má á grein  Ögmundar.


Heift hatur og harmakveini stjórnarinnar.

 Ákvörðun forsetans  að neita að skrifa undir er að Ísland er stjórnlaust það er það sem almenningur veit en ríkisstjórn ekki .
Heift hatur og harmakveini um að allt sé öðrum um að kenna en Samspillinguni eins og fram kemur í greinum Ólínar, Sigmundar Ernir á einu aulabragði, og Þórunnar enda eru þau búin að drulla svo aldeilis upp á bak eins og fréttir síðust daga bera með sér .
Íslendingar eru orðnir Lýðræðissnar en Kommúnistar sem nú stjórna sem kúga vilja Íslenskan almenning og heimili landsmanna en happa útrásavíkingunum.
Hafa meiri trú á töframönnum og trúðum og valddreifðu úreltu stjórnkerfi sem en má nota til að fá sínu framgengt en sjálfu lýðræðinu. Af þeim sökum hafa stjórnmálamenn komist upp með að beygja undir sig stjórnarflokka eins og huglausar bleyður allt fyrir foringjanna ekkert fyrir Ísland, þingmönnum er skipt út eins og hverja annarri druslu, eftir því hverinn málin þróast á þingi og heiladauðir og hugsjóna lausir vara þingmenn kallaðir inn sem verða svo upp með sér að vara kallaðir inn og af sínu eigin heimska að þeir gera allt sem foringjarnir segja þeim en landið selt og samviska fyrir nokkra daga setu á þingstól, sem aftur kúga þingið, alþýðuna, dómstólana og stjórnkerfið og komandi kynslóðir.

Eftir hrun er ekki lengur samstaða um eitt né neitt sem bjarga gæti landinu. En það er heldur engin samstaða um hvað á að taka við né gáfur hvað þá vit.

c documents and settings notandi desktop myndir 2009 sad day


Svandís rústar ferðarmannaiðnaðinum.

 Ferðarmannaiðnaðurinn losar um 4,1 til 4,2 miljónir tonna af CO2 , reikna má við að gjöld á farmiða til Íslands muni nema eftir 2012 100 til 200€ eða á milli eða 18.000 til 32.000 þúsund á farmiða til og frá landinu um 5000 þúsund innalanda ná fram að gang sú gjaldskrá sem um hefur verið rædd.

Nú er spurningin hvað munu aðiljar í ferjaðmanniðnaðinum gera en hefur ekkert heyrst frá þeim. 

Árið 2012 mun flug á Íslandi falla undir viðskiptakerfi  ESB un losunarheimildir. Það nær til allra flugsamgangna til og frá landinu. Flugfélög munu þá þurfa útstreymisheimildir hvort sem flogið er til og frá Bandaríkjunum eða Evrópu.

Áður en þetta var ákveðið vöktu íslensk stjórnvöld athygli stjórnmálamanna og embættismanna í ESB og aðildarríkjum á þeirri sérstöðu sem Ísland býr við . Ekki höfðu þau árangur sem erfiði ekkert tillit er tekið til eyríkja.

 Tilskipun ESB sem kveður á um að flugsamgöngur falli undir viðskiptakerfi ESB með útstreymisheimildir mun væntanlega koma hlutfallslega verst niður á samgöngum á Íslandi en í örðum Evrópuríkjum. Vonast var til þess að íslensk stjórnvöld myndu við innleiðingu tilskipunarinnar í EES-samninginn fara fram á undanþágu fyrir innanlandflugið. Nýlega ákvað ríkisstjórnin hins vegar að það skyldi ekki gert og kemur því innanlandsflugið til með að falla undir kerfið frá 2012. Innanlandsflugið þarf því að reikna með að verða fyrir tugmilljóna króna kostnaði vegna þessa. 


Neyðin mikil í samfélaginu þingmenn kýla vömbina.

  Stór hópur atvinnulausra og annarra sem minna mega sín í þjóðfélaginu reiða sig á ástoð Fjölskylduhjálparinnar um jólahátíðina.
 Það er ljóst að nú sverfur að hjá mörgum fjölskyldum á Íslandi sem eiga í  fjárhagsörðuleikum og í kjölfar atvinnuleysi sem nú er komið vegna aðgerðaleysis stjórnarinnar.                                                              Eftir síðustu úthlutun hjá fjölskylduhjálpinni eru allir skápar tómir. 

      Á meðan þingmenn í þinginu kýla vömbina daginn út og inn og lifa vellystingum í öðru sólkerfi en við hin, er ekki nægur matur fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu, hin veruleik fyrta þingkona Margrét Tryggvadóttir, lýsti yfir hungri sínu og áhyggjum yfir sveltandi þingheimi og í kjölfarið var farið fram á matarhlé fyrir hungraða þingmenn sem soltið höfðu í heila tvo tíma á umræðu um Icesave á Alþingi .

Ég þyngst um mörg kíló frá því ég hóf þingstörfin. Maturinn er nefnilega alltof nálægt. Og alltof girnilegur, skrifar skrifar einn þingmaður og strauk síðan ístruna með lokuð augun og tómt höfuð.

91.  Fullveldisdagur okkar Íslendinga er í dag með atvinnuleysi og fátæk og sveltandi landsmönnum, en þingheimur etur á sig gat og vita ekki hvað er að gerast útum gluggann á alþingi á meðan velfarastjórnin fer með völd skilur ekkert né veit við hvaða kjör almenningur býr við í þessu landi og geta þeir ekki lyft höfðunnu upp úr krásunum í þinginu til að sjá ástandið enda stór hluti þingmanna að verða að offitusjúklingum eins og ofurvigtar ráðherra ber vitni við á veruleika fyrtum vinnustað við Austurvöll..

Aldrei hafa jafn margir þurft aðstoð á Íslandi í dag  og hún kemur ekki frá þinginu né stjórninni, svokallaðri Velfarastjórn sem stjórnin vill kallar sig hún er blind.

Við síðustu úthlutun aðstoðaði Fjölskylduhjálpin 430 fjölskyldur með matargjöfum og er það met sem hefur ekki verið slegið áður.

Stór hópur atvinnulausra og annarra sem minna mega sín í þjóðfélaginu reiða sig á aðstoð Fjölskylduhjálparinnar um jólahátíðina.

 Ég skora því á landsmenn sem geta gefið eitthvað og látið af hendi rakna að styrkja Fjölskylduhjálpina fólk getur sleppt jólahlaðborðinu og gefið þá upphæð.

Tekið er á móti fatnaði og matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga milli kl. 9-13, á miðvikudögum kl. 9-18 og á fimmtudögum milli kl. 9-13. Símar Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr. 101-26-66090, kt. 660903-2590.



Fjölskylduhjálpin er matarlaus og þingmenn kýla vömbina.

 Ég þyngst um mörg kíló frá því ég hóf þingstörfin. Maturinn er nefnilega alltof nálægt.     Og alltof girnilegur, skrifar skrifar einn þingmaður. Aðdragandi málsins er að Margrét Tryggvadóttir,  lýsti yfir hungri sínu og í kjölfarið var farið fram á matarhlé á umræðu um Icesave á Alþingi og hvað alþingi illa væri færi  með fátækan þingmenn.                                                    

 

Á sama tíma eru matarkistur og skápar Fjölskylduhjálpar Íslands eru tómar og því biðlar Fjölskylduhjálpin til þjóðarinnar um aðstoð fyrir jólin á meðan rumpulýður í þinginu kýlir vömbina daginn út og inn og lifa í öðru sólkerfi en við hina er ekki nægur matur fyrir þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu og fullveldisdagur okkar Íslendinga er í dag.

 Aldrei hefur verið eins sótt að fullveldi Íslands og einmitt um þessar mundir og fátækir svelta þingheimur etur á sig gat og vita ekki hvað er að gerast útum gluggann á alþingi á meðan velfarastjórnin fer með völd skilur ekkert né veit við hvaða kjör almenningur býr við og geta ekki lyft höfðunnu upp úr krásunum í þinginu..
Í tilkynningu frá Fjölskylduhjálpinni kemur fram að hátt í 16000 einstaklingar séu nú án atvinnu auk þeirra þúsunda, sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Stór hópur þessa fólks reiðir sig á aðstoð Fjölskylduhjálparinnar nú um hátíðirnar.„Tökum höndum saman og leggjum okkar að mörkum til að allir geti haldið gleðileg jól,“  

Tekið er á móti fatnaði og matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga kl 9-13, miðvikudaga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13. Símar Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr. 101-26-66090, kt. 660903-2590.


Ég skilaði inn bílum, myntkörfulán eru ólögleg

 Þeir vilja ekki taka á þessum málum, dómararnir í dag, því þetta eru myntkörfulán og þau eru ólögleg. Það vill enginn vera fyrsti dómarinn til að taka á þessu dæmi. Það verður fordæmisgefandi. Núna vísa allir frá.“

 Ég skilaði inn bílum og það er ágreiningur um milligjöfina. Þeir verðleggja einn bílinn það lágt, hann er 5,7 milljóna króna bíll en þeir mátu hann á 1.300 þúsund, og ég þyrfti að borga mismuninn. Ég var til í að borga eftirstöðvarnar en ekki með svona formerkjum,“ segir Úlfar. Hann var með þrjá bíla á kaupleigu, Jagúar, Cadillac Escalade og Grand Cherokee, sem hann notaði við innflutning.

„Ég var með innflutning ásamt öðrum árið 2007 þegar dollarinn var ekki neitt. Þegar fór að harðna á dalnum gerði SP-Fjármögnun svo miklar kröfur þegar ég var að selja bílinn. Þeir voru í því að setja mér stólinn fyrir dyrnar. Stundum fóru þeir fram á að ég myndi borga einhver nokkur hundruð þúsund því kúnninn var ekki nógu góður. Þannig að ég lagði bílana bara inn til þeirra.“
Úlfar er bjartsýnn á að málið leysist fljótt.

„Ég veit að þetta fer sáttaleið. Ég er búinn að bjóða þeim sátt og er með lögmann í þessu. Þetta er ekkert World Class-mál,“ segir Úlfar og hlær. Hann er í sömu sporum og margir aðrir og telur líklegt að málinu verði vísað frá.

„Það hefur verið þannig að þessum málum er vísað frá. Þeir vilja ekki taka á þessum málum, dómararnir í dag, því þetta eru myntkörfulán og þau eru ólögleg. Það vill enginn vera fyrsti dómarinn til að taka á þessu dæmi. Það verður fordæmisgefandi. Núna vísa allir frá.


Á meðan Íslensk börn svelta þá sukka stjórmálamenn.

Og Mæðrastyrktarnefnd úthlutar matargjöfum til bágstaddra foreldrum og börnum þá velta stjórnmálmenn úr illafengnum eða vafasömum greiðslum sér til handa siðlaust eða stolið eða dómgreindarleysi?.

Hvað með íslenskan almenning sem vinnur hjá venjulegum fyrirtækjum er ekki dregið frá þeim laun þegar þeir skila ekki tilskyldri vinnuskyldu hversvegna sitja stjórnmálamenn ekki við samborð en geta hirt laun fyrir að mæta ekki í vinnuna þeir hljóta að vita að þegar greitt er inn á reikninga þeirra fyrir vinnu sem ekki var sinnt að það jarðar við að taka við illafengnum eða vafasömum greiðslum (þýfi ) hversvegna skilað þeir ekki fénu til til baka eins og venjulegur borarar þurfa að gera.

 

Taka þarf til í borgarstjórn RVK og skoða þá sem taka við launum fyrir óunna vinnu. Eins og fréttir dags hljóma.

Dagur B. Eggertsson fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Faxaflóahafna sf. hefur fengið 160.000 krónur fyrir hvern stjórnarfund sem hann hefur setið fyrir hönd síns flokks á þessu ári. Dagur hefur setið fimm fundi af 11 frá áramótum, að sögn fulltrúa Framsóknarflokksins í stjórn Faxaflóahafna.

 

Greiddar eru 80.112 krónur á mánuði fyrir setu í stjórn Faxaflóahafna. Dagur B. Eggertsson, sem nú gegnir sérverkefnum á vegum ríkisstjórnarinnar. Samtals nema greiðslur til Dags vegna stjórnarsetu í Faxaflóahöfnum 801.120 krónum samkvæmt tilkynningunni.

 

Ólafur F. Magnússon óskar þess á fundi borgarráðs í dag, að fá svör við boðsferðir borgarfulltrúa í leikhús og fleira. Meðal þess sem Ólafur vill að komi fram í dagsljósið er hversu mikið borgarfulltrúarnir þyrftu annars að greiða úr eigin vasa fyrir þessi hlunnindi

Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi vinstri grænna, hefur lagt það til að hætt verði að bjóða borgarfulltrúum og öðrum á vegum borgarinnar í lax. Þetta séu forréttindi hinna hæst launuðu í borgarkerfinu sem þurfi að afnema.

Þingmenn geta skráð sig í önnur byggðalög til að hækka laun sín nýlegt dæmi er þingmann sem skráður er á Akureyri, já á einu auga bragði var hann skráður.

 

 

 bb

 

 

 Eða rétt þá heldur árshætið Íslenskra Stjórnmálamanna.

 


Bankarnir fengu skuldir heimilanna á hálfvirði og heimta fullvirði sé greitt.

Viðskiptablaðið, sem kom út í dag, greinir frá því að nýju viðskiptabankarnir hafi fengið skuldir heimilanna með 44% afslætti,  þegar samið var um virði þeirra eigna sem færðar voru til þeirra frá gömlu föllnu bönkunum. Ætla má að meðalskuldin sé um 4,7 milljónum króna að raunvirði.

Hér er því um stórfelda eigna upptaka bankana á heimilum landsmanna .

Með hjálp ríkisstjórnarinnar sem lítið hefur komið að því að lagfæra vanda heimilanna eftir kosninga enda kosningarloforðin löngu gleymd eftir að þeir komust í ráðheratsólana.

 Í sýslu Alþjóðgjaldeyrissjóðsins (AGS) komi fram að lán nýju bankanna, Íbúðalánasjóðs og sparisjóðanna, til heimila landsins hafi verið niðurfærð um samtals 563 milljarða króna. Bókfært virði hafi verið 1.713 milljarðar króna en raunvirði sé 1.150 milljarðar:

Samkvæmt upplýsingum frá Póstinum eru heimili landsins 120.141 talsins. Því er meðalskuld hvers heimilis samkvæmt bókfærða virði útlánanna í skýrslu AGS um 14,3 milljónir króna. Ef öll lán væru færð á raunvirði myndi meðalskuldin á hvert heimili lækka niður í 9,6 milljónir króna, eða um 4,7 milljónir króna.

crop_260x_932075.jpg

 


Mats Josefson, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir slagleg vinnubrögð og léleg.

Mats Josefson, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í endurreisn bankanna, segir kostnaðinn við kreppuna hér verða meiri en nokkur kreppa í öðru landi, jafnvel um 85% af landsframleiðslu.

Hann gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir að taka sér alltof langan tíma til að endurreisa bankakerfið og sofa á verðinum , mun lengri tíma en í öðrum löndum með svipuð vandamál.

Aðalástæðan fyrir því sé að engum einum var falin umsjón með þessari endurreisn og gengið óskipulega til verka af litlir sem engri kunnáttu .

Þá hafi ríkisstjórnin staðið sig illa í að upplýsa almenning um hvað hafi verið að gerast sem gert hafi hlutina en veri. 

Josefson segir það einnig reynslu annarra þjóða að gera endurreisn bankanna ekki að pólitísku bitbeini eins og ríkisstjórnin hafi gert og að upplýsa markaðinn og almenning um hvað sé að gerast en þar hafi hún gjörsamlega brugðist þjóðinni og ekki staðið við kosningarloforð sín.

Josefson hélt erindi á ráðstefnu Capacent Glacier um fjárfestingar á Íslandi en erindi hans fjallaði um hvernig íslenskt efnahagslíf getur rétt úr kútnum.

Og þá með breyttum vinnubrögðum, ríkisstjórinn verður að fara að vinna vinnuna sína.

bilde_931906.jpg

Fólkið sem hefur ekki staði sig gagnvar Íslenskri þjóð.


Fordæma verklag Kaupþings.

Neytendasamtökin fá ekki svar við ítrekuðum fyrirspurnum frá Nýja Kaupþing með hvaða hætti bankinn mun bæta tjón venjulegra viðskiptarvinna utan útrásarvíkinganna,

Hér setja ekki allir við sama borð að mati bankans hver það er sem fær leiðréttingu sinna mála.

Neytendasamtökin fordæma verklag bankans en bréfum þeirra hafa ekki verið svarað.

Samkvæmt niðurstöðu Neytendastofu og síðar áfrýjunarnefndar neytendamála braut Kaupþing lög um neytendalán með því að tiltaka ekki í lánaskilmálum með hvaða hætti vextir á gengistryggðum lánum væru breytilegir og við hvaða aðstæður þeir gætu breyst.

Þar sem málið var tæpt ár í vinnslu Neytendastofu og áfrýjunarnefndar töldu Neytendasamtökin fyrirséð að bankinn hefði undirbúið einhver andsvör, að einhver yfirlýsing myndi birtast frá bankanum, um það hvernig hann hygðist bæta lántakendum það tjón sem lögbrotin hefðu valdið,“ segir á vef Neytendasamtakanna í dag.

Neytendasamtökin sendu samtökin Nýja Kaupþingi erindi 1.október fyrir hönd lántakenda og óskuðu eftir upplýsingum um með hvaða hætti bankinn hygðist bæta lántakendum tjónið. Erindi var svo ítrekað 16. október. Enn bólar ekki á viðbrögðum bankans.

Fyrra erindið var sent á yfirmann lögfræðisviðs, yfirmann viðskiptabankasviðs og bankastjóra. Seinna erindið var sent beint á persónulegt netfang bankastjóra.

Enginn þessara aðila hefur séð tilefni til að svara. Neytendasamtökunum þykir ótrúlegt að banki í eigu ríkisins, banki sem gefur sig út fyrir að vera annt um hag viðskiptavina sinna, sjái hvorki tilefni til að svara erindum samtakanna, né senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld hafa komist að þeirri niðurstöðu að bankinn hafi gerst sekur um lögbrot.

Þar sem Neytendasamtökin eru nú orðin úrkula vonar um að þeim berist svar sjá þau sig knúin til að fordæma verklag bankans opinberlega,“ segir að lokum í pistli Neytendasamtakanna í dag.






« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband