Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Lífstíll

Er hugmyndafræði Samfylkingarinnar fengin hjá Karli bréta prins í umhverfismálum og ferðamannaiðnaði?

Karl Bretaprins ákvað fyrir nokkrum vikum síðan af aflýsa árlegri skíðaferð sinni til að stemma stigu við losun gróðurhúsalofttegunda en prinsinn hefur verið gagnrýndur fyrir að fljúga um allan heim til að taka við viðurkenningum fyrir störf sín að umhverfisverndarmálum og stuðla með því að losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta kom fram á fréttavef Jyllands-Posten. Deginum eftir flaug hann til New York til að taka við einni slíkri umhverfisviðurkenningu.

Ómar keyrir á litlum sparneytum álbíl ef ég fer með rétt mál og er hlynntur mengandi ferðamannaiðnaði. Samfylkingarbanarnir í Samfylkingunni eru ekki hlynntur skít og drullu og hafa verið helstu talsmenn þess að banna Íslendingum að koma nálægt slíku.  Fyrst með slagorðinu Fagra Ísland og nú síðast með áróðrinum um tækni eitthvað í stað stóriðju. Ég tel alla íslendinga umhverfissinna sem vilja fara mismunandi leiðir skynseminar.

Ef færi fram skoðanakönnun á fylgi flokkanna meðal starfsmanna Alcans  þá væri Samfylkingin langöflugust flokka hjá okkar fyrirtæki enda feikivinsæll bæjarstjóri í bænum okkar. Hvert atkvæði fjölskylduföðurs getur haft vægi upp á 3-15 fallt.  Ef við tökum lítið dæmi og teljum okkur trú á að flestir stuðningsmanna Alcans séu búnir að fá nóg af ójafnaðarmennskunni. Tökum fyrir hæsta áhrifagildið?  300 starfsmenn *15 eru 4500 atkvæði. Ég er farinn að finna urg hjá starfsmönnum gagnvart Samfylkingunni.

Í Fjarðarpóstinum í dag kemur fram að Talnakönnun gerði könnun fyrir Vísbendingu um afstöðu landsmanna um stækkun Alcan.  55% voru fylgjandi 45% á móti.

Að lokum óska ég þess að Samfylkingin verði áfram jafnaðarmannaflokkur en ekki áróðursflokkur gagnvart okkur framfarasinnum.  Flestir Hafnfirðingar eru ánægðir með Samfylkinguna í Hafnarfirði þar sem bæjarstjórinn í Hafnarfirði lítur hlutlaust á málin en að mínum dómi er annað að segja af forustusveit Samfylkingarinnar á landsvísu sem lítur hlutdrægt á málin.

Kveðja.Á Örn Þórðarson  

Dylgjum um starfsskilyrði starfsmanna í álverum svarað

Hildur Atladóttir fjallar um stóriðju og ásakanir stóriðjuandstæðinga.

 

Marta Eiríksdóttir kennari skrifaði grein sem birtist hér í blaðinu sl. þriðjudag undir yfirskriftinni ,,Hvalneskirkja hverfur” titillinn á þó ekki nema að litlu leiti við það sem kom fram í greininni.  Marta er fyrst og fremst í grein sinni að andæfa uppbygginu fyrirhugaðs álvers í Helguvík.  Ástæða þess að ég sé mig knúna til að setja línu á blað til andsvara eru hinar ótrúlegu dylgjur sem Marta setur fram í grein sinni um áhrif álvera á líf og heilsu einstaklinga.

Eftir tal um loftmengandi stóriðju snýr Marta sér að heilbrigðismálum starfsmanna álvera og einstaklinga sem búa í nágrenni þeirra.  Steininn tekur úr þegar hún dylgjar um slæm starfsskilyrði starfsmanna og kastar síðan fram spurningunum: ,, Er kannski hvítblæði og krabbamein algengara á meðal þeirra eða astmi og lungnasjúkdómar? “Hvert skyldi markmið Mörtu vera með þessum spurningum í grein sinni? Væntanlega að skilja lesandann eftir með þá tilfinningu að álver sé hættulegur vinnustaður, þar sem illa er búið að starfsmönnum og líkur á að þeir fái alvarlega sjúkdóma eins og hvítblæði eða krabbamein séu meiri en gengur og gerist vegna starfsumhverfis þeirra.  Marta skrifar undir greinina sem kennari, ég vona að hún fjalli um mál er snúa að kennslu af meiri þekkingu og yfirvegun en hún gerir um starfsumhverfi álvera í grein sinni.Undirrituð er leiðtogi heilbrigðismála hjá Alcan á Íslandi sem rekur álverið í Straumsvík, fyrir þá sem þekkja til vinnuaðstæðna starfsmanna álvers eins og þess sem rekið er í Straumsvík eru dylgjur eins og þær er Marta setur fram vægast sagt ósvífnar, órökstuddar og byggðar á augljósri vanþekkingu og sleggjudómum.  Staðreyndin er sú að vinnuumhverfi starfsmanna er mjög gott.  Það er tryggt að starfsumhverfi þeirra sé ekki á neinn hátt hættulegt heilsu þeirra og að fyllsta öryggis sé gætt í þeirra daglegu störfum.  Að dylgja um auknar líkur á alvarlegum veikindum starfsmanna er ógeðfellt og ekki málstað andstæðinga stóriðju til framdráttar.Hildur Atladóttir.
Höfundur er næringarfræðingur og leiðtogi heilbrigðismála hjá Alcan á Íslandi hf., Straumsvík.

Þessi frétt gæti átt við Hafnarfjörð eftir nokkur ár ef Alcan fær ekki að nútímavæðast og stækka.

“Átta af þrjátíu starfsmönnum Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum var sagt upp störfum fyrir helgi og kunna enn fleiri að missa vinnuna á næstunni.

„Að öllu óbreyttu verður fleirum sagt upp um næstu mánaðamót," segir Stefán Jónsson, yfirverkstjóri Skipalyftunnar.



Mennirnir sem sagt var upp hafa sumir um 45 ára starfsaldur að baki. “

------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Verður frétt í svipuðum dúr hér í Hafnarfirði eftir nokkur ár ef afturhaldsstefna verður ríkjandi hér á næstu árum og fyrirtækið Alcan fær ekki að stækka og nútímavæðast?

 

Þá yrði fréttin líklegast svona?  Alcan hefur ákveðið að loka verksmiðju sinni á næstu 3-5 árum þar sem allur tæknibúnaður og framþróun er orðið barn síns tíma.  500 starfsmenn með allt að 45 ára starfsaldur munu missa vinnu sína.

 

Húsvíkingar hafa reynt allt í 30 ár en flest allt hefur mistekist og er vonin álver.  Hafnfirðingar gætu vissulega fetað í fótspor húsvíkinga og beðið efir hinu margrómaða þekkingar eitthvað sem kemur kannski aldrei?

 

Kveðja.

Á.Örn Þórðarson


Hagsæld í Hafnarfirði ef Alcan verður stækkað?

1.  Tekjur munu stóraukast í Hafnarfirði og munu nema allt að 1.400.000 milljóna króna.

 

2.  Árlega munu tekjur ríkisins af starfsemi Alcans nema 4-5 milljarða króna.

 

3. Biðlisti þeirra sem vilja vinna hjá Alcan mun minnka þar sem 350 ný bein störf skapast hjá fyrirtækinu.

 

4. Samtals munu skapast um 1200 bein og óbein störf vegna stækkunarinnar.

 

5. Bæjarsjóði verður kleyft að hafa ókeypis leikskóla eða ókeypis skólamáltíðir.

 

6.  Alcan mun koma sterkari inn eins og undanfarin ár með aukið fjármagn til samfélagsmála.

 

7. Hátækni iðnaðarfyrirtæki og önnur hugvitsfyrirtæki munu fá aukna vinnu til hugvits og þróunar vegna aukins hátæknibúnaðar í nútíma álverum.

 

Læt þetta lítilræði gott að sinni.

Sjá hlekk SA, hér

 

Stækkum Alcan JÁ TAKK.

Kveðja Á Örn. Þórðarson


Við erum bestir...

Íslenski fáninn

Á Íslandi búa um 300.000 manns en þrátt fyrir fámennið þá höfum við afrekað jafn mikið og ef ekki meira en aðrar þjóðir heims. Við erum íslendingar og við erum bestir. Afrek okkar má sjá í t.d. framúrskarandi handboltaliði (strákunum okkar) sem voru á góðri leið með að verða heimsmeistarar. Við höfum 8 sinnum verið með sterkasta mann heims og 3 sinnum fallegustu konu heims. Þetta kemur mér persónulega ekkert á óvart því íslenskir karlmenn eru nautsterkir og ég veit að hér búa fallegustu konur heims og þar á meðal konan mín.

 

Það er þessi íslenski baráttuvilji sem gerir okkur sérstök og fylgir okkur í öllu því sem við gerum. Hann er ástæðan fyrir því að Alcan á Íslandi hefur staðið framar öðrum í álframleiðslu og með þeim bestu í heimi hvað varðar umhverfismál og öryggismál, sem endurspeglast í þeim fjölda viðurkenninga sem fyrirtækið hefur fengið bæði innan lands jant sem erlendis. Hann er einnig ástæðan fyrir því að Alcan móðurfélagið hefur valið að fjárfesta í stækkun hér fremur en annarsstaðar.

 

Þessi framúrskarandi árangur Alcan á Íslandi náðist ekki með gæði steypunar í gólfum fyrirtækisins heldur með baráttuvilja starfsmanna þess til að gera betur, vera bestir, með því að setja sér kröfuhörð markmið og innlima stöðugar umbætur og verkefnastjórnun. Við leitumst því nú eftir stækkun, fjölgun baráttumikilla starfsmanna, til að geta orðið betri og haldið áfram að vera bestir.

 

Kjósum með stækkun og höldum áfram að vera bestir, áfram Ísland.

 

Kveðja,

Fannar


Til hamingju forsvarsmenn Sólar í Straumi.

Til hamingju forsvarsmenn Sólar í Straumi.

 

Í nýjustu grein Sólar í Straumi á heimasíðu þeirra tala þeir um álver en ekki álbræðslu.

 

Eru þeir loksins að reyna að hefja upp málefnalega umræðu?

 

Munu forsvarsmenn Vinstri-græna taka rökum og verða málefnanlegir eða munu þeir kannski prenta út boli sem á stendur álhaus kálhaus í álbræðslu fyrir kosningarnar?

 

Kveðja.  Á. Örn Þórðarson.


Ósmekklegur og ódrengilegur fréttflutningur Fréttmanna RÚV.

Bæði í útvarpsfréttum í hádeginu og í kvöldfréttum sjónvarpsins á miðvikudaginn var fjallað um stækkun álversins í Straumsvík á afar ósmekklegan hátt. Fréttirnar jaðra hreinlega við fréttafölsunþví þær sýndu á engan hátt raunhæfa mynd af efni fundar sem Samtökatvinnulífsins héldu um umhverfisáhrif álversins. 

 Á fundinum skýrðu fulltrúar Alcan-ÍSALs frá fyrirhugaðri stækkun, umhverfisáhrifum hennar og þeim góða árangri sem Alcan ÍSAL hefur náð á undanförnum árum sem er raunar langt umfram allar þær kröfursem settar eru á fyrirtækið.  ALcan-Ísal er í fremstu röð í heiminum og styrkur mengunarefna er hvergi nálægt heilsuverndarmörkum ólíkt því sem oft er látið í skína.

  Alcan-ÍSAL er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem innleiddi umhverfisstjórnun skv. ISO 14001 og er enn eitt fárra fyrirtækja sem hefur þessa vottun.

 Í fréttum RÚV var umfjöllunarefni SA fundarins tekið úr öllu samhengi og svert, augljóslega í pólitískum tilgangi. Á fundinum var mjög margtáhugavert, ekki síst sérkennileg hegðun umræddra fréttamanna sem virtust komnir á fundinn til að ná sér niðri á einhverjum en upplýstu í leiðinni alla fundarmenn um ótrúlega fáfræði á málefninu.  Spurningar þeirra vorubeinlínis hlægilegar og raunar svo mikið að starfsmaður Umhverfisstofnunarsem sat fundinn sem gestur fann sig knúinn til að standa upp og útskýragrundvallaratriði fyrir fréttahaukunum.  Það er skammarlegt að RÚV skuliekki setja fréttafólk sem veit um hvað það er að tala í verkefni eins og þetta. 

  Það er ekki einskær áhugi á umhverfismálum sem skýrir umræddar fréttir því í þeim málaflokki er af nógu að taka.  T.d. hefur það vakið  litla athygli að svifryksmengun fór á síðasta ári 29 sinnum yfir heilsuverndarmörk við Grensásveg í Reykjavík. Svifryksmengun á Hvaleyrarholtihefur hins vegar ALDREI í 40 ára sögu álversins mælst yfir heilsuverndarmörkum. 

 Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvort fréttamatið hefði verið eins ef á áðurnefndum fundi hefði verið kynning á samyrkjubúi sem rekið væri af ríkinu og starfsmenn í BSRB en ekki á launaskrá hjá álfyrirtæki.    

Kv. Sigurjón Vigfússon 


Forsvarsmenn Sólar í Sraumi reyna oft að breyta sannleikanum.

Okkar vinsæli bæjarstjóri Hafnfirðinga  gagnrýnir yfirlýsingar forsvarsmanna Sólar í Straumi samkvæmt grein í Fjarðarpóstinum í dag. Ég tek undir þessa grein bæjarstjórans þar sem forsvarsmaður Sólar í Straumi reynir að byggja allar upplýsingar sínar á gömlum hasarsíðum en forðast að nefna allar þær upplýsingar sem standa upp á borðinu í dag.

 

Ef við tölum gott og hart mál og  segjum það sem kemur frá hjarta Ljónsins þá hefur mér oft fundist forsvarsmaður Sólar í Straumi telja starfsmenn Alcans fara með rangt mál þegar þeir segja að Alcan sé góður vinnustaður enda munu fyrstu starfsmenn fyrirtækisins verða 40 ára starfsmenn í ár.

 

Ég segi að forsvarsmaður Sólar í Straumi fer oft með ósannindi og vitlausar tölur eins og hann leggur málin upp.

 

Við starfsmenn Alcan tjáum okkur á þessari síðu til að koma okkur skoðunum á framfæri og segjum rétt og satt frá.  Miðað við allt mengunartal forsvarsmanna Sólar í Straumi og einelti Alcans þá spyr ég?  Af hverju er ég lifandi í dag og líður vel?  Eitt sem ég get gagnrýnt Alcan fyrir er að þeir hafa besta mötuneyti á Íslandi og er baráttan við aukakílóin hörð.  Samt er lagt upp úr góðu næringarinnihaldi og vitum við nákvæmlega reiknað hvað hver maður lætur ofan í sig.

 

Berjumst fyrir framtíð góðs fyrirtækis sem veitir starfsmönnum sínum vel enda sýnir starfsmannaveltan það svart á hvítu.

 

Ég vil öflugt fyrirtæki í okkar bæ sem styður við bakið á íþróttahreyfingunni.  Ég hef trú á ef Alcan verði stækkað þá sjáum við þann draum að stórt fjölnota íþróttahús/sýningarhöll verði byggt í okkar bæ en það vantar slíkt hús.  Uppbygging íþróttamannvirkja gengur alltof hægt og eru rótgróin íþróttafélög farin að líða fyrir það.

 

Ég treysti góðu fyrirtæki til góðra samfélagsmála í nánustu framtíð ef fyrirtækið fær að nútímavæðast og dafna.  Ég væri ekki að hvetja dóttir mína að sækja um sumar vinnu hjá góðu fyrirtæki ef þetta væri svona hrikalegt að vinna þarna eins og forsvarsmenn Sólar í Straumi og Vinstri – Grænir vilja álykta.

 

Stækkum Alcan fyrir framtíð Hafnarfjarðar JÁ TAKK.

 

ÁÞ

    

Falleinkunn hjá RÚV

RÚV sendir röng skilaboð með samanburði á co2 losun í samgöngum og stækkun í Straumsvík.  Hvers vegna? 

Ef gera á samanburð co2 losun er eðlilegra að bera saman Straumsvík og önnur álver.  Því losun á co2 verður ekki lægri annars staðar en í Straumsvík við framleiðslu á áli. 

 

Afhverju segir RÚV ekki: Stækkun í Straumsvík stenst ströngustu kröfur um mengunarvarnir strax við lóðarmörk. 

Eða: Þynningarsvæði minnkað um 70% vegna frábærs árangurs Alcans í umhverfismálum.

 

Tryggvi L. Skjaldarson

 

 

 


Vinstri Grænir skora á Hafnfirðinga að fella tillögu um deiliskipulag og um leið að fækka atvinnumöguleikum og fækka störfum í Hafnarfirði og minka tekjur Hafnarfjarðar.

Gildi Alcan til Hafnarfjarðar nú  og eftir stækkun.Yfir 1200 störf bein og óbein afleidd, eru vegna Alcan, Alcan er hæsti greiðandi  gjalda á Reykjanesi með 960 milljónir í opinber gjöld sjá (RSK) sá næsti er með 300 milljónir.Verði stækkað þrefaldast upphæðin  í 2,597 milljónir 800 miljónir til Hafnarfjarðar til birgja og verktaka um 5,500 til 6000 miljónir fyrir utan útsvars til Hafnarfjarðar af störfum Hafnfirðinga er vinna hjá Acan , fjölgun starfa er um 1100 bein og óbein afleidd og útsvar af þeim, og svo mætti lengi telja Rauða Ljónið vill aukin atvinnutækifæri og aukna atvinnu í Hafnarfjörð til handa þeim er eru að koma út á atvinnimarkaðin góðærið er ekki eylíft frekar en kýrnar hans Farós.

Kv, Svig.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband