Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Það er gott að vinna í álveri.

Ég er Hafnfirðingur, ég og mín fjölskylda munum örugglega segja já takk við stækkun Alcans.  Enda mjög gott að vinna hjá fyrirtækinu og sýnir starfsmannavelta það svart á hvítu.

Hvað Vinstri-græna snertir hlýtur fólk að sjá að sá flokkur er á móti nær öllu og öskrar hátt.

Svo til að uppnefna okkur þá tala þeir stanslaust um álbræðslu sem er öfugnefni en til að framleiða ál er notast við rafgreiningu.

Álver er góður vinnustaður og verður mikil vítamínsprauta fyrir Hafnfirðinga ef af stækkun yrði.

 

ÁÞ


mbl.is Skora á Hafnfirðinga að fella tillögu um deiliskipulag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þúsundir búa við svipaða mengun hér og íbúar evrópskra stórborga

 Umferðarmengun í Reykjavík.

Menguninni við heimilin var skipt í fimm flokka, allt eftir magni NO2-sameinda í hverjum rúmmetra andrúmsloftsins, mælt í míkrógrömmum, einum milljónasta úr grammi. Magnið mældist ekki mikið í úthverfum en var ýmist í flokkunum 16–20 og 21–29 míkrógrömm nærri stofnæðum.

 Hinsvegar eru tölur við Straumsvík mælt á Hvaleyraholti SO2  5,52 míkrógrömm.

Kv,Svig. 


Ómar Ragnarson. Jón Baldvinn, ég og Ljónið.

Ómar Ragnarson segir að fylgismenn Ljónsins séu galnir virkjunarsinnar.  Ljónið spyr Ómar á móti hvort hann sé galinn umhverfissinni?  Jón Baldvinn kallar vinnustaðinn okkar skrímsli?

 

Mun Ljónið, Ómar og Jón Baldvinn ná sáttum og byggja upp landið í sátt við náttúruna?  Mér hlýnar um hjartarætur að Ómar hafi auglýst eftir hægri – grænum en ekki Vinstri- grænum. Jón Baldvinn vill kljúfa Samfylkinguna?

 

Hver veit nema ég, Jón Baldvinn og Ómar verðum saman í flokki, Hægri-grænum þar sem vilji er til að nýta auðlyndir okkar í sátt við náttúruna til hagsældar lands og þjóðar?  Ekki rétt?.

 

Að lokum Ómar og Jón Baldvinn?

 

Fólk verður að lifa af í þessu dýrasta landi heims?  Ég vil minna ykkur á að lægstu launataxtar í okkar landi eru 124..000 á mánuði.  Skrifa  Eitt hundrað tuttugu og fjögur þúsund á mánuði?

 

Húsvíkingar eru búnir að reyna allt? .   Álver er hátækni iðnaður?  Alcan er sjálfbært fyrirtæki? 

 

Ég skora á allt verkafólk þessa lands að rísa upp og berjast heiðalegri orðabaráttu gegn því fólki sem berst gegn okkur.

 

Hvar er verkalýðshreyfingin í þessu landi?

 

ÁÞ


Mengun frá bílaumferð skemmir lungu barna í Rvk,?

Stjórnvöld á varðbergi  Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri hjá umhverfisráðuneytinu, upplýsti í samtali við Morgunblaðið í gær að Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra myndi á næstunni kynna nýjar niðurstöður svifryksnefndar, sem hann hefur farið fyrir. "Það er talið að allt að 60 til 70 prósent svifryksmengunar megi rekja til umferðar," segir Ingimar. "Um sjö til átta prósent koma frá dísil- og vinnuvélum, auk lítils magns frá bremsuborðum. Afgangurinn á sér svo náttúrulegar orsakir, á borð við sjávarseltu sem kemur til okkar með norðanáttinni og frá loftögnum sem berast frá hálendinu."

Hann segir að ætlunin sé að rannsaka þessa samsetningu frekar og í framhaldinu verði leitað leiða til að draga úr mengun á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir til greina koma að grípa til aðgerða til að draga úr mengun en segir slík skref viðkvæm og vill ekki tjá sig frekar um þau á þessu stigi. Til að ná árangri sé þó ljóst að aðgerðirnar þurfi að beinast gegn umferðinni.

 

Mengunin "algjörlega óviðunandi"  LÚÐVÍK Gústafsson, deildarstjóri hjá umhverfissviði Reykjavíkurborgar, segir magn svifryks við mælingarstöðina við Grensásveg í Reykjavík hafa farið í 700 míkrógrömm á rúmmetra í lok nóvember 2005, sem sé "algjörlega óviðunandi". Vindstrengur frá Hvalfirði hafi síðan blásið menguninni á brott, sem hafi verið ein sú mesta síðustu ár, og magnið minnkað verulega. "Þarna var um að ræða hæstu mældu gildi á tiltekna tímaeiningu við Grensásveg," segir Lúðvík. "Í fyrra voru 29 dagar þar sem mengunin fór yfir heilsuverndarmörk við stöðina. Hún er samt hlutfallslega miklu minni en í Suður-Evrópu, svo ekki sé talað um Kína.

Samkvæmt reglugerð umhverfisráðuneytisins, sem er samhljóma reglum Evrópusambandsins, hefur verið ákveðið að heilsuverndarmörk svifryks fyrir árið 2010 verði 20 míkrógrömm, eða það magn sem ekki er talið skaðlegt. Þetta er þó til endurskoðunar, enda efasemdir um hvort þetta sé nóg.

Gein úr Mbl. 28 jan 2007

Kv, Svig.

 


Guðjón Arnar kjörinn með lófataki.

Mb.is greinir frá kosningum í Frjálslynda flokknum í formannskjöri.

Vonandi fara öldurnar að lægja og sættir takast svo að flokkurinn geti beit sér áfram sem heill flokkur með samstöðu um sín mál.

Kv,Svig.


mbl.is Guðjón Arnar kjörinn formaður Frjálslynda flokksins með lófataki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauða Ljónið óskar Landsbankanum til hamingju með árangurinn.

Í fréttir á Mbl.is.

Greinir frá frábærum árangri Landsbanka Íslands tekjur af erlendri starfsemi bankans námu 46,6 milljörðum sem er 52% af heildartekjum, þetta er í fyrsta sinn sem tekjur af erlendri starfsemi er hærri en á Fróni.

Rauða Ljónið óskar Starfsmönnum Landsbankans vel farnaðrar á þessu ári og vonar að sá  frábæri árangur sem náðist 2005 verði en betri 2006, Áfram til góðra verka Landsbankamenn.

Kv,Svig.


Lýst eftir nefinu hans Gosa eigendur Vinstri Grænir?

Lýst eftir nefinu hans Gosa eru eigendur Vinstri Grænir ?

Nefið hans Gosa tapaðist í Hafnarfirði á tímabilinu18. janúar til 25 janúar 2007.
Ekki er ljóst hverjir eru réttmætu eigendur að umræddu nefi eignarhaldið virðist hafa skipt um eigendur eða er óljóst um eignarhald, eftir fund um deiliskipulag í Skipulagas-og byggingaráði
Hafnarfjarðar um 18. jan.

Í Fjarðarpóstinum 18. janúar er sagt.,, Að þverpólitísk samstaða sé á mill flokka í Skipulagas-og byggingaráði Hafnarfjarðar um deiliskipulagið.

Það vakti athygli að bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænir tóku undir bókun Sjálfstæðisflokks um deiliskipulag.”  Vinstri Grænir eða Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir segir svo í viðtali í RÚV sjónvarpi í 10 fréttum 25. janúar. eða viku seinna að ekki sé  þverpólitísk samstaða í Bæjarráði um deiliskipulagið undarleg  yfirlýsing, voru þá Vinstri Grænir  ekki ljós að umrætt nef, nefið hans Gosa hefði tapast og legið týnt í meir en viku eða hvort það lægi hjá Vinstri Grænum eða hinum flokkum í bæjarráði.

Þetta er mjög viðkvæmt nef og dýrmætt fyrir eiganda.

Sá sem finnur nefið vinsamlega skili því í hendur rétta eigenda.

 

Kv,Svig

Stækkum Alcan, JÁ TAKK

Miklum áfanga er náð með pólitísku samkomulagi allra flokka innan bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um nýtt deiliskipulag. Í tillögunni fellst veruleg minnkun á þynningarsvæðinu frá því sem nú er.  Er það mín skoðun að hægt sé að minnka þynningarsvæðið vegna þess að nútímatækni sjái fyrir hverfandi mengun.  

 

Peningakassi Hafnarfjarðar mun bólgna út um 800 milljónir ef af stækkun yrði. þá fyrst væri hægt að tala um að létta á skattpíndasta útsvari bæjarfélags Hafnarfjarðar hvað samfeldur árafjölda varðar.

 

 Í nánustu framtíð mun þjónusta við bæjarbúa aukast mikið enda margt hægt að gera fyrir 800 milljónir. Enda er Alcan burðarás atvinnulífs í okkar bæ og mun vonandi verða það áfram. Sjálfur er ég íþróttafíkill og er viss um að Alcan komi enn sterkari inn en nú er og styðji við bakið á íþróttafélögunum hvað íþróttaaðstöðu varðar vegna ört fjölgandi iðkenda,

Sjálfur er ég hlynntur stækkun enda búinn að vinna hjá góðu fyrirtæki í um 10 ár. Að hafna deiliskipulaginu er að mínu viti fyrsti vísirinn að lokum verksmiðjunnar.  En vegferð lokun álvers getur tekið nokkur ár.

 

Stækkum Alcan Já Takk

 

ÁÞ


Stækkum álverið í Straumsvík - fyrir fólkið.

 

Undanfarin ár hef ég verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vera starfsmaður Alcan á Íslandi eða Ísal eins og við starfsmenn köllum fyrirtækið okkar í milli. Áður en ég hóf störf hjá Ísal hafði ég unnið hjá mörgum ágætum fyrirtækjum bæði hér á Íslandi og í Danmörku í meira en 15 ár. Án þess að lasta nokkurt af þessum fyrirtækjum þá get ég fullyrt að hvergi hef ég kynnst eins almennri starfsánægju og jákvæðum starfsanda og hjá Ísal. Það tók mig nokkurn tíma að trúa því að hægt væri að vinna í fyrirtæki þar sem bros mætir manni á hverju horni og allir eru tilbúnir til að rétta hjálparhönd ef þörf er á.

Það segir nokkuð um fyrirtækið að meðalaldur allra starfsmanna er um 46 ár og meðalstarfsaldurinn um 15 ár. Ef menn lenda í því að veikjast eða missa starfsorku að einhverju leyti er þeim boðið starf í Smiðjunni, sem er sérstök deild þar sem ekki er krafist fullrar starfsorku. Þar geta starfsmenn sinnt léttari vinnu eins og að yfirfara búnað, búa til barka og slöngur og annað sem fellur til í stóru fyrirtæki. Ætli það séu mörg fyrirtæki á Íslandi sem bjóða upp á “áhyggjulaust ævikvöld” í vinnunni? Þeir sem vilja fræðast meira um Smiðjuna ættu að lesa viðtöl við starfsmenn í grein á vef Alcan: http://alcan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=256.

Hvergi hef ég kynnst öflugra fræðslustarfi en hjá Ísal. Þar er starfræktur skóli sem nefnist Stóriðjuskólinn. Verkafólki og iðnaðarmönnum er boðið uppá nám sem metið er til náms á framhaldsskólastigi. Meira en 200 Stóriðjugreinar og Áliðjugreinar hafa verið útskrifaðir úr Stóriðjuskólanum. Meðal þeirra sem hafa útskrifast eru eflaust margir sem hlakka til að takast á við ný og spennandi störf í stækkuðu álveri og eiga þannig möguleika á starfsframa sem er takmarkaður í Ísal í dag.

Fyrir utan Stóriðjuskólann er mikið framboð af allskonar námskeiðum jafnt innan fyrirtækisins sem utan. Öryggismálin eru gjarnan efst á listanum yfir þá fræðslu sem í boði er.

Í ár er Ísal að halda upp á 40 ára afmæli. Þrátt fyrir mikið og gott viðhald á þessum árum er verksmiðjan orðin gömul og úrelt á nútíma mælikvarða. Ef fyrirækið fær ekki að stækka og endurnýjast eru miklar líkur á að samkeppnin verði til þess að fyrirtækinu verði lokað innan 10 ára. Viljum við Hafnfirðingar virkilega að þetta fyrirtæki hverfi úr bænum okkar? Nei, sýnum samstöðu og kjósum já við stækkun í væntanlegum kosningum!

 

Kv.JG. 


Tillaga? Kosið um stækkun Alcans 31 mars og samþykktt að veita styrki/fundargerð bæjarráðs Hafnarfjarðar.

       Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði  var samþykkt í gær eftirfarandi tillaga um styrki til hinna ýmsu samtaka um stækkun Alcans sem vilja kynna skoðanir sínar.  Einnig kom fram tillaga um að kjósa skuli um stækkun Alcans 31 mars.


3.      0701299 - Kjördagur og undirbúningur íbúakosningar vegna deiliskipulags á Alcan-svæðinu.  gð var fram eftirfarandi tillaga til næsta fundar?

”Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að heimila bæjarráði að styrkja samtök/lögaðila sem leita eftir fjárhagslegum stuðningi vegna kynningar á sjónarmiðum og viðhorfum í tengslum við kosningarnar. Í því sambandi verði miðað við þær styrktargreiðslur sem veittar hafa verið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.”

  "Vísað til afgreiðslu á næsta fundi. " 

Ég fann það hvergi hvað bæjarsjóður Hafnarfjarðar hefur veitt mikla styrki til pólitískra athafna eða hvað slík upphæð er stór á síðustu árum.

  

Ef einhver veit meira um fordæmi á pólitískum styrkjum Hafnarfjarðabæjar, þá væri gott að fá innskot í athugasemdardálkinn. Það er mín skoðun að bæjarsjóður á ekki að ausa peningum úr tómum peningakassa í slík verkefni heldur eiga samtök að leita til fyrirtækja eða annara velunnara sem styðja þeirra mál. Nú er svo komið að bæjarkassinn verður líklegast að afgreiða tugi umsókna til hinna ýmsu samtaka sem vilja kynna mál sitt um stækkun Alcans.

 Stækkum Alcan,  JÁ TAKK. 

ÁÞ 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband