Leita í fréttum mbl.is

Tannkrem er stórhættulegt samkvæmt kenningu Vinnstri-grænna?

 

Mælingar á flúor í gróðri nú eru svipuð og þau voru áður en framleiðsla hófst hjá fyrirtækinu Alcan/ísal eða um 3-5 ppm. Gróðurverndarmörk eru 30 ppm og heilsuverndarmörk margfalt það. Sem dæmi þá er um 1000-1500 ppm flúoríð í tannkreminu heima hjá þér.

Hættum að hlusta á bullið í afturhaldsinna flokknum.

Kraftmikið atvinnulíf í Hafnarfjörð

Stækkum Alcan. JÁ TAKK.

ÁÞ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flúor í tannkremi er ekki hættulegt. En langvarandi áhrif þess gætu verið það. Það væri t.d. ekki gott að vera með tannburstan upp í sér í marga klukkutíma. Hlutverk tannkrems er að hreinsa glerung tannanna en langvarandi hreinsun gæti skemmt þær. Við myndum t.d. ekki vera með tjöruhreinsi á bílnum í langan tíma, en einungis til að skola burtu tjöruna.

Fannar Jónsson (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 08:04

2 identicon

Úr vísindavef HÍ: 

,,Flúorinn í tannkreminu breytir yfirborðsspennu glerungs, líkt og bón á bílalakki, þannig að tennurnar hrinda tannsýklunni betur frá sér og hún nær ekki að festast í eins miklum mæli. Hann kemur einnig í veg fyrir efnaskipti sýklanna svo að þeir ná ekki að fjölga sér eins mikið. Flúor herðir auk þess glerunginn."

Fannar Jónsson (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 08:18

3 identicon

Við skulum ekki vera að setja öðrum, eins og vinstri-grænum, orð í munn. Sérstaklega rangmæli eins og ofangreindur titill. Verum málefnaleg og hlustum á hvaða skoðanir aðrir hafa svo að þeir hlusti á skoðanir okkar.

Fannar Jónsson (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 08:35

4 identicon

Sæll Fyrirsagnabani,

Ég þakka innleggið þitt og þetta eru nákvæmlega þær athugasemdir sem við viljum fá. Vissulega eru önnur efni sem losna út í andrúmsloftið eins og brennisteinsdíoxíð (SO2) og flúorkolefni. En þessi svonefndu krabbameinsvaldandi efni sem þú vitnar í eru að öllum líkindum PAH efni. PAH stendur fyrir PolyAromatic Hydrocarbons eða fjölarómatísk kolvetni. En þau efni geta myndast þegar kolefni brenna, t.d. brennsla á olíu og kolum og í tilfelli álvera brennsla á rafskautum. Einnig er að finna PAH í t.d. ristuðu brauði, sviðum og hangikjöti og hvað mest í sígarettureyk. Það eru til margar gerðir af þessum PAH efnum og sum hættulegri en önnur. Alcan í straumsvík hefur gert mælingar á PAH efnum í kringum álverið, en sú rannsókn var gerð af Rannsóknstofu fiskiðnaðarins sem er óháður aðili. Niðurstöður sýndu að mælingar voru undir ströngustu viðmiðum heims og var innan þeirra marka að það mætti borða hann. Niðurstöður voru eins eða lægri en mælingar sýndu á öðrum hafnarsvæðum á Íslandi.

Einnig eru engin dæmi til um það að einhver starfsmaður hafi fengið krabbamein við störf í álveri. ISAL hefur verið starfrækt í 40 ár og margir starfsmenn með jafnlangan starfsaldur. Alcan í Straumsvík er góður vinnustaður sem leggur áherslu á umhverfismál, heilsumál og öryggismál. Ég myndi persónulega aldrei vinna á neinum vinnustað nema að ég vissi að hann væri fullkomlega öruggur fyrir mig og samstarfsfélaga mína.

Fannar Jónsson (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rauða Ljónið
Rauða Ljónið

Rautt ljónið er göfugt . Red Lion is noble.

Segðu fólki það sem það þegar veit og skilur og þér verður þakkað.

Segðu fólki það sem það ekki veit og skilur og þú verður fordæmdur.

 Lyginn getur ferðast um allan heiminn, á meðan sannleikurinn er að fara í skóna.

Sigurjón Vigfússon

Nýjustu myndir

  • ...au_anesvita
  • ...aaa
  • ...6239_n_1_jl

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband